Bæjarráð, fundur 503
2. janúar 2017, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 214 liður 2
Fundargerðir teknar saman til umfjöllunar og afgreiðslu
Fundargerð bæjarráðs frá 2. janúar s.l. staðfst með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Húsnæði Sólvalla í Neskaupstað
Mál 1612142 Allur ferill málsins
Framlagt bréf níu einstaklinga þar sem óskað er eftir að hætt verði við sölu á fyrrum húsnæði leikskólans við Blómsturvelli í Neskaupstað og þess í stað teknar upp viðræður við hópinn um leigu á húsnæðinu til atvinnustarfsemi.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindi til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar. Jafnframt er bæjarstjóra falið að ræða við bréfritara.
-
2. 740 Afnot af gamla leikskólanum
Mál 1612016 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar drög að tveimur skammtímaleigusamningum vegna húsnæðis fyrrum leikskólans Sólvalla að Blómsturvöllum í Neskaupstað.
Bæjarstjóra falið að ganga frá leigusamningum.
-
3. Uppbygging ljósleiðaraneta í Fjarðabyggð og ríkisaðstoðarreglur EES
Mál 1411143 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað merkt trúnaðarmál, um stöðu ljósleiðaravæðingar dreifbýlis í Fjarðabyggð og umsóknir um styrki til verkefnisins á árinu 2017.
Bæjarráð samþykkir að sótt verði um ríkisstyrk til Fjarskiptasjóðs vegna ljósleiðaravæðingar dreifbýlis í Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði að sunnanverðu upp í gegnum Daladal og innanverðan Reyðarfjörð sunnan Sléttuár. Jafnframt verði sótt um ríkisstyrk vegna dreifbýlis á Norðfirði. Áhugi íbúa í dreifbýli á þessum svæðum verði kannaður samhliða umsókn.
Bæjarstjóra falið að kanna hjá Fjarskiptasjóði hvernig staða hringtengingar fjarskipta Norðfjarðar og Eskifjarðar standi.
Vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar til kynningar.
-
4. Vegna samnings um lífeyrisskuldbindingar hjúkrunarheimila sem rekin eru af sveitarfélögum
Mál 1612113 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur ásamt bréfi um samninga, vegna yfirtöku ríkisins á 236.000.000 kr. lífeyrisskuldbindingu hjúkrunarheimila. Jafnframt lögð fram drög að yfirlýsingu sveitarfélaga vegna samnings um yfirtökuna. Bæjarráð samþykkir að vísa til bæjarstjórnar ákvörðun um heimild til bæjarstjóra til samningagerðar vegna yfirtöku ríkisins á lífeyrisskuldbiningum hjúkrunarheimilanna Hulduhlíðar og Uppsala.
-
5. Hækkun mótframlags launagreiðenda i A deild Brúar lífeyrissjóðs
Mál 1610048 Allur ferill málsins
Framlagðir tölvupóstar frá Brú lífeyrissjóði og Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins um afturköllun á fyrirhugaðri hækkun lífeyrissjóðsframlaga 1. janúar 2017, ásamt tengdum gögnum.
Fjármálastjóra falið að gera viðauka vegna breytinga við fjárhagsáætlun 2017 og leggja fyrir fund bæjarstjórnar 19. janúar nk.
-
6. Kjara- og launamál 2016
Mál 1606106 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkti á síðasta fundi sínum um að fela fjármálastjóra að gera viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2017 vegna kjarasamnings við Félag grunnskólakennara. Nú liggja fyrir breytingar á kjarasamningi við Félag leikskólakennara, samningur við hlutastarfandi sjúkraflutningsmenn, beytingar á lífeyrisframlögum þ.m.t. afturköllun á boðaðri hækkun lífeyrissjóðsmótframlaga ásamt frágangi á skuldabréfi vegna uppgjörs á ábyrgð Fjarðabyggðar gagnvart lífeyrissjóðunum Brú-LSS og LSR. Lagt er til að þessar breytingar verði sameinaðar í einn viðauka sem komi til afgreiðslu í bæjarstjórn í janúar.
Bæjarráð samþykkir að viðauki verður lagður fyrir bæjarstjórn 19. janúar nk.
-
7. Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2016
Mál 1603017 Allur ferill málsins
Fundargerð 845. fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga, lögð fram til kynningar.
-
8. Stjórnkerfisnefnd 2017
Mál 1612145 Allur ferill málsins
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að stjórnkerfisnefnd taki til starfa.
-
9. Uppsögn á starfi félagsmálastjóra
Mál 1701003 Allur ferill málsins
Framlagt bréf félagsmálastjóra þar sem hún segir starfi sínu lausu.
Bæjarráð þakkar Sigrúnu Þórarinsdóttur félagsmálastjóra vel unnin störf fyrir sveitarfélagið og óskar henni velfarnaðar.
-
10. Málefni Reykjavíkurflugvallar
Mál 1511126 Allur ferill málsins
Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir harðlega þeirri stöðu sem málefni sjúkraflugs á Íslandi er komið í með lokun Reykjavíkurborgar á neyðarbraut flugvallarins í Reykjavík.
Þegar öryggi íbúa landsins er undir í málum eins og þessum, má aldrei gleyma að það er sameiginlega ábyrgð okkar allra að öryggi og heilsu íbúa landsins sé ekki stefnt í tvísýnu. Sveitarfélagið Fjarðabyggð hefur axlað ábyrgð sína í þessum málum með aðkomu sinni og aðila í heimabyggð með endurbyggingu neyðarbrautar við Umdæmissjúkrahús Austurlands í Neskaupstað. Því hvetur bæjarráð Fjarðabyggðar Borgarstjórn Reykjavíkur að endurskoða ákvörðun sína um lokun neyðarbrautarinnar strax og ríkisvaldið komi að þeirri vinnu þannig að málið verði leyst til framtíðar.