Bæjarráð, fundur 511
27. febrúar 2017, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 218 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 27. febrúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Alcoa Fjarðaál
Mál 1609020 Allur ferill málsins
Magnús Þór Ásmundsson forstjóri og Dagmar Ýr Stefánsdóttir upplýsingafulltrúi Alcoa Fjarðaáls mættu á fund bæjarráðs.
Farið yfir sameiginleg málefni.
-
2. Beiðni um styrk til að mæta álögðum fasteignaskatti 2017
Mál 1702158 Allur ferill málsins
Framlagðar beiðnir um styrk til að mæta álögðum fasteignaskatti fyrir árið 2017 vegna ungmennafélaganna Leiknis og Austra, Golfklúbbs Norðfjarðar (golfskáli 1 og 2) og Hestamannafélagsins Blæs (Dalahöllin).
Bæjarráð samþykkir að veittur sé styrkur til samræmis við reglur Fjarðabyggðar um styrkveitingar til greiðslu fasteignaskatts sbr. 2. gr. Styrkveiting nemur í heildina 1.211.498 kr. Vísað til fjármálastjóra til afgreiðslu.
-
3. Sveitarfélögin og ferðaþjónustan
Mál 1702154 Allur ferill málsins
Samband íslenskra sveitarfélaga stendur fyrir málþingi undir yfirskriftinni "Sveitarfélögin og ferðaþjónustan" 2. mars nk. á Hilton Reykjavík Nordica. Bæjarráð felur Valdimar O. Hermannssyni að sækja málþingið.
-
4. Ofanflóðavarnir - Ljósá - framkvæmdaleyfi
Mál 1702085 Allur ferill málsins
Framlagður verksamningur til staðfestingar vegna ofanflóðavarna við Ljósá á Eskifirði að fjárhæð 208.049.372 kr.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans. Vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
-
5. Almenningssamgöngur - ungmennaráð
Mál 1606037 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað framkvæmdasviðs um áætlaðan kostnað við gjaldfrjálsar almenningssamgöngur fyrir aldurshópinn 16 til 18 ára.
Bæjarráð óskar eftir frekari upplýsingum frá framkvæmda-, umhverfis- og veitusviði, sér í lagi varðandi gjaldtöku á skólaakstri.
-
6. Landsþing Sambandsins 24.mars 2017
Mál 1702155 Allur ferill málsins
Boðað er til XXXI. landsþings sambandsins föstudaginn 24. mars nk. Er þingið haldið í Grand hóteli í Reykjavík og hefst það kl. 10. Að þinginu loknu hefst aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. kl. 16:00.
Bæjarráð samþykkir að fulltrúar Fjarðabyggðar á þinginu verði Jón Björn Hákonarson, Valdimar O. Hermannsson, Eydís Ásbjörnsdóttir ásamt Páli Björgvin Guðmundssyni bæjarstjóra.
-
7. Áætlunarferð kl. 20:00 að og frá Hrauni í Reyðarfirði.
Mál 1607068 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað um kostnað og viðræður við fyrirtæki vegna flutnings starfsmanna að og frá Hrauni á Reyðarfirði kl. 20:00.
Bæjarráð samþykkir að sett verði upp ferð að og frá Hrauni í Reyðarfirði kl. 20:00 til tilraunar til 1. júní 2017. Skoðað verður hvernig nýting er á tímabilinu og metið hvort leiðin verði hluti af skipulögðum samgöngum hjá nýju fyrirtæki sem taki við verkefninu.
Kostnaður við verkefnið er metinn allt að 4 milljónir kr. að frádregnum þróunarstyrk. Kostnaður tekinn af liðnum óráðstafað 21690.
-
8. Barnaverndarfundagerðir 2017
Mál 1701220 Allur ferill málsins
Fundargerð barnaverndarnefndar, nr. 71 frá 16. febrúar 2017, lögð fram til kynningar.
-
9. Hafnarstjórn - 174
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 174 frá 21.febrúar 2017, lögð fram til kynningar.
-
10. Félagsmálanefnd - 92
Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 92 frá 21.febrúar 2017, lögð fram til kynningar.
-
11. Íþrótta- og tómstundanefnd - 32
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 32 frá 23.febrúar 2017, lögð fram til kynningar.