Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 507

30. janúar 2017, kl. 08:30 til 10:15, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 216 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 30. janúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Lánasamningur við Íslandsbanka 2017

    Mál 1701210 Allur ferill málsins

    Lánasamningur við Íslandsbanka að upphæð 400 milljónir króna í samræmi við fyrri afgreiðslur bæjarráðs 24.janúar 2017 í máli nr. 1612126. Lánasamningur er hluti af endurfjármögnun skulda Fjarðabyggðar og nýtingu kaupréttar að Melgerði 13 Reyðarfirði. Bæjarráð samþykkir lántöku fyrir sitt leyti og vísar málinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.

  2. 2. Lánasamningur vegna 150 milljóna kr. láns

    Mál 1701212 Allur ferill málsins

    Lögð fram lánaskjöl vegna lántöku að upphæð 150 milljónir kr. við Lánasjóð sveitarfélaga i samræmi við samþyktir bæjaráðs í málum 1612126 og 1612125. Lánið er verðtryggt með breytilegum vöxtum og til 15 ára. Vextir er nú 3,4% og er lánið af eigin fé sjóðsins og uppgreiðanlegt á reglulegum gjalddögum. Bæjarráð samþykkir lántöku fyrir sitt leyti og vísar málinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.

  3. 3. Lánasamningur vegna 227 milljóna kr. láns.

    Mál 1701211 Allur ferill málsins

    Lögð fram lánaskjöl vegna lántöku að upphæð 227 milljónir við Lánasjóð sveitarfélaga i samræmi við samþykktir bæjaráðs í málum 1612126 og 1612125. Lánið er til endurfjármögnunar á skuldum Hitaveitu Fjarðabyggðar, lánið er verðtryggt og ber fasta 2,5% vexti. Bæjarráð samþykkir lántöku fyrir sitt leyti og vísar málinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.

  4. 4. Menningarstefna - Trúnaðarmál

    Mál 1306017 Allur ferill málsins

    Frá fundi bæjarráðs 19. desember sl.

    Lögð fram til kynningar drög að samstarfssamningi milli Tónlistarmiðstöðvar Austurlands og Fjarðabyggðar og drög að starfslýsingu starfsmanns Menningarstofu.

    Bæjarstjóra falin áframhaldandi vinnsla málsins.

  5. 5. Drög að reglugerð um eldvarnir og eldvarnareftirlit

    Mál 1701149 Allur ferill málsins

    Bréf Umhverfis- og auðlindaráðuneytis vegna vinnu við gerð nýrrar reglugerðar um eldvarnir og eldvarnareftirlit Óskað er umsagnar um reglugerðardrögin. Vísað til kynningar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd auk þess sem óskað er eftir umsögn frá skipulags- og byggingarfulltrúa og slökkviliðsstjóra.

  6. 6. Norðfjörður - Fylling og stálþil á þróunarsvæði

    Mál 1503131 Allur ferill málsins

    Lagt er fyrir minnisblað framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna vegna reksturs stálþils á fyllingarsvæði á Norðfirði ásamt drögum að verksamningi vegna verksins til staðfestingar í bæjarráði. Bæjarráð samþykkir verksamning og felur bæjarstjóra undirritun samnings.

  7. 7. Uppbygging ljósleiðaraneta í Fjarðabyggð og ríkisaðstoðarreglur EES

    Mál 1411143 Allur ferill málsins

    Framlögð gögn til kynningar vegna umsóknarhluta B vegna ljósleiðaravæðingar dreifbýlis, fyrirspurnir og svör og niðurstöður úthlutunar 100 milljóna. kr. viðbótarframlags til ljósleiðarvæðingar.

  8. 8. Uppfærsla á OneCrm kerfum og innleiðing á upplýsingagátt

    Mál 1511049 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað um nokkur praktísk atriði í tengslum við innleiðingu íbúagáttar og rafrænna eyðublaða. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við innihald minnisblaðs og felur stjórnsýslu- og þjónustsviði áframhaldandi vinnslu málsins. Stefnt er á að opna íbúagátt á fundi bæjarstjórnar næstkomandi fimmtudag 2.febrúar.

  9. 9. Efnistaka í Norðfjarðarflóa

    Mál 1612118 Allur ferill málsins

    Á fundi hafnarstjórnar þann 24. janúar sl. var fjallað um rannsóknarskýrslur sem gerðar eru fyrir Fjarðabyggð og heimildir til notkunar á þeim af þriðja aðila. Hafnarstjórn telur að ætli utanaðkomandi aðilar að nota rannsóknir gerðar fyrir sveitarfélagið og kostaðar af því, sé rétt að til komi greiðsla fyrir afnotin. Hafnarstjórn hvetur bæjarráð til að móta stefnu þar að lútandi. Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu hjá bæjarstjóra og framkvæmdastjóra hafna.

  10. 10. 750 Bygging hafnarkants við frystigeymslu á Fáskrúðsfirði

    Mál 1505078 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað framkvæmdastjóra hafna frá 11.janúar sl. vegna framkvæmda við hafnarkant á Fáskrúðsfirði. Eitt tilboð barst í verkið sem var yfir kostnaðaráætlun og samningar hafa lækkað tilboðsfjárhæð.

    Hafnarstjórn hefur samþykkt samkomulag við MVA ehf. að fjárhæð 249,4 milljónir kr. í framkvæmdir við Strandarbryggju á Fáskrúðsfirði.

    Bæjarráð samþykkir samkomulagið og felur bæjarstjóra undirritun þess.

    Bæjarstjóra er jafnframt falið að ganga frá svari til tilboðsgjafa sem bauð í verkið í upphafi.

  11. 11. Stjórnkerfisnefnd 2017

    Mál 1612145 Allur ferill málsins

    Gögn lögð fram sem trúnaðarmál. Fyrir liggja tillögur bæjarráðs sem stjórnkerfisnefndar, um breytingar á stjórnskipulagi sveitarfélagsins. Bæjarráð samþykkir að vísa tillögum til afgreiðslu bæjarstjórnar. Þá er bæjarstjóra falið að ljúka við endanlegar útfærslur á tillögum ráðsins og leggja fyrir fund bæjarstjórnar.

  12. 12. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 167

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 167 frá 23.janúar 2017, lögð fram til kynningar.

    1. 12.1 Garð- og malarefni1609089
    2. 12.2 Leigulönd í Fjarðabyggð1610078
    3. 12.3 755 - Fjarðarbraut 25 - Umsókn um leyfi fyrir varmadælu1701139
    4. 12.4 755 Fjarðarbraut 9 - varmadæla - byggingarleyfi1701150
    5. 12.5 735 Bakkastígur 15 - Byggingarleyfi, dyraskýli1701142
    6. 12.6 Ljósá - ofanflóðaframkvæmdir1602108
    7. 12.7 Skráning menningarminja - fornleifa, húsa og mannvirkja - skil á gögnum1701110
  13. 13. Hafnarstjórn - 172

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 172 frá 24.janúar 2017, lögð fram til kynningar.

    1. 13.1 Tilkynning um fyrirhugaða 4.000 tonna laxeldisstöð Laxar fiskeldis ehf. í sjókvíum í Fáskrúðfirði1201079
    2. 13.2 Efnistaka í Norðfjarðarflóa1612118
    3. 13.3 750 Bygging hafnarkants við frystigeymslu á Fáskrúðsfirði1505078
    4. 13.4 Umsókn um skammtímaafnot af landi við Mjóeyrarhöfn1701180
    5. 13.5 Mjóeyrarhöfn 2.áfangi - stækkun1210091
  14. 14. Fræðslunefnd - 36

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar nr. 36 frá 25.janúar 2017, lögð fram til kynningar.

    1. 14.1 Heimsókn í skólastofnanir1611105
    2. 14.2 Bætt tónlistaraðstaða fyrir ungmenni1701017
    3. 14.3 Bætt sál- og sérfræðiþjónusta í grunnskólum1701031
    4. 14.5 Niðurstöður Pisa könnunar 20151701152
  15. 15. Íþrótta- og tómstundanefnd - 31

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar nr. 31 frá 26.janúar 2017, lögð fram til kynningar.

    1. 15.1 Heimsókn í Skíðamiðstöðina í Oddskarði
    2. 15.2 Fundir Ungmennaráðs Fjarðabyggðar 2016 - 2017
    3. 15.3 "Fjallahjólapark" í Oddskarði
    4. 15.4 Bætt sál- og sérfræðiþjónusta í grunnskólum
    5. 15.5 Bætt tónlistaraðstaða fyrir ungmenni
    6. 15.6 Upphitun Fjarðabyggðarhallarinnar
    7. 15.7 Upplýsingatæknimál - þráðlaus net íþróttamannvirkja
    8. 15.8 Dekkjakurl á spark- og knattspyrnuvöllum í Fjarðabyggð
    9. 15.9 Aukin fagmennska og gæði í æskulýðsstarfi sveitarfélaga
  16. 16. Barnaverndarfundagerðir 2017

    Mál 1701220 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 70 frá 25.janúar 2017, lögð fram til kynningar.