Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

Stjórnkerfisnefnd 2017

Mál 1612145 Fyrst á dagskrá 2. janúar 2017, síðast 2. febrúar 2017. 6 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í hnotskurn

Málið fjallar um að bæjarráð starfaði sem stjórnkerfisnefnd til að endurskoða skipurit Fjarðabyggðar og koma með tillögur að breytingum á því2. Bæjarstjórn samþykkti tillögur nefndarinnar 2. febrúar 2017 og fól bæjarstjóra að framkvæma þær5.

Staðan

Bæjarstjórn samþykkti nýtt skipurit og fól bæjarstjóra að framkvæma tillögurnar, meðal annars að auglýsa störf sviðsstjóra veitusviðs og félagsmálastjóra með aðstoð fagaðila5.

Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Bæjarráð, fundur 503 liður 8

    Bæjarráð lagði til við bæjarstjórn að stjórnkerfisnefnd tæki til starfa.

    Endursögn gervigreindar

    Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að stjórnkerfisnefnd taki til starfa.

  2. Bæjarstjórn, fundur 214 liður 5

    Bæjarstjórn samþykkti með 9 atkvæðum að bæjarráð yrði skipað sem stjórnkerfisnefnd til að endurskoða skipurit sveitarfélagsins, með heimild til að leita til sérfræðinga og ráðgjafa.

    Endursögn gervigreindar

    Tillögu um skipan stjórnkerfisnefndar vísað frá bæjarráði.

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi tillögu bæjarráðs úr hlaði.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að bæjarráð sveitarfélagsins verði skipað sem stjórnkerfisnefnd til þess að fjalla um, endurskoða og koma með tillögur að breytingum á skipuriti sveitarfélagsins, verði það niðurstaða bæjarráðs. Markmið með endurskoðuninni er að skoða hvort auka megi skilvirkni, hagkvæmni og framþróun í rekstri og starfsemi Fjarðabyggðar. Þá hefur bæjarráð heimild til að leita til sérfræðinga og ráðgjafa á þessu sviði vegna tillögugerðar.

  3. Bæjarstjórn, fundur 214 liður 2.8

    Fundargerðin „Bæjarráð - 503“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  4. Bæjarráð, fundur 507 liður 11

    Bæjarráð lagði fram tillögur sínar sem stjórnkerfisnefndar sem trúnaðarmál, vísaði þeim til bæjarstjórnar og fól bæjarstjóra að ljúka endanlegri útfærslu þeirra.

    Endursögn gervigreindar

    Gögn lögð fram sem trúnaðarmál. Fyrir liggja tillögur bæjarráðs sem stjórnkerfisnefndar, um breytingar á stjórnskipulagi sveitarfélagsins. Bæjarráð samþykkir að vísa tillögum til afgreiðslu bæjarstjórnar. Þá er bæjarstjóra falið að ljúka við endanlegar útfærslur á tillögum ráðsins og leggja fyrir fund bæjarstjórnar.

  5. Bæjarstjórn, fundur 216 liður 12

    Bæjarstjórn samþykkti með 9 atkvæðum tillögur stjórnkerfisnefndar um að skipta framkvæmda-, umhverfis- og veitusviði í tvö svið og að fjölskyldusvið hefði áfram tvo jafnsetta sviðsstjóra.

    Endursögn gervigreindar

    Bæjarstjóri fylgdi tillögum að breytingum á stjórnskipulagi Fjarðabyggðar úr hlaði.

    Lögð fram tillaga bæjarráðs í greinagerð um endurskoðað skipulag stjórnsýslu Fjarðabyggðar. Bæjarráð hefur í umboði bæjarstjórnar sem stjórnkerfisnefnd unnið að skoðun stjórnsýslunnar og komið fram með tvær tillögur:

    Lesa alla bókunina (222 orð til viðbótar)

    Í fyrsta lagi að framkvæmda-, umhverfis- og veitusviði Fjarðabyggðar verði skipt upp í tvö aðskilin svið, með tveimur sviðstjórum sem yfirstjórnendum. Sviðsstjórar muni heyra undir bæjarstjóra í skipuriti. Sviðin munu annars vegar heita "Framkvæmda- og umhverfissvið" og hins vegar "Veitusvið". Lögð verði áhersla á samstarf sviðanna, s.s. er varðar innkaup, umsjón útboða og framkvæmda ásamt samnýtingu þess vinnuafls sem til staðar er á sviðunum. Þá verði starf sviðsstjóra veitusviðs auglýst sem fyrst, og fagaðili fenginn til ráðgjafar við ferlið. Um leið er starf forstöðumanns veitna ekki lengur til staðar í skipuriti sveitarfélagsins.

    Í öðru lagi leggur bæjarráð til að sviðstjórar fjölskyldusviðs verði áfram tveir; fræðslustjóri og félagsmálastjóri og jafnsettir í skipuriti sveitarfélagsins. Þegar ráðning félagsmálastjóra hefur farið fram verði félagsmálastjóra eða fræðslustjóra falið það hlutverk að samræma og samhæfa verkefni fjölskyldusviðsins með þeim hætti að fjölskyldustefna og þjónusta á vettvangi sviðsins nái fram að ganga á sem skilvirkastan hátt. Þá verði kortlög verkefni og mönnun annara sérfræðiverkefna sviðsins í heild. Þá verði starf félagsmálastjóra auglýst sem fyrst og fagaðili fenginn til ráðgjafar við ferlið.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum tillögur stjórnkerfisnefndar að endurnýjuðu skipuriti sveitarfélagsins sem og þær tillögur sem koma fram í þeirri greinagerð sem meðfylgjandi er málinu. Þá er bæjarstjóra falið að framkvæma þær tillögur og ráðstafanir sem fylgja samþykkt tillagnanna.

  6. Bæjarstjórn, fundur 216 liður 2.11

    Fundargerðin „Bæjarráð - 507“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is