Hafnarstjórn, fundur 173
1. febrúar 2017, kl. 16:00 til 17:15, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sævar Guðjónsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 508 liður 13
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 173 frá 1.febrúar 2017, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 217 liður 4
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórar frá 1.febrúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Skoðun á möguleikum á aðstöðu í landi vegna laxeldis
Mál 1612109 Allur ferill málsins
Erindi frá Löxum Fiskeldi um lóða- og aðstöðumál dags. 25. janúar 2017. Fari yfir vinnuskjal sem lá fyrir og gerðar lagfæringar á því í samræmi við umræður á fundinum. Framkvæmdastjóra falið að svara erindinu.