Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 500

5. desember 2016, kl. 08:30 til 12:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Valdimar O Hermannsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 213 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Valdimar O Hermannsson, Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Páll Björgvin Guðmundsson, Elvar Jónsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 5.desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Þjónustu- og framkvæmdamiðstöð

    Mál 1609128 Allur ferill málsins

    Farið yfir vinnu við endurskipulagningu á starfsemi þjónustumiðstöðva og hafnarstarfsemi með það í huga að mynda eina þjónustu- og framkvæmdamiðstöð.

  2. 2. Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2016/2017

    Mál 1609042 Allur ferill málsins

    Framlögð tvö bréf Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, þar sem annarsvegar er hafnað beiðni Fjarðabyggðar um að tvöföldun aflamarks verði sleppt og hinsvegar rökstuðningur fyrir því að ekki sé úthlutað byggðakvóta til fleiri byggðarlaga en Stöðvarfjarðar og Mjóafjarðar í Fjarðabyggð.

  3. 3. Bakvörður uppfærsla 2016

    Mál 1512075 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að samningi við Advania og minnisblað um innleiðingu á Vinnustund sem leysir af hólmi Bakvörð sem viðveruskráningarkerfi Fjarðabyggðar.

    Bæjarráð samþykkir samning fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra undirritun samnings.

  4. 4. Uppfærsla á OneCrm kerfum og innleiðing á upplýsingagátt

    Mál 1511049 Allur ferill málsins

    Farið yfir innleiðingu íbúagáttar Fjarðabyggðar og næstu skref í rafrænni þjónustu með rafrænum eyðublöðum. Framlagt minnisblað. Gert er ráð fyrir að íbúagátt verði uppfærð í desember og ný rafræn eyðublöð verði tekin í gagnið á árinu 2017.

    Bæjarráð samþykkir uppfærsluna og felur bæjarstjóra undirritun skjala vegna innleiðingar.

  5. 5. Reglur um upplýsingatæknimál

    Mál 1310150 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að verklagsreglum vegna aðgangs þjónustuaðila

    að upplýsingatæknikerfum hjá Fjarðabyggð. Reglurnar eru byggðar á fyrirliggjandi öryggiskröfum og ráðstöfunum í upplýsingatæknimálum.

    Bæjaráð samþykkir fyrir sitt leyti og vísar uppfærðum reglum til staðfestingar bæjarstjórnar.

  6. 6. Málefni flóttafólks 2015

    Mál 1406154 Allur ferill málsins

    Bréf velferðarráðuneytisins til bæjarráðs Fjarðabyggðar er varðar tilraunaverkefni um móttöku flóttafólks. Jafnframt lagðar fram leiðbeinandi reglur til sveitarfélaga, frá því í maí 2014, um móttöku flóttafólks.

    Vísað til frekari vinnslu á fjölskyldusviði og til umfjöllunar í félagsmálanefnd.

  7. 7. Rekstur Félagslundar 2016

    Mál 1605020 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir á grundvelli fyrirspurna að auglýsa félagsheimilið Félagslund laust til umsóknar á grundvelli "reglna um styrki í tengslum við atvinnuuppbyggingu vegna endurgerðar gamalla húsa og fasteigna í eigu Fjarðabyggðar."

    Forstöðumanni stjórnsýslu, í samráði við bæjarstjóra, falið að auglýsa félagsheimilið Félagslund laust til umsóknar sbr. samþykktina.

  8. 8. Meet the Locals samstarfssamningur

    Mál 1611129 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað markaðs- og kynningarfulltrúa þar sem lagt er til að áfram verði tekið þátt í klasaverkefninu "Meet the locals". Um er að ræða árlegt gjald kr. 30.000.

    Bæjarráð samþykkir að taka þátt í klasaverkefninu.

  9. 9. N4 endurnýjun samnings um sjónvarpsefni árið 2017

    Mál 1611134 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað markaðs- og kynningarfulltrúa vegna beiðni um áframhaldandi stuðning við þáttagerð á N4.

    Bæjarráð samþykkir áframhaldandi stuðning við þáttagerðina með sama hætti og var á árinu 2016.

  10. 10. Kröfur vegna launagreiðslur hlutastarfandi sjúkraflutningamanna

    Mál 1609163 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fer yfir stöðu viðræðna við hlutastarfandi sjúkraflutningamenn um kjör.

    Bæjarstjóra falið að ganga frá samningi við hlutastarfandi sjúkraflutningamenn í samræmi við samþykkt fundar.

  11. 11. Kjara- og launamál 2016

    Mál 1606106 Allur ferill málsins

    Nýgerður kjarasamningur Félags grunnskólakennara ræddur. Bæjarstjóri gerir grein fyrir fundi sveitarfélaga sem haldinn var 1. desember sl.með samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga.

  12. 12. Framtíðarskipan húsnæðismála

    Mál 1612002 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga um vinnu við gerð húsnæðisáætlana vegna íbúðarhúsnæðis og nýtingu áætlana sem stjórntækis í skipan húsnæðismála.

    Lagt fram til kynningar og vísað til félagsmálanefndar.

  13. 13. Olíubirgðastöð í Reyðarfirði

    Mál 2009-02-13-215 Allur ferill málsins

    TRÚNAÐARMÁL.

    Farið yfir stöðu mála sem tengjast olíubirgðastöð í Reyðarfirði.

  14. 14. Sveitarstjórnarþing Evrópuráðsins

    Mál 1611128 Allur ferill málsins

    Sveitarstjórnarþing Evrópuráðsins er pólitískur samstarfsvettvangur evrópskra sveitarfélaga og svæða. Ísland á þrjá fulltrúa á þinginu sem stjórn sambandsins tilnefnir til fjögurra ára í senn.

    Framlögð kynning á þinginu og helstu málum sem það fjallaði um á haustþingi sínu í október sl., svo sem aðgerðir til að berjast gegn spillingu á sveitarstjórnarstigi og öfgahyggju meðal íbúa, kynjaða fjárhagsáætlunargerð og hvernig sé hægt að auka þátttöku kvenna í sveitarstjórnarmálum.

  15. 15. Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2016

    Mál 1603017 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, nr. 844 frá 25.nóvmeber 2016, lögð fram til kynningar.

  16. 16. Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2016

    Mál 1601200 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð stjórnar samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 24. nóvember sl.

  17. 17. Fræðslunefnd - 34

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til kynningar fundargerð fræðslunefndar nr. 34 frá 30. nóvember 2016.