Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

Lánasamningur um 150 m.kr. við Lánasjóð sveitarfélaga nr. 1701_03

Mál 1701212 Fyrst á dagskrá 30. janúar 2017, síðast 2. febrúar 2017. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Bæjarráð, fundur 507 liður 2

    Lánasamningur vegna 150 milljóna kr. láns

    Lögð fram lánaskjöl vegna lántöku að upphæð 150 milljónir kr. við Lánasjóð sveitarfélaga i samræmi við samþyktir bæjaráðs í málum 1612126 og 1612125. Lánið er verðtryggt með breytilegum vöxtum og til 15 ára. Vextir er nú 3,4% og er lánið af eigin fé sjóðsins og uppgreiðanlegt á reglulegum gjalddögum. Bæjarráð samþykkir lántöku fyrir sitt leyti og vísar málinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.

  2. Bæjarstjórn, fundur 216 liður 10

    Bæjarstjóri fylgdi lánasamningi úr hlaði.

    Enginn tók til máls.

    Lesa alla bókunina (172 orð til viðbótar)

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum fyrirliggjandi lánasamning við Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 150.000.000, með lokagjalddaga þann 5. febrúar 2032, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og bæjarfulltrúar hafa kynnt sér. Lánið er bundið vísitölu neysluverð og ber breytilega vexti. Bæjarstjórn samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til endurfjármögnunar á afborgunum á eldri lána sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Páli Björgvini Guðmundssyni, bæjarstjóra Fjarðabyggðar kt. 150870-4379, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Fjarðabyggðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

  3. Bæjarstjórn, fundur 216 liður 2.2

    Fundargerðin „Bæjarráð - 507“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Lánasamningur vegna 150 milljóna kr. láns

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is