Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 92

21. febrúar 2017, kl. 16:00 til 18:00, í Molanum fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, formaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
  • Borghildur Hlíf Stefánsdóttir, aðalmaður
  • Ásmundur Páll Hjaltason, aðalmaður
  • Valdimar O Hermannsson, varaformaður

Starfsmenn

  • Inga Rún Beck Sigfúsdóttir, embættismaður
  • Þóroddur Helgason, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 511 liður 10

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 92 frá 21.febrúar 2017, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 218 liður 6

    Til máls tóku: Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, Valdimar O Hermannsson.

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 21. febrúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Málefni flóttafólks 2015

    Mál 1406154 Allur ferill málsins

    Starfsmenn fjölskyldusviðs, yfirfélagsráðgjafi og fræðslustjóri, fóru yfir samskipti við Velferðarráðuneytið vegna móttöku flóttafólks til Fjarðabyggðar. Verkefnið er samstarfsverkefni Fjarðabyggðar og ráðuneytisins með aðkomu Vinnummálastofnunar, Íbúðalaánasjóðs, Rauða krossins og Fjölmenningaseturs. Félagsmálanefnd lýsir ánægju með framgang verkefnisins og býður nýja íbúa Fjarðabyggðar velkomna.

  2. 2. Bætt sál- og sérfræðiþjónusta í grunnskólum

    Mál 1701031 Allur ferill málsins

    Fyrir lá minnisblað frá fræðslustjóra sem hann vann í samráði við forstöðumann Skólaskrifstofu Austurlands. Í minnisblaðinu er vitnað í reglugerð um nemendur með sérþarfir í grunnskóla nr.584 og minnisblað frá lögfræði- og velferðarsvið Sambands íslenskra sveitarfélaga en þar kemur m.a. fram að skipta megi sérfræðiþjónustunni í grófum dráttum í fjögur stig.

    1. Skimun (forvarnarstarf). Á forræði starfsfólks skóla

    2. Mat (athugun) á þörf fyrir aðstoð eða frekari greiningu. Á forræði sérfræðiþjónustu skóla.

    3. Eftirfylgni við mat á þörf og árangri. Á forræði sérfræðiþjónustu skóla og

    4. Frekari greining og meðferðarúrræði. Á forræði stofnana ríkisins.

    Í minnisblaðinu kemur fram að skóinn kreppi helst á tveimur stöðum. Annars vegar eru það langir biðlistar hjá sálfræðiþjónustu Skólaskrifstofu Austurlands, en hún annast stig 2 og 3 fyrir Austurland og hins vegar er skortur á sálfræðiþjónustu innan HSA, en stofnunni hefur ekki tekist að ráða í stöðugildi sem stofnunin hefur til ráðstöfunnar, en HSA er ein þeirra ríkisstofnana sem annast frekari greiningu og meðferðarúrræði sem falla undir stig 4. Í minnisblaðinu kemur einnig fram að þeir sem þjónustuna veita séu vel meðvitaðir um stöðuna, en skortur sé á fagfólki og fjármagni. Vitnað er í sameiginlegt málþing sem haldið var í Grunnskóla Reyðarfjarðar síðastliðið haust með aðkomu Fjarðabyggðar, Fljótsdalshéraðs, HSA, Starfa, VA, ME og Virk þar sem farið var ofan í stöðu mála. Þar kom í ljós mikilvægi þess að fjölga meðferðarúrræðum og stytta biðlista. Félagsmálanefnd þakkar samantektina og hvetur sveitarstjórnir og ríkisvald að gera það sem í þeirra valdi stendur til að bæta ástandið. Nefndin leggur jafnframt áherslu á mikilvægi forvarnafræðslu og snemmtækrar íhlutunar svo fækka megi eða koma í veg fyrir alvarleg veikindi.

  3. 3. Styrkbeiðni frá Stígamótum vegna þjónustu við brotaþola hjá Fjarðabyggð

    Mál 1702096 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur styrkbeiðni frá Stígamótum vegna þjónustu við brotaþola hjá Fjarðabyggð. Samtökin hafa boðið brotaþolum upp á þjónustu hér eystra frá árinu 2012 og mikil eftirspurn hefur verið eftir þjónustunni. Félagsmálanefnd ákveður að styrkja Stígamót um 500.000 kr. árið 2017.

  4. 4. Drög að reglugerð um útlendingamál til umsagnar

    Mál 1702056 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að reglugerð um útlendingamál. Félagsmálanefnd er boðið að veita umsögn um reglugerðina. Félagsmálanefnd gerir ekki athugasemd við drögin.

  5. 5. Matsmið Fjarðabyggðar fyrir sérstakan húsnæðisstuðning

    Mál 1702137 Allur ferill málsins

    Fyrir liggja drög að matsblaði Fjarðabyggðar vegna reglna sveitarfélagsins um sérstakan húsnæðisstuðning sem samþykktar voru í desember 2016. Félagsmálanefnd samþykkir matsblaðið og það verður tekið til endurskoðunar eftir ár.

  6. 6. Beiðni um styrk vegna málþinga um heilabilun

    Mál 1702094 Allur ferill málsins

    Fyrir beiðni frá félagi aðstandenda alzheimersjúklinga um styrk til að halda málþing í landsfjórðungunum um heilabilun. Kostnaður við málþingin er áætlaður 1,5 - 2 milljónir króna. Félagsmálanefnd samþykkir að styrkja félagið um 100.000 krónur.