Hafnarstjórn, fundur 174
21. febrúar 2017, kl. 16:00 til 17:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)
Fundinn sátu
- Sævar Guðjónsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 511 liður 9
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 174 frá 21.febrúar 2017, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 218 liður 4
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 21. febrúar s.l. að undanskildum lið 7 í fundargerð staðfest með 9 atkvæðum.
Jón Björn Hákonarson vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu liðar 7.
Tók fyrsti varaforseti bæjarstjórnar við stjórn fundur vegna umfjöllun og afgreiðslu liðar 7.
Dagskrárliður 7
Enginn tók til máls.
Dagskrárliður 7 staðfestur með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fundargerðir Hafnasamband Íslands 2017
Mál 1701008 Allur ferill málsins
Fundargerð Hafnasambands Íslands nr. 391 dags. 23. janúars 2017 lögð fram til kynningar.
-
2. Fundargerðir CI á árinu 2017
Mál 1701009 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Cruise Iceland dags. 17.janúar 2017 lögð fram til kynningar.
-
3. Aðalfundur Cruise Europe 25 til 27 apríl 2017
Mál 1702122 Allur ferill málsins
Aðalfundur Cruise Europe verður haldinn í Bremerhaven þann 25 til 27 apríl 2017. Hafnarstjórn samþykkir að senda fulltrúa á fundinn.
-
4. Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Capt. Serhil Halan á Mv Marmaui ?
Mál 1702126 Allur ferill málsins
Erindi frá Thorship dags. 16. febrúar 2017 þar sém óskað er eftir undanþágu frá hafnsöguskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Capt. Serhil Halan skipstjóra á Mv. Marmaui. Hafnarstjórn staðfestir undanþágu frá hafnsögu fyrir Serhil Halan skipstjóra á Mv. Marmaui.
-
5. Ósk um lengingu á stálþili við Egersund á Eskifirði
Mál 1504173 Allur ferill málsins
Upplýsingar frá siglingasviði Vegagerðarinnar dags. 8. febrúar 2017 um til boð í stál fyrir lengingu hafnarkants á Eskifirði.
Hafnarstjórn samþykkir töku tilboðs frá GA ehf í stálþil og festingar fyrir Eskifjörð að upphæð 30,4 millj.kr.
-
6. Ósk um aðstöðu í fyrirhuguðu þjónustuhúsi Fjarðabyggðarhafna á Fáskrúðsfirði
Mál 1702099 Allur ferill málsins
Erindi frá Björgunarsveitinni Geisla á Fáskrúðsfirði dags. 13. febrúar 2017 þar sem óskað er eftir skoðað verði hvort sveitin geti fengið aðstöðu í væntanlegu þjónustuhúsi hafnarinnar við smábátahöfnina.
Hafnarstjórn tekur jákvætt í erindið og tekur það til frekari skoðunar við ákvörðun um byggingu hússins þegar að því kemur.
-
7. Beiðni um styrk til endurbóta á bryggju við Egilsbraut 26
Mál 1702119 Allur ferill málsins
Erindi frá Hákoni Guðröðarsyni dags. 15. febrúar 2017 þar sem óskað er eftir styrk vegna endurbóta á bryggju framan við sjóhúsið að Egilsbraut 26 á Norðfirði.
Hafnarstjórn samþykkir að styrkja endurbætur á bryggju og bryggjupalli í samræmi við reglur hafnarstjórnar um endurgerð gamalla bryggja. Jafnframt samþykkir hafnarstjórn að hækka hámarksgreiðslu úr 500 þ.kr. í 750 þ.kr.
-
8. Fiskeldi í Fjarðabyggð
Mál 1612017 Allur ferill málsins
Lagt fram kort af fyrirhuguðum svæðum sjókvíeldis í fjörðunum. Fyrir liggur að vinna þarf að undirbúningi að frekari stefnumótun í málefnum fiskeldis í fjörðum Fjarðabyggðar. Til undirbúnings þeirri vinnu hefur meðfylgjandi yfirlitsmynd verið unnin. Stefnt er á að málið verði til umræðu á íbúafundum í hverfum bæjarins í vor. Bæjarráð ásamt eigna- skipulags- og umhverfisnefnd mun vinna áfram að stefnumótun í málaflokknum.
-
9. Beiðni um umsögn skipulags- og matslýsingar vegna breytingar á ASK og DSK Leiru 1 Eskifirði
Mál 1702143 Allur ferill málsins
Erindi frá Skipulags- og byggingafulltrúa Fjarðabyggðar dags. 20. febrúar 2017 þar sem óskað er umsagnar um skipulags og matslýsingu vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007 - 2027 þéttbýlisuppdráttur fyrir Eskifjörð, stækkun hafnarsvæðis ásamt breytingu á deiliskipulagi Leiru 1.
Hafnarstjórn gerir ekki athugasemd við skipulags og matslýsinguna.
-
10. Kaup á skotbómulyftara JF 0659
Mál 1702138 Allur ferill málsins
Lagður fram kaupsamningur fyrir skotbómulyftar af gerðinni Merlo árgerð 2007. Hafnarstjórn staðfestir kaupin.