Tilkynning um skil starfshóps um málefni Mentor og ný persónuverndarlöggjöf
Mál 1612031 Fyrst á dagskrá 11. janúar 2017, síðast 19. janúar 2017. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Fræðslunefnd, fundur 35 liður 4
Fyrir liggur bréf til allra sveitarfélaga vegna skila starfshóps sem falið var að fjalla um málefni Mentors, upplýsingakerfi fyrir leik- og grunnskóla, sem og nýrrar persónulöggjafar og skýrslu um skráningu upplýsinga um nemendur í mentor. Í bréfinu eru sveitarfélög hvött til að kynna sér leiðbeinandi vinnureglur sem starfshópurinn setur fram í skýrslunni og skólar hvattir til að útbúa vinnureglur í meðferð persónuupplýsinga í því upplýsingakerfi sem nýtt er. Grunnskólarnir í Fjarðabyggð nýta sér allir þjónustu Mentors. Í bréfinu kemur einnig fram að gert sé ráð fyrir nýjum persónuverndarlögum árið 2018. Fræðslunefnd felur fræðslustjóra að fylgja málinu eftir með skólastjórum grunnskólanna.
-
Bæjarráð, fundur 505 liður 14.4
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 35“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 215 liður 7.4
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 35“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.