Ungt fólk í Fjarðabyggð, samningur um rannsóknir á högum og líðan ungmenna
Mál 1701039 Fyrst á dagskrá 11. janúar 2017, síðast 19. janúar 2017. 5 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Fræðslunefnd, fundur 35 liður 9
Ungt fólk í Fjarðabyggð, samningur um rannóknir á högum og líðan ungmenna
Fyrir liggur drög að samningi Fjarðabyggðar við Rannsóknir og greiningu um úrvinnslu úr rannsóknum á högum og líðan ungmenna í Fjarðabyggð. Samningurinn er í stórum dráttum líkur þeim samningi sem gilt hefur undanfarin 5 ár, en að þeim samningi komu auk fyrrgreindra aðila Háskóli Reykjavíkur og mennta- og menningarmálaráðuneytið. Markmið úrvinnslunnar er að vinna hagnýtar upplýsingar í hendur forvarnarhópa og bæjaryfirvalda til stefnumótunar og áætlunargerðar í málefnum ungmenna í sveitarfélaginu, styrkja faglegan grundvöll stefnumótunar, auka virði samfélagsins gagnvart börnum og stuðla að virkari þátttöku þeirra í samfélaginu. Nánari tilhögun er sem hér segir:
Lesa alla bókunina (110 orð til viðbótar)
1) Ítarlegar skýrslur um hagi og líðan ungmenna (félagslegu þættirnir og víma) í grunnskólum meðal nemenda í 8. - 10. bekk verða unnar árin 2018 og 2020.
2)Vímuefnaneysla í efstu bekkjum grunnskóla ( 8. - 10. bekk) árin 2017, 2018, 2019 og 2020. Rannsóknarniðurstöður vímuefnakannananna verða í sama formi og áður og taka á vímuefnaneyslu ungmenna, reykingum, munn- og neftóbaksneyslu, áfengisneyslu og fíkniefnaneyslu.
3)Ítarlegar rannsóknir á högum og líðan ungmenna í 5. - 7. bekk verða unnar árin 2017 og 2019 og skýrslur gefnar út til Fjarðabyggðar í framhaldi.
Fræðslunefnd gerir ekki athugasemdir við drögin og fagnar því að áfram verði fylgst vel með högum og líðan ungmenna í Fjarðabyggð.
-
Bæjarráð, fundur 505 liður 11
Fyrir liggur drög að samningi Fjarðabyggðar við Rannsóknir og greiningu um úrvinnslu úr rannsóknum á högum og líðan ungmenna í Fjarðabyggð. Samningurinn er í stórum dráttum líkur þeim samningi sem gilt hefur undanfarin fimm ár, en að þeim samningi komu auk fyrrgreindra aðila, Háskóli Reykjavíkur og mennta- og menningarmálaráðuneytið. Markmið úrvinnslunnar er að vinna hagnýtar upplýsingar í hendur forvarnarhópa og bæjaryfirvalda til stefnumótunar og áætlunargerðar í málefnum ungmenna í sveitarfélaginu, styrkja faglegan grundvöll stefnumótunar, auka virði samfélagsins gagnvart börnum og stuðla að virkari þátttöku þeirra í samfélaginu. Fræðslunefnd hefur fjallað um málið og fagnar því að áfram verði fylgst vel með högum og líðan ungmenna í Fjarðabyggð. Bæjarráð samþykkir áframhaldandi þátttöku í rannsóknunum og felur bæjarstjóra undirritun samnings.
-
Bæjarráð, fundur 505 liður 14.9
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 35“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Ungt fólk í Fjarðabyggð, samningur um rannóknir á högum og líðan ungmenna
-
Bæjarstjórn, fundur 215 liður 2.11
Fundargerðin „Bæjarráð - 505“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 215 liður 7.9
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 35“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Ungt fólk í Fjarðabyggð, samningur um rannóknir á högum og líðan ungmenna