Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 501

12. desember 2016, kl. 08:30 til 10:20, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Valdimar O Hermannsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 213 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 12.desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. 735 Hafnarsvæði Eskifirði - hugmyndavinna

    Mál 1603089 Allur ferill málsins

    Í framhaldi af vinnu við skoðun á mögulegri staðsetningu hafnarkants í tengslum við nýtt fiskiðjuver Eskju, óskar hafnarstjórn eftir því við bæjarstjórn að hún feli eigna- skipulags- og umhverfisnefnd að hefja vinnu við þær breytingar sem gera þarf á aðal- og deiliskipulagi svæðisins. Í hugmyndinni er gert ráð fyrir 90 metra kanti austast á fyllingunni með stækkunarmöguleika til vesturs um aðra 90 metra. Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar.

  2. 2. Fiðurfé - drög að samþykkt

    Mál 1609078 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að samþykkt um fiðurfé utan skipulagðra landbúnaðarsvæða í Fjarðabyggð ásamt minnisblaði umhverfisstjóra.

    Eigna-, skipulags- og umhverfissnefnd hefur samþykkt drögin fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarstjórnar til endanlegrar afgreiðslu í tveimur umræðum.

  3. 3. Þjónusta í þéttbýli 2016

    Mál 1611111 Allur ferill málsins

    Lagður fram samningur Vegagerðarinnar og Fjarðabyggðar um þjónustu gatna í þéttbýli sveitarfélagsins Fjarðabyggðar árið 2016.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt samninginn fyrir sitt leyti og vísað honum til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráði. Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  4. 4. Reglur um fjárhagsaðstoð

    Mál 1009112 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd hefur yfirfarið reglur um fjárhagsaðstoð og leggur til ákveðnar breytingar á grein 22 sem fjallar um greiðslu sérfræðiaðstoðar. Bæjarráð samþykkir breytingar á reglum og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.

  5. 5. Áhrif nýrrar húsnæðislöggjafar gagnvart sveitarfélögum

    Mál 1608100 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd hefur tekið til umræðu drög að reglum um sérstakan húsnæðisstuðning. Reglurnar taka mið af leiðbeinandi reglum sambandsins og samþykktum reglum Fjarðabyggðar um sérstakar húsaleigubætur. Félagsmálanefnd hefur samþykkt drögin fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarráðs til frekari umræðu. Bæjarráð felur fjármálastjóra að kostnaðargreina reglurnar og leggja minnisblað fyrir bæjarstjórn. Reglunum vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

  6. 6. Öldungaráð

    Mál 1610001 Allur ferill málsins

    Fræðslustjóri hefur lagt fyrir félagsmálanefnd drög að samþykkt fyrir Öldungaráð Fjarðabyggðar. Félagsmálanefnd hefur yfirfarið drögin og samþykkt þau með lítilsháttar breytingum og vísar þeim til bæjarráðs til frekari umræðu og staðfestingar. Bæjarráð samþykkir lítilsháttar breytingar á 2.gr. og 3.gr. sbr. umræður á fundinum. Samþykkt fyrir öldungaráð er vísað til samþykktar bæjarstjórnar.

  7. 7. Aðstaða til líkamsræktunar - bréf frá íbúum Breiðabliks

    Mál 1611102 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd hefur samþykkt beiðni íbúa í Breiðabliki um aðstöðu til líkamsræktar, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Bæjarráð vísar til fjölskyldusviðs frekari vinnu við dagvist aldraðra í Breiðabliki, í tengslum við samþykkt þessa.

  8. 8. Fundargerðir stjórnar SSA 2016

    Mál 1601213 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar SSA frá 29.nóvember 2016, lögð fram til kynningar.

  9. 9. Skólamáltíðir í leik- og grunnskólum í Fjarðabyggð

    Mál 1611106 Allur ferill málsins

    Fræðslunefnd tók til umræðu á síðasta fundi, fyrirkomulag á skólamáltíðum í skólum Fjarðabyggðar. Meðal annars var rætt hvort samræma ætti matseðla, hvort og hvernig yrði staðið að útboði á skólamáltíðum í grunnskólum. Fræðslunefnd lagði til að matseðlar verði samræmdir og þá litið til Akureyrar sem fyrirmyndar. Fræðslunefnd lagði jafnframt til að skólamáltíðir í grunnskólunum á Stöðvarfirði, Reyðarfirði, Eskifirði og Norðfirði verði boðnar út ásamt ávaxtanesti í vor. Bæjarráð felur fjármálastjóra og fræðslustjóra að vinna útboðsgögn og leggja fyrir bæjarráð að nýju.

  10. 10. Jólasjóður

    Mál 1311103 Allur ferill málsins

    Fjarðabyggð mun ekki senda út hefðbundið jólakort á þessu ári og nýtir fjármagn til eflingar jólasjóðsins.

  11. 11. Fjárlagafrumvarp 2016

    Mál 1612049 Allur ferill málsins

    Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir yfir áhyggjum af skertu framlagi til margra ríkisstofnana og verkefna á Austurlandi sem koma fram í boðuðu fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2017. Bæjarráð heitir á þingmenn kjördæmisins að þeir komi að því að leiðrétta hlut Austurlands í útgjöldum ríkisins í frumvarpinu og tryggja eðlilegan rekstur ríkisstofnana.

  12. 12. Frá UT-deginum-Nýjar persónuverndarreglur o.fl.

    Mál 1612047 Allur ferill málsins

    Unnið er að skoðun á framsetningu og aðgangi á persónugreinarlegum upplýsingum í Mentor. Vakin er athygli á gildistöku nýrra laga um persónuvernd. Lagt fram til kynningar.

  13. 13. Samningur um þjónustu við Netorku - framlenging til 5 ára

    Mál 1612056 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að samningi við Netorku um framlengingu samnings frá 25. apríl 2007 til fimm ára. Samningur liggur fyrir fundi í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd síðar í dag. Bæjarráð samþykkir samning fyrir sitt leyti.

  14. 14. Raforkukaup Rafveitu Reyðarfjarðar 2017

    Mál 1611018 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að samningum um orkukaup Rafveitu Reyðarfjarðar af Landsvirkjun. Samningur liggur fyrir fundi í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd síðar í dag. Bæjarráð samþykkir samning fyrir sitt leyti.

  15. 15. Ósk um aðild að rekstrar- og uppbyggingarsamning

    Mál 1611084 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur beiðni frá Sjósportklúbbi Austurlands sem óskar eftir að gerast aðili að rekstrar- og uppbyggingarsamningum Fjarðabyggðar. Íþrótta- og tómstundanefnd hitti forsvarsmenn Sjósportklúbbsins sem kynntu fyrir nefndinni starfsemi félagsins. Íþrótta- og tómstundanefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, aðkomu Sjósportklúbbs Austurlands að rekstrar- og uppbyggingarsamningum Fjarðabyggðar og vísar málinu til bæjarráðs. Bæjarráð tekur vel í erindið og felur bæjarstjóra að fara yfir málið fyrir næsta fund.

  16. 16. Húsnæðisáætlanir,stofnframlög og skyldur sveitarfélaga gagnvart fötluðu fólki

    Mál 1612051 Allur ferill málsins

    Þroskahjálp vekur athygli á skyldum sveitarfélaga gagnvart fötluðu fólki. Lagt fram til kynningar og vísað til félagsmálanefndar.

  17. 17. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 162

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 162 frá 5.desember 2016, lögð fram til kynningar.

    1. 17.1 Tillaga að fyrirkomulagi jarðgerðar1606041
    2. 17.2 Tré til nytja1611107
    3. 17.3 Fiðurfé - drög að samþykkt1609078
    4. 17.4 Beiðni um styrk vegna samstarfsverkefnisins"Bændur græða landið" á árinu 20161611103
    5. 17.5 Lagfæring á veg frá Viðfirði út að Barðsnesi sunnan Norðfjarðar1610002
    6. 17.6 Efnistaka í Reyðarfirði1608111
    7. 17.7 Þjónusta í þéttbýli 20161611111
    8. 17.8 Kynning á tillögu að kerfisáætlun 2016-2025 og umhverfisskýrslu1611077
    9. 17.9 Svæðisskipulag fyrir Austurland1602151
    10. 17.10 Framboð á lóððum vegna uppbyggingar almennra íbúða1611073
    11. 17.11 750 Hafnarsvæði - byggingarleyfi1612005
    12. 17.12 740 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027 breyting - stækkun reits O5 á Kirkjubólseyrum í Norðfirð1510155
    13. 17.13 740 - Deiliskipulag Kirkjuból, hesthúsa og búfjársvæði1306026
    14. 17.14 735 - Deiliskipulag Hlíðarenda1502042
    15. 17.15 740 deiliskipulag fólkvangs Neskaupstaðar1606100
    16. 17.16 755 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027 breyting, þéttbýlisuppdráttur fyrir Stöðvarfjörð, reitur I11611050
    17. 17.17 750 Skólavegur 14 - Framkvæmdir á lóðmörkum1609122
  18. 18. Hafnarstjórn - 170

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 170 frá 5.desember 2016, lögð fram til kynningar.

    1. 18.1 Fundargerðir CI á árinu 20161601011
    2. 18.2 Sölusýning skemmtiferðaskipa á Miami 13. til 16. mars 20171611100
    3. 18.3 Sölusýning skemmtiferðaskipa í Hamborg 6. til 8. september 20171611126
    4. 18.4 Hafnargjöld - smábatahöfnin á Eskifirði1611086
    5. 18.5 Efnistaka í Reyðarfirði1608111
    6. 18.6 Beiðni um stöðuleyfi fyrir bátadælu á bæjarbryggju á Fáskrúðsfirði1611132
    7. 18.7 735 Hafnarsvæði Eskifirði - hugmyndavinna1603089
    8. 18.8 Umsókn um leyfi fyrir forðatanki utan lýsisþróar á Fáskrúðsfirði1611133
    9. 18.9 Ósk um lengingu á stálþili við Egersund á Eskifirði1504173
    10. 18.10 Olíubirgðastöð í Reyðarfirði2009-02-13-215
  19. 19. Íþrótta- og tómstundanefnd - 30

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 30 frá 8. desember 2016, lögð fram til kynningar.

    1. 19.1 Ósk um aðild að rekstrar- og uppbyggingarsamning
    2. 19.2 Vinna við forvarnir fyrir árið 2017
    3. 19.3 Heilsueflandi samfélag - Fjarðabyggð
    4. 19.4 Íþróttamaður Fjarðabyggðar 2016
  20. 20. Menningar- og safnanefnd - 28

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og safnanefndar, nr. 28 frá 8. desember 2016, lögð fram til kynningar.

    1. 20.1 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - Menningar- og safnanefnd
    2. 20.2 Fundargerðir Héraðsskjalasafns Austfirðinga 2016
    3. 20.3 Menningarmiðstöðvar á Austurlandi
    4. 20.4 Gjaldskrá minjasafna 2017
    5. 20.5 Ósk um afnot af Valhöll þann 26.desember
    6. 20.6 Uppbygging sýningarsvæðis í útbæ Eskifjarðar
    7. 20.7 Uppbyggingarsjóður Austurlands - breyttar úthlutunarreglur og leiðbeiningar
  21. 21. Félagsmálanefnd - 90

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 90 frá 6.desember 2016, lögð fram til kynningar.

    1. 21.1 Aðstaða til líkamsræktunar - bréf frá íbúum Breiðabliks1611102
    2. 21.3 Félagsleg íbúð fyrir tímabundna neyðarvistun1611090
    3. 21.4 Vinna við forvarnir fyrir árið 20171611121
    4. 21.5 Gagnaöflun jafnréttisstofu um stöðu og þróun jafnréttismála hjá sveitarfélögum1611122
    5. 21.6 Öldungaráð1610001
    6. 21.7 Áhrif nýrrar húsnæðislöggjafar gagnvart sveitarfélögum1608100
    7. 21.8 Reglur um fjárhagsaðstoð1009112
    8. 21.9 Málefni flóttafólks 20151406154
    9. 21.10 Framtíðarskipan húsnæðismála1612002
  22. 22. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2016

    Mál 1603122 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar, nr. 69 frá 7.desember 2016, lögð fram til kynningar.