Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 502

19. desember 2016, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Valdimar O Hermannsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 214 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson, Elvar Jónsson, Esther Ösp Gunnarsdóttir,Eydís Ásbjörnsdóttir.

    Fundargerð bæjarráðs frá 19. desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    14. liður fundargerðar.

    Skipun stjórnar einkahlutafélags um skipulagðar samgöngur á Austurlandi. Lagt er til að skipuð verði þriggja manna stjórn sem í sitja bæjarstjórar Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðs ásamt verkefnastjóra sveitarstjórnarmála hjá Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi. Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að fela Páli Björgvin Guðmundssyni bæjarstjóra að sitja í stjórn félagsins fyrir hönd Fjarðabyggðar.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2016 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1602052 Allur ferill málsins

    Framlagt sem trúnaðarmál málaflokkayfirlit um rekstur málaflokka og framkvæmdir janúar - október 2016, launakostnað og skatttekjur janúar - nóvember 2016.

    Einnig útreikningur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á endanlegu útgjaldajöfnunarframlagi ársins 2016.

  2. 2. Kjara- og launamál 2016

    Mál 1606106 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað stjórnsýslu- og þjónustusviðs um áhrif nýs kjarasamings Félags grunnskólakennara á fjárhagsáætlun ársins 2016 og ársins 2017. Kostnaðarauki á árinu 2016 nemur tæpum 4 milljónum kr. og um 33. milljónum kr. á árin 2017.

    Bæjarráð felur fjármálastjóra að vinna viðauka fyrir árið 2017 á grunni minnisblaðsins sem lagður verður fyrir bæjarstjórn á nýju ári.

  3. 3. Frá UT-deginum-Nýjar persónuverndarreglur o.fl.

    Mál 1612047 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga um innleiðingu á nýjum reglum um persónuvernd þar sem m.a. kom fram að hver stofnun og hvert sveitarfélag þarf að setja sér verklagsreglur, samþykkja skýra persónuverndarstefnu, sjá til þess að persónuvernd sé innbyggð í nýjan hugbúnað og hafa á að skipa persónuverndarfulltrúa.

    Vísað til bæjarritara til vinnslu.

  4. 4. Uppbygging ljósleiðaraneta í Fjarðabyggð og ríkisaðstoðarreglur EES

    Mál 1411143 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað merkt trúnaðarmál um stöðu ljósleiðaravæðingar dreifbýlis í Fjarðabyggð og umsóknir um styrki til verkefnisins á árinu 2017. Tekið fyrir að nýju á næsta fundi bæjarráðs.

  5. 5. Leigulönd í Fjarðabyggð

    Mál 1610078 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögu umhverfisstjóra um gjaldskrá fyrir leigulönd í Fjarðabyggð fyrir sitt leyti. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarráðs.

    Bæjarráð staðfesti gjaldskrá.

  6. 6. 750 Notkun fjöleignarhússins að Búðavegi 35

    Mál 1510182 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf eiganda neðri hæðar Búðavegar 35 þar sem gerð er krafa um greiðslu lögfræðikostnaðar. Bæjarráð hafnar greiðslu kostnaðarins.

    Bæjarstjóra falið að svara erindinu í samræmi við bókun bæjarráðs.

  7. 7. 735 Strandgata 12 - lóðamál

    Mál 1301195 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt fyrir sitt leyti, að samkomulag verði gert um lóðina Strandgötu 12 á Eskifirði og vísar afgreiðslu til bæjarráðs.

    Lögð fram drög að samningi vegna lóðarinnar.

    Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  8. 8. 6. mál til umsagnar frumvarp til laga um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins

    Mál 1612073 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um frumvarp til laga um breytingu á Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins.

    Bæjarráð styður frumvarpið og vísar til bæjarritara.

  9. 9. Áfangastaðurinn Austurland - innleiðing

    Mál 1612087 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað og gögn um 4. áfanga í verkefninu áfangastaðurinn Austurland en hann lýtur að innleiðingu verkefnisins og samhæfingu aðila á svæðinu í markaðssetningu fjórðungsins útávið sem áfangastaðar.

    Bæjarráð samþykkir tillögu um aðkomum sveitarfélagsins að vinnu við 4. áfanga.

  10. 10. Ósk um aðild að rekstrar- og uppbyggingarsamning

    Mál 1611084 Allur ferill málsins

    Frá fyrri fundi bæjarráðs. Fyrir liggur beiðni frá Sjósportklúbbi Austurlands sem óskar eftir að gerast aðili að rekstrar- og uppbyggingarsamningum Fjarðabyggðar. Íþrótta- og tómstundanefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, aðkomu Sjósportsklúbbs Austurlands að rekstrar- og uppbyggingarsamningum Fjarðabyggðar og vísar málinu til bæjarráðs.

    Bæjarráð samþykkir að gerður verði rekstrar- og uppbyggingarsamningur við Sjósportsklúbb Austurlands fyrir árið 2017.

  11. 11. Menningarstefna

    Mál 1306017 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar drög að starfslýsingu forstöðumanns menningarstofu auk minnisblaðs forstöðumanns stjórnsýslu um tillögur að fyrirkomulagi stjórnsýslu menningarstofu.

    Tekið fyrir að nýju í bæjarráði í janúar 2017.

  12. 12. Þjónustu- og framkvæmdamiðstöð

    Mál 1609128 Allur ferill málsins

    Kynnt breyting á skipulagi þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar. Stjórnun þjónustu- og framkvæmdamiðstöðva á Eskifirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði heyrir undir einn bæjarverkstjóra frá og með 1. desember 2016.

  13. 13. Kynning á tillögu að kerfisáætlun 2016-2025 og umhverfisskýrslu

    Mál 1611077 Allur ferill málsins

    Kynningarfundur með fulltrúum Landsnets á kerfisáætlun verður haldinn þriðjudaginn 3. janúar 2017 á Gistihúsinu á Egilsstöðum frá kl. 16-18. Staðfesta þarf þátttöku fyrir 29. desember nk.

  14. 14. Stofnun einkahlutafélags um almenningssamgöngur

    Mál 1612092 Allur ferill málsins

    Kynntur tölvupóstur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi um fyrirhugaða stofnun einkahlutafélags um skipulagðar samgöngur á Austurlandi, í upphafi nýs árs. Þriggja manna stjórn skipi félagið og í henni séu bæjarstjórar Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðs ásamt verkefnastjóra sveitarstjórnarmála hjá Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi. Framkvæmdastjóri verði framkvæmdastjóri Austurbrúar.

  15. 15. Kauptilboð í Hæðargerði 6 Reyðarfirði

    Mál 1612050 Allur ferill málsins

    Framlagt kauptilboð í Hæðagerði 6 á Reyðarfirði auk verðhugmynda fasteignasala ásamt grófu mati á kostnaði við lagfæringu húsnæðis.

    Bæjarráð samþykkir að ganga að kauptilboði frá Tveimur stubbum ehf. án fyrirvara og felur bæjarstjóra undirritun gagna vegna sölunnar.

  16. 16. Verðfyrirspurn fyrir Bæjarskrifstofur Hafnargötu 2 2016

    Mál 1610205 Allur ferill málsins

    Framlagður til kynningar verksamningur um ræstingu bæjarskrifstofu á Reyðarfirði.

  17. 17. Verðfyrirspurn fyrir leikskólann Kærabæ 2016

    Mál 1610204 Allur ferill málsins

    Framlagður til kynningar verksamningur um ræstingu Leikskólans Kærabæjar.

  18. 18. Verðfyrirspurn fyrir leikskólann Eyrarvelli 2016

    Mál 1610203 Allur ferill málsins

    Framlagður til kynningar verksamningur um ræstingu Leikskólans Eyrarvalla.

  19. 19. Verðfyrirspurn fyrir leikskólann Lyngholt 2016

    Mál 1610202 Allur ferill málsins

    Framlagður til kynningar verksamningur um ræstingu Leikskólans Lyngholts.

  20. 20. Verðfyrirspurn fyrir Leikskólann Dalborg 2016

    Mál 1610201 Allur ferill málsins

    Framlagður til kynningar verksamningur um ræstingu Leikskólans Dalborgar.

  21. 21. Heimsóknartímar á hjúkrunarheimili

    Mál 1612090 Allur ferill málsins

    TRÚNAÐARMÁL.

    Framlagt bréf vegna Hulduhlíðar.

    Vísað til kynningar félagsmálanefndar og úrvinnslu sviðsstjóra.