Hafnargjöld - smábatahöfnin á Eskifirði
Mál 1611086 Fyrst á dagskrá 5. desember 2016, síðast 15. desember 2016. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Hafnarstjórn.
Í heiti málsins: EskifjörðurHafnir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Hafnarstjórn, fundur 170 liður 4
Bréf frá Georg Friðrik Kemp Halldórssyni dags. 16. nóvember 2016 þar sem óskað er eftir lækkun hafnargjalda fyrir bát sem hann á.
Hafnarsjóður hefur lagt í það umtalsverða fjármuni að skapa góða aðstöðu fyrir eigendur smábáta í smábátahöfnum sínum. Hefur þetta mælst vel fyrir og má merkja það meðal annars til fjölgunar báta, þar á meðal svokallaðra hobbýbáta eða skemmtibáta. Einu breytir hversu stór smábáturinn er sem nýtir aðstöðuna, það pláss verður ekki nýtt af öðrum á meðan.
Lesa alla bókunina (101 orð til viðbótar)
Þá eiga þeir aðilar sem hafa yfir að ráða meðfærilegum bátum og tiltölulega auðvelt er að taka upp, þann möguleika að gera það. Með því losna þeir við greiðslu hafnargjalda, þar sem ekki hefur verið tekið upp gjald fyrir stöðu báta í uppsátri líkt og gert er á sumum öðrum stöðum.
Að koma upp góðri aðstöðu kostar sem og að reka slíka aðstöðu. Verður að teljast eðlilegt að notendur greiði fyrir afnotin og er gjald það sem Fjarðabyggðarhafnir innheimta í lægri kanti þess sem gerist víða annarsstaðar.
Á grundvelli framanritaðs telur hafnarstjórn ekki unnt að verða við beiðni um lækkun hafnargjalda.
-
Bæjarráð, fundur 501 liður 18.4
Fundargerðin „Hafnarstjórn - 170“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 213 liður 5.4
Fundargerðin „Hafnarstjórn - 170“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.