Bæjarráð, fundur 499
28. nóvember 2016, kl. 08:30 til 12:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Valdimar O Hermannsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 212 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs nr. 498 og 499, teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson og Valdimar O. Hermannsson
Fundargerð bæjarráð, nr. 499 frá 28.nóvember 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017
Mál 1605024 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2017 ásamt starfsáætlun Fjarðabyggðar árið 2017 til síðari umræðu, ásamt greinargerð fjármálastjóra um breytingar sem hafa verið gerðar á áætluninni milli umræðna og áhrifa þeirra á áætlun áranna 2017 - 2020.
Bæjarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun 2017 fyrir Fjarðabyggð og stofnanir til síðari umræðu í bæjarstjórn.
-
2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2018 - 2020
Mál 1610152 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árin 2018 - 2020 ásamt greinargerð fjármálastjóra um breytingar á tillögu að fjárhagsáætlun 2017 - 2020 milli umræðna.
Bæjarráð vísar þriggja ára fjárhagsáætlun 2018 til 2020 fyrir Fjarðabyggð og stofnanir til síðari umræðu í bæjarstjórn Fjarðabyggðar.
-
3. Byggðaþróun - sviðsmyndagreining
Mál 1611027 Allur ferill málsins
Farið yfir gerð sviðsmynda um byggðaþróun og hugsanlega eflingu íbúa- og atvinnuþróunar með klasasamstarfi.
-
4. Afnotasamningur við eiganda jarðarinnar Högnastaða
Mál 1411139 Allur ferill málsins
Framlag bréf landeigenda Högnastaða þar sem óskað er eftir endurskoðun á ákvæðum leigusamnings. Jafnframt lagt fram minnisblað fræðslustjóra vegna afnota af landi undir skíðasvæðið í Oddsskarði.
Vísað til nánari skoðunar bæjarstjóra og skipulags- og byggingarfulltrúa.
-
5. Greining á húsnæðisþörf
Mál 1611104 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu íbúðarmarkaðarins í Fjarðabyggð. Framlögð verkefnatillaga Capacent um greiningu á stöðu húsnæðismála í sveitarfélaginu.
Bæjarstjóra falið að leita samstarfsaðila vegna verkefnisins. Bæjarráð samþykkir verkefnalýsingu og felur bæjarstjóra undirritun samnings.
-
6. Raforkusölusamningar við Fjarðabyggð og Hafnarsjóð
Mál 1609091 Allur ferill málsins
Bæjarráð hefur samþykkt að semja við Orkusöluna um orkukaup til næstu 2ja ára. Framlagðir endanlegir samningar við Orkusöluna merktir trúnaðarmál til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir samninga og felur bæjarstjóra undirritun þeirra.
-
7. Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2016/2017
Mál 1609042 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra umboð til að staðfesta fyrirliggjandi samninga um vinnslu afla, vegna byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2016/2017, sem og aðra þá samninga sem berast síðar til staðfestingar.
Bæjarráð staðfestir fyrir sitt leyti og vísar endanlegri staðfestingu til bæjarstjórnar.
-
8. Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2016
Mál 1602064 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Náttúrustofu Austurlands frá 22. nóvember 2016, lögð fram til kynningar.
-
9. Verstöðin Ísland
Mál 1611101 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar skýrslan "Hagræðing og landfræðileg samþjöppun í Íslenskum sjávarútvegi 1993 - 2013."
-
10. Nordic Expo 2016
Mál 1610098 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri fór yfir ráðstefnu er hann sótti í tengslum við vinabæjarheimsókn til Stavanger.
-
11. Launakjör kjörinna fulltrúa
Mál 1306082 Allur ferill málsins
Launakjör kjörinna fulltrúa Fjarðabyggðar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkt kjararáðs frá 29. október sl. um breytingar á þingfararkaupi sem áttu að gilda frá 1. nóvember sl. verði ekki notuð sem viðmið á launum kjörinna fulltrúa hjá Fjarðabyggð. Laun kjörinna fulltrúa verði því óbreytt að svo stöddu.
-
12. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 161
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 161 frá 21.nóvember 2016, lögð fram til kynningar.
-
13. Hafnarstjórn - 169
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 169 frá 22.nóvember 2016, lögð fram til kynningar.