Bæjarráð, fundur 505
16. janúar 2017, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 215 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráð frá 16.janúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjármál 2017
Mál 1701089 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað fjármálastjóra og tillaga um sölu og söluaðferð fjögurra fasteigna Fjarðabyggðar. Um er að ræða húsnæði Kirkjumels, Sólvalla og Stekkjargötu á Norðfirði og Hulduhlíðar á Eskifirði. Bæjarráð samþykkir að fela fjármálastjóra að auglýsa eignirnar til sölu.
-
2. Fjárhagsáætlun 2017 - viðauki 1
Mál 1612137 Allur ferill málsins
Framlagður viðauki 1 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana á árinu 2017. Í viðaukanum hefur fjármálastjóri dregið saman áhrif, á rekstur Fjarðabyggðar á árínu 2017, af nýjum og/eða breyttum kjarasamningum, breytingum á lögum lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og breytingum á mótframlög launagreiðanda til LSR og Brú-LSS. Viðaukinn er gerður í samræmi við samþykktir bæjarráðs frá 19. desember 2016 og 2. janúar 2017. Viðauka 1 við fjárhagsáætlun 2017 vísað til bæjarstjórnar til samþykktar.
-
3. Fjárhagsáætlun 2016 - viðauki 6
Mál 1701095 Allur ferill málsins
Framlagður viðauki 6 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana á árinu 2016. Í viðaukanum hefur fjármálastjóri dregið saman áhrif af úthlutunum samkvæmt ákvörðunum bæjarráðs, úthlutun símenntunarstyrkja og námsstyrka og úr veikindalaunapotti. Viðaukinn hefur engin áhrif á rekstrarniðurstöðu eða fjárhag Fjarðabyggðar, einungis tilflutning á milli málaflokka og deilda. Viðauka 6 við fjárhagsáætlun 2016 vísað til bæjarstjórnar til samþykktar.
-
4. Kaupréttarákvæði 2016 um Melgerði 13 Reyðarfirði
Mál 1603023 Allur ferill málsins
Fjallað um mögulega nýtingu á kauprétti á félagsaðstöðu eldri borgara í fasteigninni Melgerði 13 Reyðarfirði og mögulega lántöku vegna kaupanna. Áður á dagskrá bæjarráðs 15. mars og 14. október 2016. Bæjarráð samþykkir að nýta kauprétt á eigninni í samræmi við minnisblað fjármálastjóra. Vísað til samþykktar bæjarstjórnar.
-
5. Endurfjármögnun skammtímaláns 2017
Mál 1612126 Allur ferill málsins
Fjallað um fjármögnun greiðslu á skammtímaláni í lok janúar með lántöku, auk annarra ráðstafana í lánsfjármögnun Fjarðabyggðar og stofnana. Framlagt minnisblað og tillaga fjármálastjóra um fjármögnun og heimild til yfirdráttarheimildar. Bæjarráð samþykkir endurfjármögnun sbr. tillögur í minnisblaði. Lántöku vísað til samþykktar í bæjarstjórn.
-
6. Viljayfirlýsing vegna Margildis ehf.
Mál 1612091 Allur ferill málsins
Kristján Þórarinn Davíðsson stjórnarmaður og Snorri Hreggviðsson framkvæmdastjóri Margildis sátu þennan lið fundarins og kynntu hugmyndir fyrirtækisins um vinnslu á hrálýsi til manneldis. Bæjarráð felur bæjarstjóra og atvinnu- og þróunarstjóra að vinna að viljayfirlýsingu við Margildi.
-
7. Tillaga um breytingar á reglum Fjarðabyggðar um félagslega heimaþjónustu
Mál 1612028 Allur ferill málsins
Á síðasta fundi félagsmálanefndar var eftirfarandi bókað og samþykkt; "Fyrir liggur minnisblað deildarstjóra búsetuþjónustu Fjarðabyggðar þar sem fyrir liggur tillaga að breytingum að reglum Fjarðabyggðar um félagslega þjónustu. Annars vegar er verið að skýra texta í 7. grein og lagt til að þar standi "Þjónustuþörf er metin í hverju einstöku tilviki. Að jafnaði er ekki veitt þjónusta sem aðrir heimilismenn, 18 ára og eldri, geta annast." Felldur verði út textinn "Þjónustuþörf skal metin í hverju einstöku tilfelli og leitast skal við að veita þá þjónustu sem viðkomandi eða aðrir heimilismenn eru ekki færir um að annast sjálfir." Hins vegar er lögð til breyting á 4. grein þar sem greiðslur miðist áfram við tekjur en við bætist "og handbært fé notenda, þ.e. allra á heimilinu yfir 18 ára aldriþeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
8. Viðmiðunarreglur um úthlutun stöðugilda til leikskóla í Fjarðabyggð
Mál 1603038 Allur ferill málsins
Fyrir liggja viðmiðunarreglur um úthlutun tímamagns til leikskóla í Fjarðabyggð og minnisblað um áhrif reglnanna. Fjárhagsáætlun 2017 tekur mið af reglunum. Fræðslunefnd hefur samþykkt reglurnar og vísar þeim til frekari umræðu og samþykktar í bæjarráði. Bæjarráð samþykkir viðmiðunarreglur um úthlutun tímamagns til leikskóla og vísar reglunum til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
9. Sumarleyfi leikskólanna í Fjarðabyggð 2017
Mál 1612043 Allur ferill málsins
Fyrir liggur minnisblað fræðslustjóra með tillögu að sumarleyfum leikskóla í Fjarðabyggð sumarið 2017. Í minnisblaðinu er lagt til að leikskólarnir loki sem hér segir: Stöðvarfjarðarskóli 13.júlí til 9.ágúst, báðir dagar meðtaldir, Kæribær 13.júlí til 9.ágúst, Lyngholt 19.júlí til 15.ágúst, Dalborg 13.júlí til 9.ágúst og Eyrarvellir 29.júní til 26.júlí. Þá er athygli vakin á því að samkvæmt reglum um leikskóla í Fjarðabyggð geta foreldrar boðið börnum sínum upp á fjögurra, sex eða átta vikna samfellt sumarleyfi. Leikskólagjöld falla niður í einn mánuð, einn og hálfan mánuð eða tvo mánuði eftir lengd sumarleyfis. Fræðslunefnd hefur samþykkt fyrirliggjandi tillögu. Bæjarráð samþykkkir tillögu að sumarlokun leikskólanna.
-
10. Reglur um leikskóla Fjarðabyggðar
Mál 1612121 Allur ferill málsins
Fyrir liggur tillaga um breytingu á reglum um leikskóla til samræmis við samþykkta starfsáætlun og fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017. Um er að ræða fjölda skipulagsdaga sem verða fimm í stað fjögurra og niðurfelling á fjögurra tíma afslætti á dag á vistunargjöldum fyrir elsta árgang leikskóla. Fræðslunefnd hefur samþykkt tillöguna og vísar henni til frekari umræðu og samþykktar í bæjarráði. Bæjarráð samþykkir breytingar á reglum um leikskóla.
-
11. Ungt fólk í Fjarðabyggð, samningur um rannsóknir á högum og líðan ungmenna
Mál 1701039 Allur ferill málsins
Fyrir liggur drög að samningi Fjarðabyggðar við Rannsóknir og greiningu um úrvinnslu úr rannsóknum á högum og líðan ungmenna í Fjarðabyggð. Samningurinn er í stórum dráttum líkur þeim samningi sem gilt hefur undanfarin fimm ár, en að þeim samningi komu auk fyrrgreindra aðila, Háskóli Reykjavíkur og mennta- og menningarmálaráðuneytið. Markmið úrvinnslunnar er að vinna hagnýtar upplýsingar í hendur forvarnarhópa og bæjaryfirvalda til stefnumótunar og áætlunargerðar í málefnum ungmenna í sveitarfélaginu, styrkja faglegan grundvöll stefnumótunar, auka virði samfélagsins gagnvart börnum og stuðla að virkari þátttöku þeirra í samfélaginu. Fræðslunefnd hefur fjallað um málið og fagnar því að áfram verði fylgst vel með högum og líðan ungmenna í Fjarðabyggð. Bæjarráð samþykkir áframhaldandi þátttöku í rannsóknunum og felur bæjarstjóra undirritun samnings.
-
12. Fundargerðir stjórnar SSA 2017
Mál 1701059 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar SSA frá 3.janúar 2017, lögð fram til kynningar.
-
13. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 165
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 165 frá 9.janúar 2017, lögð fram til kynningar.
- 13.1 Lagfæring á veg frá Viðfirði út að Barðsnesi sunnan Norðfjarðar1610002
- 13.2 Umsjónarsamningar - Helgustaðanáma og Hólmanes1612008
- 13.3 Tilkynning um fyrirhugaða 4.000 tonna laxeldisstöð Laxar fiskeldis ehf. í sjókvíum í Fáskrúðfirði1201079
- 13.4 Uppbygging ljósleiðaraneta í Fjarðabyggð og ríkisaðstoðarreglur EES1411143
- 13.5 740 Urðarbotnar, Nes- og Bakkagil - ofanflóðavarnir1606084
- 13.6 Húsnæði Sólvalla í Neskaupstað1612142
- 13.7 Drög að nýrri reglugerð um heimagistingu o.fl.1611016
- 13.8 Almenningssamgöngur - ungmennaráð1606037
- 13.9 Loftræsting í íþróttahúsum1701018
- 13.10 Upphitun Fjarðabyggðarhallarinnar1701016
-
14. Fræðslunefnd - 35
Fundargerð fræðslunefndar nr. 35 frá 11.janúar 2017, lögð fram til kynningar.
- 14.1 Viðmiðunarreglur um úthlutun stöðugilda til leikskóla í Fjarðabyggð1603038
- 14.2 Sumarleyfi leikskólanna í Fjarðabyggð 20171612043
- 14.3 Útboð á skólamáltíðum í grunnskólum 20171612093
- 14.4 Tilkynning um skil starfshóps um málefni Mentor og ný persónuverndarlöggjöf1612031
- 14.5 Reglur um leikskóla Fjarðabyggðar1612121
- 14.6 Niðurstöður úr Skólavoginni1311034
- 14.7 Bætt tónlistaraðstaða fyrir ungmenni1701017
- 14.8 Aukið fé til skóla og félagsmiðstöðva1701031
- 14.9 Ungt fólk í Fjarðabyggð, samningur um rannóknir á högum og líðan ungmenna1701039
-
15. Félagsmálanefnd - 91
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 91 frá 10.janúar 2017, lögð fram til kynningar.
- 15.1 Tillaga um breytingar á reglum Fjarðabyggðar um félagslega heimaþjónustu1612028
- 15.2 Heimsóknartímar á hjúkrunarheimili1612090
- 15.3 Húsnæðisáætlanir,stofnframlög og skyldur sveitarfélaga gagnvart fötluðu fólki1612051
- 15.4 Vinna við forvarnir fyrir árið 20171611121
- 15.5 Jafnréttisáætlun Fjarðabyggðar1701024
- 15.6 Jólasjóður 20161311103