Bæjarstjórn, fundur 215
19. janúar 2017, kl. 16:00 til 16:55, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
- Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
- Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Jens Garðar Helgason, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Dagskrá
-
1. Bæjarráð - 504
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar afgreiðslu saman.
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð bæjarráð frá 9.janúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
- 1.1 Rekstur málaflokka 2016 - TRÚNAÐARMÁL1602052
- 1.2 Uppgröftur í Stöð1509028
- 1.3 Endurskipulagning fjármála Hitaveitu Fjarðabyggðar1612125
- 1.4 Kaupréttarákvæði 2016 um Melgerði 13 Reyðarfirði1603023
- 1.5 Endurfjármögnun skammtímaláns 20171612126
- 1.6 Merking á Hótel Egilsbúð1405074
- 1.7 "Fjallahjólapark" í Oddskarði1701015
- 1.8 Almenningssamgöngur - ungmennaráð1606037
- 1.9 Hafnarstjórn - 1711612011F
- 1.10 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 1641612012F
-
2. Bæjarráð - 505
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráð frá 16.janúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
- 2.1 Fjármál 20171701089
- 2.2 Fjárhagsáætlun 2017 - viðauki 11612137
- 2.3 Fjárhagsáætlun 2016 - viðauki 61701095
- 2.4 Kaupréttarákvæði 2016 um Melgerði 13 Reyðarfirði1603023
- 2.5 Endurfjármögnun skammtímaláns 20171612126
- 2.6 Viljayfirlýsing vegna Margildis ehf.1612091
- 2.7 Tillaga um breytingar á reglum Fjarðabyggðar um félagslega heimaþjónustu1612028
- 2.8 Viðmiðunarreglur um úthlutun stöðugilda til leikskóla í Fjarðabyggð1603038
- 2.9 Sumarleyfi leikskólanna í Fjarðabyggð 20171612043
- 2.10 Reglur um leikskóla Fjarðabyggðar1612121
- 2.11 Ungt fólk í Fjarðabyggð, samningur um rannsóknir á högum og líðan ungmenna1701039
- 2.12 Fundargerðir stjórnar SSA 20171701059
- 2.13 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 1651701005F
- 2.14 Fræðslunefnd - 351701003F
- 2.15 Félagsmálanefnd - 911701002F
-
3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 164
Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 2.janúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
- 3.1 Skoðun á möguleikum á aðstöðu í landi vegna laxeldis1612109
- 3.2 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands árið 20161602074
- 3.3 Brúarvegrið við Vattarnesveg yfir Kikjubólsá, Fáskrúðsfirði1612094
- 3.4 740 Sæbakki 10 - viðbygging - byggingarleyfi1612086
- 3.5 740 deiliskipulag fólkvangs Neskaupstaðar1606100
- 3.6 Endurskoðun á umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar 20161604018
- 3.7 Starfshópur um göngu- og hjólreiðastíga1510014
- 3.8 Efnistaka við Ljósá í Reyðarfirði - framkvæmdarleyfi Skipulagsstofnunar1701007
-
4. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 165
Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar staðfest með 9 atkvæðum.
- 4.1 Lagfæring á veg frá Viðfirði út að Barðsnesi sunnan Norðfjarðar1610002
- 4.2 Umsjónarsamningar - Helgustaðanáma og Hólmanes1612008
- 4.3 Tilkynning um fyrirhugaða 4.000 tonna laxeldisstöð Laxar fiskeldis ehf. í sjókvíum í Fáskrúðfirði1201079
- 4.4 Uppbygging ljósleiðaraneta í Fjarðabyggð og ríkisaðstoðarreglur EES1411143
- 4.5 740 Urðarbotnar, Nes- og Bakkagil - ofanflóðavarnir1606084
- 4.6 Húsnæði Sólvalla í Neskaupstað1612142
- 4.7 Drög að nýrri reglugerð um heimagistingu o.fl.1611016
- 4.8 Almenningssamgöngur - ungmennaráð1606037
- 4.9 Loftræsting í íþróttahúsum1701018
- 4.10 Upphitun Fjarðabyggðarhallarinnar1701016
-
5. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 166
Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 16. janúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
- 5.1 Lausaganga stórgripa1403118
- 5.2 Starfshópur um göngu- og hjólreiðastíga1510014
- 5.3 735 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027. breyting - Stækkun hafnarsvæðis1701099
- 5.4 Deiliskipulag Leira 1, iðnaðar- og hafnarsvæði sunnan Strandgötu - breyting, stækkuna hafnarsvæðis1701100
- 5.5 740 deiliskipulag fólkvangs Neskaupstaðar1606100
- 5.6 730 - Beiðni um framkvæmdaleyfi vegna annars áfanga Mjóeyrarhafnar1701032
- 5.7 750 Hafnargata 1, byggingarleyfi - hreinsivirki1701034
- 5.8 740 Egilsbraut 1, byggingarleyfi - klæðning utanhúss1701044
- 5.9 740 Skólavegur 12, byggingarleyfi - klæðning utanhús1701043
- 5.10 Ljósá - ofanflóðaframkvæmdir1602108
- 5.11 Eftirlit með vatnsveitum Fjarðabyggðar 20161701049
- 5.12 Endurskoðun á umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar 20161604018
- 5.13 Landbúnaðarnefnd - 171701006F
-
6. Hafnarstjórn - 171
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 3. janúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
- 6.1 Fundargerðir CI á árinu 20161601011
- 6.2 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20161601010
- 6.3 Framlög til hafnaframkvæmda í fjárlögum 20171612064
- 6.4 Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldi Samskip Skaftafell 2. desember 20161612018
- 6.5 Öryggismyndavélar1612141
- 6.6 Norðfjörður - Fylling og stálþil á þróunarsvæði1503131
- 6.7 Skoðun á möguleikum á aðstöðu í landi vegna laxeldis1612109
- 6.8 Mjóeyrarhöfn 2.áfangi - stækkun1210091
- 6.9 Efnistaka við Ljósá í Reyðarfirði1608111
- 6.10 750 Bygging hafnarkants við frystigeymslu á Fáskrúðsfirði1505078
- 6.11 Rafmagnstenglar á höfnum Fjarðabyggðar1612140
-
7. Fræðslunefnd - 35
Til máls tók Pálína Margeirsdóttir.
Fundargerð fræðslunefndar frá 11.janúar 2017 staðfest með 9 atkvæðum.
- 7.1 Viðmiðunarreglur um úthlutun stöðugilda til leikskóla í Fjarðabyggð1603038
- 7.2 Sumarleyfi leikskólanna í Fjarðabyggð 20171612043
- 7.3 Útboð á skólamáltíðum í grunnskólum 20171612093
- 7.4 Tilkynning um skil starfshóps um málefni Mentor og ný persónuverndarlöggjöf1612031
- 7.5 Reglur um leikskóla Fjarðabyggðar1612121
- 7.6 Niðurstöður úr Skólavoginni1311034
- 7.7 Bætt tónlistaraðstaða fyrir ungmenni1701017
- 7.8 Aukið fé til skóla og félagsmiðstöðva1701031
- 7.9 Ungt fólk í Fjarðabyggð, samningur um rannóknir á högum og líðan ungmenna1701039
-
8. Félagsmálanefnd - 91
Enginn tók til máls.
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 91 frá 10.janúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
- 8.1 Tillaga um breytingar á reglum Fjarðabyggðar um félagslega heimaþjónustu1612028
- 8.2 Heimsóknartímar á hjúkrunarheimili1612090
- 8.3 Húsnæðisáætlanir,stofnframlög og skyldur sveitarfélaga gagnvart fötluðu fólki1612051
- 8.4 Vinna við forvarnir fyrir árið 20171611121
- 8.5 Jafnréttisáætlun Fjarðabyggðar1701024
- 8.6 Jólasjóður 20161311103
-
9. Fjárhagsáætlun 2017 - viðauki 1
Mál 1612137 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri fylgdi viðauka úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Framlagður viðauki 1 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana á árinu 2017. Í viðaukanum eru dregin saman áhrif á rekstur Fjarðabyggðar á árínu 2017 af nýjum og/eða breyttum kjarasamningum, breytingum á lögum lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og breytingum á mótframlög launagreiðanda til lífeyrissjóðanna LSR og Brú-LSS.
Viðaukinn er gerður í samræmi við samþykktir bæjarráðs frá 19. desember 2016 og 2. janúar 2017.
Lagt er til að launaliðir fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar í málaflokkum sbr. sundurliðun tillögunnar lækki í heildina um kr. 14.245.516 fyrir árið 2017. Þar af nemur lækkunin 6.802.478 í A hluta en 7.443.038 í B hluta rekstrar Fjarðabyggðar og stofnana. Enn fremur er lagt til að þessi lækkaði rekstrarkostnaður verði lagður á eigið fé Aðalsjóðs og viðskiptareikninga B hluta stofnanna, Hafnarsjóðs, Hitaveitu og Fráveitu við Aðalsjóð. Handbært fé Aðalsjóðs mun hækka um 14.246.000 krónur til samræmis við ofangreint og verða 156.760.000 þús. króna í árslok 2017
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum viðauka 1 við fjárhagsáætlun 2017.
-
10. Fjárhagsáætlun 2016 - viðauki 6
Mál 1701095 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri fylgdi viðauka úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Framlagður viðauki 6 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana á árinu 2016. Í viðaukanum eru dregin saman áhrif af úthlutunum samkvæmt ákvörðunum bæjarráðs, úthlutun símenntunarstyrkja, námsstyrkja og veikindalauna.
Viðaukinn hefur engin áhrif á rekstrarniðurstöðu eða fjárhag Fjarðabyggðar, einungis tilflutning á milli málaflokka og deilda. Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum viðauka 6 við fjárhagsáætlun 2016.
-
11. Kaupréttarákvæði 2016 um Melgerði 13 Reyðarfirði
Mál 1603023 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi úr máli úr hlaði.
Til máls tók Valdimar O Hermannsson.
Bæjarráð leggur til að kauprétturákvæði á félagsaðstöðu eldri borgara í fasteigninni Melgerði 13 Reyðarfirði verði nýtt og Fjarðabyggð kaupi fasteignina.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum ákvörðun bæjarráðs og felur bæjarstjóra undirritun skjala vegna kaupa eignarinnar.
-
12. Endurfjármögnun skammtímaláns 2017
Mál 1612126 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri fylgdi tillögu að endurfjármögnun úr hlaði.
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir með 9 atkvæðum að yfirdráttarheimild hjá Íslandsbanka, fyrir allt að 200 milljónir kr. er rennur út 4. febrúar 2017, verði framlengd í allt að eitt ár. Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir jafnframt með 9 atkvæðum að taka skammtímalán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 667.369.444 kr. til 6. febrúar 2017, með 6,5% vöxtum, í samræmi við lánstilboð sem liggur fyrir fundinum. Er lánið tekið til endurfjármögnunar á eldra skammtímaláni, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Páli Björgvin Guðmundssyni, bæjarstjóra Fjarðabyggðar kt. 150870-4379, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Fjarðabyggðar, að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga og yfirdráttarheimild við Íslandsbanka sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.
-
13. Tillaga um breytingar á reglum Fjarðabyggðar um félagslega heimaþjónustu
Mál 1612028 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi breytingum á reglum úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Fyrir liggur tillaga að breytingum á reglum Fjarðabyggðar um félagslega þjónustu. Annars vegar er verið að skýra texta í 7. grein. Hins vegar er lögð til breyting á 4. grein. Breytingunum er vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir breytingar á reglum um félagslega heimaþjónustu með 9 atkvæðum.
-
14. Viðmiðunarreglur um úthlutun stöðugilda til leikskóla í Fjarðabyggð
Mál 1603038 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi viðmiðunarreglum úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Fyrir liggja viðmiðunarreglur um úthlutun tímamagns til leikskóla í Fjarðabyggð og minnisblað um áhrif reglnanna. Fjárhagsáætlun 2017 tekur mið af reglunum. Viðmiðunarreglum um úthlutun tímamagns til leikskóla er vísað til staðfestingar bæjarstjórnar. Bæjarstjórn samþykkir viðmiðunarreglur með 9 atkvæðum.
-
15. Reglur um leikskóla Fjarðabyggðar
Mál 1612121 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi tillögu að breytingu á reglum úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Fyrir liggur tillaga um breytingu á reglum um leikskóla til samræmis við samþykkta starfsáætlun og fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017. Um er að ræða fjölda skipulagsdaga sem verða fimm í stað fjögurra og niðurfelling á fjögurra tíma afslætti á dag á vistunargjöldum fyrir elsta árgang leikskóla. Breytingum á reglum er vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir breytingar á reglum um leikskóla með 9 atkvæðum.
-
16. 740 deiliskipulag fólkvangs Neskaupstaðar
Mál 1606100 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulagi úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar birtingu auglýsingar deiliskipulags Fólkvangs Neskaupstaðar til staðfestingar bæjarstjórnar sbr. skipulagsuppdrátt og greinargerð dagsetta 1. desember 2016.
Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að auglýsa deiliskipulag Fólkvangs Neskaupstaðar.
-
17. Viljayfirlýsing vegna Margildis ehf.
Mál 1612091 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi viljayfirlýsingu úr hlaði.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson, Esther Ösp Gunnarsdóttir.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum viljayfirlýsingu Fjarðabyggðar og Margildis vegna hugmynda um vinnslu á hrálýsi til manneldis.