Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

Ósk um aðild að rekstrar- og uppbyggingarsamning

Mál 1611084 Fyrst á dagskrá 12. desember 2016, síðast 5. janúar 2017. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2016

    Bæjarráð, fundur 501 liður 15

    Fyrir liggur beiðni frá Sjósportklúbbi Austurlands sem óskar eftir að gerast aðili að rekstrar- og uppbyggingarsamningum Fjarðabyggðar. Íþrótta- og tómstundanefnd hitti forsvarsmenn Sjósportklúbbsins sem kynntu fyrir nefndinni starfsemi félagsins. Íþrótta- og tómstundanefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, aðkomu Sjósportklúbbs Austurlands að rekstrar- og uppbyggingarsamningum Fjarðabyggðar og vísar málinu til bæjarráðs. Bæjarráð tekur vel í erindið og felur bæjarstjóra að fara yfir málið fyrir næsta fund.

  2. Bæjarstjórn, fundur 213 liður 2.15

    Fundargerðin „Bæjarráð - 501“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarráð, fundur 502 liður 10

    Frá fyrri fundi bæjarráðs. Fyrir liggur beiðni frá Sjósportklúbbi Austurlands sem óskar eftir að gerast aðili að rekstrar- og uppbyggingarsamningum Fjarðabyggðar. Íþrótta- og tómstundanefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, aðkomu Sjósportsklúbbs Austurlands að rekstrar- og uppbyggingarsamningum Fjarðabyggðar og vísar málinu til bæjarráðs.

    Bæjarráð samþykkir að gerður verði rekstrar- og uppbyggingarsamningur við Sjósportsklúbb Austurlands fyrir árið 2017.

  4. 2017

    Bæjarstjórn, fundur 214 liður 1.10

    Fundargerðin „Bæjarráð - 502“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is