Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

Niðurstöður Pisa könnunar 2015

Mál 1701152 Fyrst á dagskrá 25. janúar 2017, síðast 2. febrúar 2017. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Fræðslunefnd, fundur 36 liður 5

    Fyrir liggur minnisblað fræðslustjóra þar sem farið er yfir niðurstöðu pisa könnunar 2015 fyrir sveitarfélagið Fjarðabyggð. Fram kemur að árangur er umtalsvert betri en 2012 í þeim þremur greinum sem um ræðir. Í náttúrulæsi er árangur yfir landsmeðaltali, jafn landsmeðaltali í stærðfræðilæsi en neðan við landsmeðaltal í lesskilningi. Árangur er þó alls staðar neðan við OECD meðalal líkt og landið í heild. Bestur er árangur í stærðfræðilæsi sem er rétt við OECD meðaltalið. Fræðslunefnd gleðst yfir bættum árangri en leggur jafnframt áherslu á mikilvægi þess að skólastarfið einkennsit af fjölbreytilegum kennsluháttum í öllum námsgreinum, góðum skólabrag og vellíðan nemenda.

  2. Bæjarráð, fundur 507 liður 14.5

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 36“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarstjórn, fundur 216 liður 5.5

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 36“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is