Sumarleyfi leikskólanna í Fjarðabyggð 2017
Mál 1612043 Fyrst á dagskrá 11. janúar 2017, síðast 19. janúar 2017. 5 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Í heiti málsins: Skólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Fræðslunefnd, fundur 35 liður 2
Fyrir liggur minnisblað fræðslustjóra með tillögu að sumarleyfum leikskóla í Fjarðabyggð sumarið 2017. Í minnisblaðinu er lagt til að leikskólarnir loki sem hér segir:
Stöðvarfjarðarskóli
13.07-09.08 báðir dagar meðtaldir
Kæribær 13.07-09.08
Lyngholt 19.07-15.08
Dalborg 13.07-09.08
Eyrarvellir
29.06-26.07
Þá er athygli vakin á því að samkvæmt reglum um leikskóla í Fjarðabyggð geta foreldrar boðið börnum sínum upp á fjögurra, sex eða átta vikna samfellt sumarleyfi. Leikskólagjöld falla niður í einn mánuð, einn og hálfan mánuð eða tvo mánuði eftir lengd sumarleyfis. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu.
-
Bæjarráð, fundur 505 liður 9
Fyrir liggur minnisblað fræðslustjóra með tillögu að sumarleyfum leikskóla í Fjarðabyggð sumarið 2017. Í minnisblaðinu er lagt til að leikskólarnir loki sem hér segir: Stöðvarfjarðarskóli 13.júlí til 9.ágúst, báðir dagar meðtaldir, Kæribær 13.júlí til 9.ágúst, Lyngholt 19.júlí til 15.ágúst, Dalborg 13.júlí til 9.ágúst og Eyrarvellir 29.júní til 26.júlí. Þá er athygli vakin á því að samkvæmt reglum um leikskóla í Fjarðabyggð geta foreldrar boðið börnum sínum upp á fjögurra, sex eða átta vikna samfellt sumarleyfi. Leikskólagjöld falla niður í einn mánuð, einn og hálfan mánuð eða tvo mánuði eftir lengd sumarleyfis. Fræðslunefnd hefur samþykkt fyrirliggjandi tillögu. Bæjarráð samþykkkir tillögu að sumarlokun leikskólanna.
-
Bæjarráð, fundur 505 liður 14.2
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 35“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 215 liður 2.9
Fundargerðin „Bæjarráð - 505“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 215 liður 7.2
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 35“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.