Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

Bætt sál- og sérfræðiþjónusta í grunnskólum

Mál 1701031 Fyrst á dagskrá 5. janúar 2017, síðast 2. mars 2017. 9 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd, Félagsmálanefnd.

Í heiti málsins: Íþróttir og tómstundirSkólar og fræðsla

Í hnotskurn

Málið fjallar um erindi frá sameiginlegum fundi bæjarstjórnar og ungmennaráðs um aukið fé til skóla og félagsmiðstöðva með áherslu á geðheilbrigðismál ungmenna2. Fræðslunefnd og félagsmálanefnd hafa fjallað um minnisblað fræðslustjóra um sál- og sérfræðiþjónustu og bæjarstjórn staðfesti síðast afgreiðslu félagsmálanefndar 2. mars 2017589.

Staðan

Bæjarstjórn staðfesti afgreiðslu félagsmálanefndar 2. mars 2017 og frekari afgreiðsla, þar á meðal í íþrótta- og tómstundanefnd, kemur ekki fram í gögnunum19.

Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Bæjarstjórn, fundur 214 liður 10

    Aukið fé til skóla og félagsmiðstöðva

    Fulltrúi ungmennaráðs og Elvar Jónsson tóku til máls og samþykkt var samhljóða að vísa málinu til fræðslunefndar, íþrótta- og tómstundanefndar og félagsmálanefndar.

    Endursögn gervigreindar

    Til máls tóku Sara Rut Vilbergsdóttir fulltrúi ungmennaráðs, Elvar Jónsson.

    Lagt til að máli sé vísað til fræðslunefndar, íþrótta- og tómstundanefndar og félagsmálanefndar.

    Samþykkt samhljóða.

  2. Fræðslunefnd, fundur 35 liður 8

    Aukið fé til skóla og félagsmiðstöðva

    Nefndin fjallaði um forvarnarmál og vísaði erindinu til frekari umræðu innan fjölskyldusviðs með aukna fræðslu í huga.

    Endursögn gervigreindar

    Máli um aukið fé til skóla og félagsmiðstöðva með áherslu á geðheilbrigðismál var vísað frá sameiginlegum fundi bæjarstjórnar og ungmennaráðs til umfjöllunar í fræðslunefnd. Fulltrúi ungmennaráðs vildi kanna hvort auka mætti þjónustu við ungmenni sem glíma við geðræn vandamál. Mikil umræða átti sér stað um forvarnarmál og erindinu vísað til frekari umræðu innan fjölskyldusviðs með aukna fræðslu í huga.

  3. Bæjarráð, fundur 505 liður 14.8

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 35“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Aukið fé til skóla og félagsmiðstöðva

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  4. Bæjarstjórn, fundur 215 liður 7.8

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 35“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Aukið fé til skóla og félagsmiðstöðva

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  5. Fræðslunefnd, fundur 36 liður 3

    Fyrir lá minnisblað fræðslustjóra, unnið í samráði við forstöðumann Skólaskrifstofu Austurlands, um langa biðlista hjá sálfræðiþjónustu Skólaskrifstofu Austurlands og skort á sálfræðiþjónustu innan HSA, og nefndin hvatti sveitarstjórnir og ríkisvald til að gera það sem í þeirra valdi stendur til að bæta ástandið.

    Endursögn gervigreindar

    Á siðasta fundi fræðslunefndar var umræðu um geðheilbrigðismál vísað til frekari vinnu á fjölskyldusviði Fjarðabyggðar. Fyrir liggur minnisblað frá fræðslustjóra sem hann vann í samráði við forstöðumann Skólaskrifstofu Austurlands. Í minnisblaðinu er vitnað í reglugerð um nemendur með sérþarfir í grunnskóla nr.584 og minnisblað frá lögfræði- og velferðarsvið Sambands íslenskra sveitarfélaga en þar kemur m.a. fram að skipta megi sérfræðiþjónustunni í grófum dráttum í fjögur stig.

    Lesa alla bókunina (221 orð til viðbótar)

    1. Skimun (forvarnarstarf). Á forræði starfsfólks skóla

    2. Mat (athugun) á þörf fyrir aðstoð eða frekari greiningu. Á forræði sérfræðiþjónustu skóla.

    3. Eftirfylgni við mat á þörf og árangri. Á forræði sérfræðiþjónustu skóla og

    4. Frekari greining og meðferðarúrræði. Á forræði stofnana ríkisins.

    Í minnisblaðinu kemur fram að skóinn kreppi helst á tveimur stöðum. Annars vegar eru það langir biðlistar hjá sálfræðiþjónustu Skólaskrifstofu Austurlands, en hún annast stig 2 og 3 fyrir Austurland og hins vegar er skortur á sálfræðiþjónustu innan HSA, en stofnunni hefur ekki tekist að ráða í stöðugildi sem stofnunin hefur til ráðstöfunnar, en HSA er ein þeirra ríkisstofnana sem annast frekari greiningu og meðferðarúrræði sem falla undir stig 4.

    Í minnisblaðinu kemur einnig fram að þeir sem þjónustuna veita séu vel meðvitaðir um stöðuna, en skortur sé á fagfólki og fjármagni. Vitnað er í sameiginlegt málþing sem haldið var í Grunnskóla Reyðarfjarðar síðastliðið haust með aðkomu Fjarðabyggðar, Fljótsdalshéraðs, HSA, Sarfa, VA, ME og Virk þar sem farið var ofan í stöðu mála. Þar kom í ljós mikilvægi þess að fjölga meðferðarúrræðum og stytta biðlista. Fræðslunefnd þakkar samantektina og hvetur sveitarstjórnir og ríkisvald að gera það sem í þeirra valdi stendur til að bæta ástandið. Nefndin leggur jafnframt áherslu á mikilvægi forvarnafræðslu og fagnar málþingi eins og því sem haldið var síðasta haust og fræðslufundum stofnana og félagasamtaka.

  6. Bæjarráð, fundur 507 liður 14.3

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 36“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  7. Bæjarstjórn, fundur 216 liður 5.3

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 36“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  8. Félagsmálanefnd, fundur 92 liður 2

    Nefndin fjallaði um sama minnisblað, hvatti sveitarstjórnir og ríkisvald til að bæta ástandið og lagði áherslu á forvarnafræðslu og snemmtæka íhlutun.

    Endursögn gervigreindar

    Fyrir lá minnisblað frá fræðslustjóra sem hann vann í samráði við forstöðumann Skólaskrifstofu Austurlands. Í minnisblaðinu er vitnað í reglugerð um nemendur með sérþarfir í grunnskóla nr.584 og minnisblað frá lögfræði- og velferðarsvið Sambands íslenskra sveitarfélaga en þar kemur m.a. fram að skipta megi sérfræðiþjónustunni í grófum dráttum í fjögur stig.

    1. Skimun (forvarnarstarf). Á forræði starfsfólks skóla

    2. Mat (athugun) á þörf fyrir aðstoð eða frekari greiningu. Á forræði sérfræðiþjónustu skóla.

    Lesa alla bókunina (197 orð til viðbótar)

    3. Eftirfylgni við mat á þörf og árangri. Á forræði sérfræðiþjónustu skóla og

    4. Frekari greining og meðferðarúrræði. Á forræði stofnana ríkisins.

    Í minnisblaðinu kemur fram að skóinn kreppi helst á tveimur stöðum. Annars vegar eru það langir biðlistar hjá sálfræðiþjónustu Skólaskrifstofu Austurlands, en hún annast stig 2 og 3 fyrir Austurland og hins vegar er skortur á sálfræðiþjónustu innan HSA, en stofnunni hefur ekki tekist að ráða í stöðugildi sem stofnunin hefur til ráðstöfunnar, en HSA er ein þeirra ríkisstofnana sem annast frekari greiningu og meðferðarúrræði sem falla undir stig 4. Í minnisblaðinu kemur einnig fram að þeir sem þjónustuna veita séu vel meðvitaðir um stöðuna, en skortur sé á fagfólki og fjármagni. Vitnað er í sameiginlegt málþing sem haldið var í Grunnskóla Reyðarfjarðar síðastliðið haust með aðkomu Fjarðabyggðar, Fljótsdalshéraðs, HSA, Starfa, VA, ME og Virk þar sem farið var ofan í stöðu mála. Þar kom í ljós mikilvægi þess að fjölga meðferðarúrræðum og stytta biðlista. Félagsmálanefnd þakkar samantektina og hvetur sveitarstjórnir og ríkisvald að gera það sem í þeirra valdi stendur til að bæta ástandið. Nefndin leggur jafnframt áherslu á mikilvægi forvarnafræðslu og snemmtækrar íhlutunar svo fækka megi eða koma í veg fyrir alvarleg veikindi.

  9. Bæjarstjórn, fundur 218 liður 6.2

    Fundargerðin „Félagsmálanefnd - 92“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is