Bæjarráð, fundur 506
23. janúar 2017, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (3)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
Starfsmenn
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 216 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson,
Fundargerð bæjarráðs frá 23.janúar s.l. að undanskildum lið nr. 9, Vinnufatnaður í grunn- og leikskólum staðfest með 9 atkvæðum.
Liður 9 tekin til afgreislu.
Ragnar Sigurðsson vék af fundi undir umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar.
Enginn tók til máls.
Dagskrárliður 9 staðfestur með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Endurfjármögnun skammtímaláns 2017
Mál 1612126 Allur ferill málsins
Framhaldið umræðu um endurfjármögnun skammtímaláns Fjarðabyggðar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að tekið verði tilboði Íslandsbanka í endurfjármögnun hluta skammtímaláns allt að 400 milljónir kr.
-
2. Kjarasamningur KÍ vegna FG - Vegvísir samstarfsnefndar SNS
Mál 1701123 Allur ferill málsins
Samstarfsnefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara hafa lokið gerð vegvísis að aðgerðaráætlun samkvæmt bókun 1 í kjarasamningi aðila frá 29. nóvember sl.
Vísað til fræðslunefndar til kynningar.
Bæjarstjóra falin vinnsla málsins fyrir næsta bæjarstjórnarfund.
-
3. Svæðisskipulag fyrir Austurland
Mál 1602151 Allur ferill málsins
Drög að starfsreglum svæðisskipulagsnefndar lagðar fram til kynningar.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti starfsreglurnar og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
4. Stjórnenda og ráðningarkerfi H3
Mál 1701131 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað stjórnsýslu- og þjónustusviðs um innleiðingu stjórnendakerfis og ráðningarkerfis sem er hluti af H3 kerfi sem stjórnendur hafa þegar aðgang að.
Bæjarráð samþykkir innleiðingu hlutaðeigandi kerfa og felur bæjarstjóra undirritun skjala tengdum innleiðingunni.
-
5. Uppbygging ljósleiðaraneta í Fjarðabyggð og ríkisaðstoðarreglur EES
Mál 1411143 Allur ferill málsins
Framlagt sem trúnaðarmál minnisblað um umsókn til Fjarskiptasjóðs fyrir ljósleiðaralagningu fyrir hluta Suðurfjarðar og Norðfjarðarsveitar. Niðurstaða í umsóknarferli fyrir A hluta er sú að Fjarðabyggð ásamt Fljótsdalshéraði, Djúpavogshreppi, Borgarfjarðarhreppi og Vopnafjarðarhreppi sækjast eftir styrkveitingum úr 65 milljóna kr. fjárveitingu sem er fyrir sambandssvæði SSA.
Bæjarráð samþykkir að sótt verði um styrki til tilgreindra svæða í B-hluta umsóknarferils. Kynningarbréf á áætlun um ljósleiðaravæðingu verður sent til aðila á svæðum.
-
6. Leigulönd í Fjarðabyggð
Mál 1610078 Allur ferill málsins
Framlagt bréf hestamanna og búfjáreigenda á Reyðarfirði sem fjallar um nýjar reglur um leigulönd í Fjarðabyggð og gjaldtöku fyrir afnot af leigulandi.
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
Bæjarráð leggur til við nefndina að haldinn verði fundur með hlutaðeigandi.
-
7. Eistnaflug 2017
Mál 1701124 Allur ferill málsins
Framlögð drög að samingi við Millifótakonfekt vegna framkvæmdar Eistnaflugs 2017.
Bæjarráð samþykkir samning og felur bæjarstjóra undirritun hans. Ákvæði samningsins eru nánast þau sömu og á síðasta ári. Vísað til kynningar í menningar- og safnanefnd.
-
8. Framtíðarmöguleikar Sköpunarmiðstöðvarinnar
Mál 1605155 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að framlenging á samningi við Sköpunarmiðstöðina á Stöðvarfirði til loka ársins 2018.
Bæjarráð samþykkir framlengingu á samningi og felur bæjarstjóra undirritun hans. Vísað til kynningar í menningar- og safnanefnd.
-
9. Vinnufatnaður í grunn- og leikskólum
Mál 1612108 Allur ferill málsins
Framlögð drög að samningi auk minnisblaðs, um útfærslu fatnaðarmála í grunn- og leikskólum Fjarðabyggðar vegna starfsmanna Afl-starfsgreinafélags, Félags opinberra starfsmanna á Austurlandi og Starfsmannafélags Fjarðabyggðar.
Bæjarráð samþykkir samning og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
10. 750 Bygging hafnarkants við frystigeymslu á Fáskrúðsfirði
Mál 1505078 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað framkvæmdastjóra hafna frá 11.janúar s.l. vegna framkvæmda við hafnarkant á Fáskrúðsfirði. Eitt tilboð barst í verkið sem var yfir kostnaðaráætlun og samningar hafa lækkað tilboðsfjárhæð.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti umsamið tilboðsverð sem fengið er að undangengnum samningum og vísar endanlegri ákvörðun um töku tilboðs til hafnarstjórnar.