Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 35

11. janúar 2017, kl. 16:30 til 18:30, í Molanum fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Pálína Margeirsdóttir, formaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Kjartan Glúmur Kjartansson, aðalmaður
  • Guðlaug Dana Andrésdóttir, varaformaður

Starfsmenn

  • Þóroddur Helgason, áheyrnarfulltrúi

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 505 liður 14

    Fundargerð fræðslunefndar nr. 35 frá 11.janúar 2017, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 215 liður 7

    Til máls tók Pálína Margeirsdóttir.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 11.janúar 2017 staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Viðmiðunarreglur um úthlutun stöðugilda til leikskóla í Fjarðabyggð

    Mál 1603038 Allur ferill málsins

    Fyrir liggja viðmiðunarreglur um úthlutun tímamagns til leikskóla í Fjarðabyggð og minnisblað um áhrif reglnanna. Fjárhagsáætlun 2017 tekur mið af reglunum. Fræðslunefnd samþykkir reglurnar og vísar þeim til frekari umræðu og samþykktar í bæjarráði.

  2. 2. Sumarleyfi leikskólanna í Fjarðabyggð 2017

    Mál 1612043 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur minnisblað fræðslustjóra með tillögu að sumarleyfum leikskóla í Fjarðabyggð sumarið 2017. Í minnisblaðinu er lagt til að leikskólarnir loki sem hér segir:

    Stöðvarfjarðarskóli

    13.07-09.08 báðir dagar meðtaldir

    Kæribær 13.07-09.08

    Lyngholt 19.07-15.08

    Dalborg 13.07-09.08

    Eyrarvellir

    29.06-26.07

    Þá er athygli vakin á því að samkvæmt reglum um leikskóla í Fjarðabyggð geta foreldrar boðið börnum sínum upp á fjögurra, sex eða átta vikna samfellt sumarleyfi. Leikskólagjöld falla niður í einn mánuð, einn og hálfan mánuð eða tvo mánuði eftir lengd sumarleyfis. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu.

  3. 3. Útboð á skólamáltíðum í grunnskólum 2017

    Mál 1612093 Allur ferill málsins

    Fræðslustjóri greindi fræðslunefnd frá vinnu við útboð á skólamáltíðum grunnskóla. Verið er að vinna útboðsgögn og gert ráð fyrir útboði í febrúar.

  4. 4. Tilkynning um skil starfshóps um málefni Mentor og ný persónuverndarlöggjöf

    Mál 1612031 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur bréf til allra sveitarfélaga vegna skila starfshóps sem falið var að fjalla um málefni Mentors, upplýsingakerfi fyrir leik- og grunnskóla, sem og nýrrar persónulöggjafar og skýrslu um skráningu upplýsinga um nemendur í mentor. Í bréfinu eru sveitarfélög hvött til að kynna sér leiðbeinandi vinnureglur sem starfshópurinn setur fram í skýrslunni og skólar hvattir til að útbúa vinnureglur í meðferð persónuupplýsinga í því upplýsingakerfi sem nýtt er. Grunnskólarnir í Fjarðabyggð nýta sér allir þjónustu Mentors. Í bréfinu kemur einnig fram að gert sé ráð fyrir nýjum persónuverndarlögum árið 2018. Fræðslunefnd felur fræðslustjóra að fylgja málinu eftir með skólastjórum grunnskólanna.

  5. 5. Reglur um leikskóla Fjarðabyggðar

    Mál 1612121 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur tillaga um breytingu á reglum leikskóla til samræmis við samþykkta starfsáætlun og fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017. Um er að ræða fjölda skipulagsdaga sem verða fimm í stað fjögurra og niðurfelling á 4 tíma afslætti á dag á vistunargjöldum fyrir elsta árgang leikskóla. Fræðslunefnd samþykkir tillöguna vísar henni til frekari umræðu og samþykktar bæjarráðs.

  6. 6. Niðurstöður úr Skólavoginni

    Mál 1311034 Allur ferill málsins

    Farið var yfir niðurstöðu Fjarðabyggðar á samræmdum könnunarprófum í íslensku og stærðfræði í 4. og 7. bekk haustið 2016. Fræðslustjóri fór yfir hvernig unnið var með niðurstöður í hverjum skóla og skoðaðir styrkleikar og veikleikar. Brugðist var við í námi og kennslu svo ná mætti enn betri árangri en um leið var hugað að fjölbreytilegum kennsluháttum, góðum bekkjaranda og líðan nemenda, en allt þarf þetta að haldast í hendur. Þá var farið yfir rekstrartölur grunnskóla fyrir árið 2015.

  7. 7. Bætt tónlistaraðstaða fyrir ungmenni

    Mál 1701017 Allur ferill málsins

    Máli um bætta tónlistaraðstöðu fyrir ungmenni var vísað frá sameiginlegum fundi bæjarstjórnar og ungmennaráðs til umfjöllunar í fræðslunefnd. Fulltrúi ungmennaráðs vildi kanna hvort auka mætti möguleika unglinga til að æfa sig á hljóðfæri í Fjarðabyggð og hvort efla megi tónlistarskólana t.d. með því að bjóða upp á kennslu á fleiri hljóðfæri. Fræðslunefnd felur fræðslustjóra að kanna hversu fjölbreytt hljóðfærakennslan er í tónlistarskólunum og einnig hversu mikið aðgengi nemendur hafi að æfingaaðstöðu í skólunum og félagsmiðstöðvum.

  8. 8. Aukið fé til skóla og félagsmiðstöðva

    Mál 1701031 Allur ferill málsins

    Máli um aukið fé til skóla og félagsmiðstöðva með áherslu á geðheilbrigðismál var vísað frá sameiginlegum fundi bæjarstjórnar og ungmennaráðs til umfjöllunar í fræðslunefnd. Fulltrúi ungmennaráðs vildi kanna hvort auka mætti þjónustu við ungmenni sem glíma við geðræn vandamál. Mikil umræða átti sér stað um forvarnarmál og erindinu vísað til frekari umræðu innan fjölskyldusviðs með aukna fræðslu í huga.

  9. 9. Ungt fólk í Fjarðabyggð, samningur um rannóknir á högum og líðan ungmenna

    Mál 1701039 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur drög að samningi Fjarðabyggðar við Rannsóknir og greiningu um úrvinnslu úr rannsóknum á högum og líðan ungmenna í Fjarðabyggð. Samningurinn er í stórum dráttum líkur þeim samningi sem gilt hefur undanfarin 5 ár, en að þeim samningi komu auk fyrrgreindra aðila Háskóli Reykjavíkur og mennta- og menningarmálaráðuneytið. Markmið úrvinnslunnar er að vinna hagnýtar upplýsingar í hendur forvarnarhópa og bæjaryfirvalda til stefnumótunar og áætlunargerðar í málefnum ungmenna í sveitarfélaginu, styrkja faglegan grundvöll stefnumótunar, auka virði samfélagsins gagnvart börnum og stuðla að virkari þátttöku þeirra í samfélaginu. Nánari tilhögun er sem hér segir:

    1) Ítarlegar skýrslur um hagi og líðan ungmenna (félagslegu þættirnir og víma) í grunnskólum meðal nemenda í 8. - 10. bekk verða unnar árin 2018 og 2020.

    2)Vímuefnaneysla í efstu bekkjum grunnskóla ( 8. - 10. bekk) árin 2017, 2018, 2019 og 2020. Rannsóknarniðurstöður vímuefnakannananna verða í sama formi og áður og taka á vímuefnaneyslu ungmenna, reykingum, munn- og neftóbaksneyslu, áfengisneyslu og fíkniefnaneyslu.

    3)Ítarlegar rannsóknir á högum og líðan ungmenna í 5. - 7. bekk verða unnar árin 2017 og 2019 og skýrslur gefnar út til Fjarðabyggðar í framhaldi.

    Fræðslunefnd gerir ekki athugasemdir við drögin og fagnar því að áfram verði fylgst vel með högum og líðan ungmenna í Fjarðabyggð.