Bæjarstjórn, fundur 214
5. janúar 2017, kl. 16:00 til 17:50, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (10)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
- Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
- Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, aðalmaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, aðalmaður
- Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Dagskrá
-
1. Bæjarráð - 502
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson, Elvar Jónsson, Esther Ösp Gunnarsdóttir,Eydís Ásbjörnsdóttir.
Fundargerð bæjarráðs frá 19. desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
14. liður fundargerðar.
Skipun stjórnar einkahlutafélags um skipulagðar samgöngur á Austurlandi. Lagt er til að skipuð verði þriggja manna stjórn sem í sitja bæjarstjórar Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðs ásamt verkefnastjóra sveitarstjórnarmála hjá Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi. Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að fela Páli Björgvin Guðmundssyni bæjarstjóra að sitja í stjórn félagsins fyrir hönd Fjarðabyggðar.
- 1.1 Rekstur málaflokka 2016 - TRÚNAÐARMÁL1602052
- 1.2 Kjara- og launamál 20161606106
- 1.3 Frá UT-deginum-Nýjar persónuverndarreglur o.fl.1612047
- 1.4 Uppbygging ljósleiðaraneta í Fjarðabyggð og ríkisaðstoðarreglur EES1411143
- 1.5 Leigulönd í Fjarðabyggð1610078
- 1.6 750 Notkun fjöleignarhússins að Búðavegi 351510182
- 1.7 735 Strandgata 12 - lóðamál1301195
- 1.8 6. mál til umsagnar frumvarp til laga um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins1612073
- 1.9 Áfangastaðurinn Austurland - innleiðing1612087
- 1.10 Ósk um aðild að rekstrar- og uppbyggingarsamning1611084
- 1.11 Menningarstefna1306017
- 1.12 Þjónustu- og framkvæmdamiðstöð1609128
- 1.13 Kynning á tillögu að kerfisáætlun 2016-2025 og umhverfisskýrslu1611077
- 1.14 Stofnun einkahlutafélags um almenningssamgöngur1612092
- 1.15 Kauptilboð í Hæðargerði 6 Reyðarfirði1612050
- 1.16 Verðfyrirspurn fyrir Bæjarskrifstofur Hafnargötu 2 20161610205
- 1.17 Verðfyrirspurn fyrir leikskólann Kærabæ 20161610204
- 1.18 Verðfyrirspurn fyrir leikskólann Eyrarvelli 20161610203
- 1.19 Verðfyrirspurn fyrir leikskólann Lyngholt 20161610202
- 1.20 Verðfyrirspurn fyrir Leikskólann Dalborg 20161610201
- 1.21 Heimsóknartímar á hjúkrunarheimili1612090
-
2. Bæjarráð - 503
Fundargerðir teknar saman til umfjöllunar og afgreiðslu
Fundargerð bæjarráðs frá 2. janúar s.l. staðfst með 9 atkvæðum.
- 2.1 Húsnæði Sólvalla í Neskaupstað1612142
- 2.2 740 Afnot af gamla leikskólanum1612016
- 2.3 Uppbygging ljósleiðaraneta í Fjarðabyggð og ríkisaðstoðarreglur EES1411143
- 2.4 Vegna samnings um lífeyrisskuldbindingar hjúkrunarheimila sem rekin eru af sveitarfélögum1612113
- 2.5 Hækkun mótframlags launagreiðenda i A deild Brúar lífeyrissjóðs1610048
- 2.6 Kjara- og launamál 20161606106
- 2.7 Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 20161603017
- 2.8 Stjórnkerfisnefnd 20171612145
- 2.9 Uppsögn á starfi félagsmálastjóra1701003
- 2.10 Málefni Reykjavíkurflugvallar1511126
-
3. Fiðurfé - drög að samþykkt
Mál 1609078 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi úr hlaði samþykkt um fiðurfé utan skipulagðra landbúnaðarsvæða, til seinni umræðu.
Til máls tók Valdimar O Hermannsson.
Bæjarstjórn samþykktir með 9 atkvæðum samþykkt um fiðurfé utan skipulagðra landbúnaðarsvæða.
-
4. Vegna samnings um lífeyrisskuldbindingar hjúkrunarheimila sem rekin eru af sveitarfélögum
Mál 1612113 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að veita bæjarstjóra fullnaðarheimild til samningagerðar og undirritunar gagna vegna yfirtöku ríkisins á lífeyrisskuldbindingum hjúkrunarheimilanna Hulduhlíðar og Uppsala.
-
5. Stjórnkerfisnefnd 2017
Mál 1612145 Allur ferill málsins
Tillögu um skipan stjórnkerfisnefndar vísað frá bæjarráði.
Forseti bæjarstjórnar fylgdi tillögu bæjarráðs úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að bæjarráð sveitarfélagsins verði skipað sem stjórnkerfisnefnd til þess að fjalla um, endurskoða og koma með tillögur að breytingum á skipuriti sveitarfélagsins, verði það niðurstaða bæjarráðs. Markmið með endurskoðuninni er að skoða hvort auka megi skilvirkni, hagkvæmni og framþróun í rekstri og starfsemi Fjarðabyggðar. Þá hefur bæjarráð heimild til að leita til sérfræðinga og ráðgjafa á þessu sviði vegna tillögugerðar.
-
6. Almenningssamgöngur - ungmennaráð
Mál 1606037 Allur ferill málsins
Til máls tóku Katrín Pálsdóttir og Jóhanna Stefánsdóttir fulltrúar ungmennaráðs, Jón Björn Hákonarson, Dýrunn Pála Skaftadóttir.
Lagt til að máli verði vísað til bæjarráðs og eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
Samþykkt samhljóða
-
7. "Fjallahjólapark" í Oddskarði
Mál 1701015 Allur ferill málsins
Til máls tóku Daði Þór Jóhannsson fulltrúi ungmennaráðs, Eydís Ásbjörnsdóttir,
Lagt til að máli sé vísað til íþrótta- og tómstundanefndar og bæjarráðs.
Samþykkt samhljóða.
-
8. Loftræsting í íþróttahúsum
Mál 1701018 Allur ferill málsins
Til máls tóku Björn Leví Ingvarsson fulltrúi ungmennaráðs, Ragnar Sigurðsson.
Lagt er til að máli sé vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
Samþykkt samhljóða.
-
9. Bætt tónlistaraðstaða fyrir ungmenni
Mál 1701017 Allur ferill málsins
Til máls tóku Anya Shaddock fulltrúi ungmennaráðs, Pálína Margeirsdóttir, Dýrunn Pála Skaftadóttir.
Lagt til að máli sé vísað til fræðslunefndar og menningar- og safnanefndar.
Samþykkt samhljóða.
-
10. Aukið fé til skóla og félagsmiðstöðva
Mál 1701031 Allur ferill málsins
Til máls tóku Sara Rut Vilbergsdóttir fulltrúi ungmennaráðs, Elvar Jónsson.
Lagt til að máli sé vísað til fræðslunefndar, íþrótta- og tómstundanefndar og félagsmálanefndar.
Samþykkt samhljóða.
-
11. Upphitun Fjarðabyggðarhallarinnar
Mál 1701016 Allur ferill málsins
Til máls tóku Katrín Björg Pálsdóttir og Jóhanna Lind Stefánsdóttir fulltrúar ungmennaráðs, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Ragnar Sigurðsson.
Lagt er til að málinu verði vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og íþrótta- og tómstundanefndar.
Samþykkt samhljóða.