Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 217

16. febrúar 2017, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (10)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
  • Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Valdimar O Hermannsson, aðalmaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Bæjarráð - 508

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Esther Ösp Gunnarsdóttir.

    Fundargerð bæjarráðs frá 6. febrúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 1.1 Starfslíðan starfsmanna Fjarðabyggðar 20161606136
    2. 1.2 Fjárlög 2017 - Ofanflóðavarnir1702040
    3. 1.3 Bréf foreldrafélaga leikskólanna í Fjarðabyggð1702020
    4. 1.4 Lánasamningur um 400 m.kr. við Íslandsbanka 2017 nr.1701210
    5. 1.5 Málefni flóttafólks 20171406154
    6. 1.6 Uppbygging ljósleiðaraneta í Fjarðabyggð og ríkisaðstoðarreglur EES1411143
    7. 1.7 Framtíðarmöguleikar Sköpunarmiðstöðvarinnar1605155
    8. 1.8 Erindi frá Esbjerg vegna jólatrésgjafar1702026
    9. 1.9 Kjarasamningur KÍ vegna FG - Vegvísir samstarfsnefndar SNS1701123
    10. 1.10 Afnot af gömlu Hulduhlíð1701236
    11. 1.11 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 20171702019
    12. 1.12 Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 20171702036
    13. 1.13 Hafnarstjórn - 1731701017F
  2. 2. Bæjarráð - 509

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Dagskrárlið 7 í fundargerð um staðfestingu samnings við Orkufjarskipti vísað til bæjarráðs til frekari skoðunar og úrvinnslu.

    Fundargerð bæjarráðs frá 13. febrúar s.l. utan dagskrárliðar 7 staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Rekstur málaflokka 2016 - TRÚNAÐARMÁL1602052
    2. 2.2 Skýrsla um endurskoðun fjármálakafla sveitarstjórnarlaga1702088
    3. 2.3 Menningarstefna1306017
    4. 2.4 Endurskoðun samninga við Fjölís1702057
    5. 2.5 Frá foreldrafélögum leikskólana í Fjarðabyggð - hækkun mótmælt1702020
    6. 2.6 Drög að reglugerð um útlendingamál til umsagnar1702056
    7. 2.7 Uppbygging ljósleiðaraneta í Fjarðabyggð og ríkisaðstoðarreglur EES1411143
    8. 2.8 Ósk um greiðslu aksturspeninga til og frá vinnu1607068
    9. 2.9 Beiðni um rekstrarstyrk - Tryggvasafn1702073
    10. 2.10 Drög að reglugerð um eldvarnir og eldvarnareftirlit1701149
    11. 2.11 Búðavegur 35 - stefna1702018
    12. 2.12 Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga1702087
    13. 2.13 Fiskeldi í Fjarðabyggð1612017
    14. 2.14 Ljósá - ofanflóðaframkvæmdir1602108
    15. 2.15 128.mál til umsagnar frumvarp til laga um farþegaflutninga og farmflutninga1702082
    16. 2.16 Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 20171702075
    17. 2.17 Menningar- og safnanefnd - 291702002F
    18. 2.18 Fræðslunefnd - 371702003F
    19. 2.19 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 1681702004F
  3. 3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 168

    Fundargerðin í heild

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 9. febrúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 3.1 Leigulönd í Fjarðabyggð1610078
    2. 3.2 Landbrot - gömlu ruslahaugarnir í Hólmanesi1701233
    3. 3.3 Landsáætlun og Framkvæmdasjóður ferðamannastaða1606126
    4. 3.4 Tjaldsvæði Fjarðabyggð 20171612066
    5. 3.5 Ljósá - ofanflóðaframkvæmdir1602108
    6. 3.6 Ljósleiðaralagning í dreifbýli - Vatnsveita Fannardalur1702054
    7. 3.7 Ljósleiðaralagning í dreifbýli - Vatnsveita Eskifjarðardalur1702053
    8. 3.8 Ljósleiðaralagning í dreifbýli - Kirkjumelur1702052
    9. 3.9 Samningur Veraldarvinir í Fjarðabyggð1604014
    10. 3.10 Gjaldskrá 2017 samþykkt - Strætisvagnar Austurlands1702038
    11. 3.11 Varðar auknar sýnatökur af neysluvatni sem er geislað1701237
    12. 3.12 Skipulagslýsing Breiðdalshrepps1701199
    13. 3.13 755 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027 breyting, þéttbýlisuppdráttur fyrir Stöðvarfjörð, reitur I11611050
    14. 3.14 735 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027. - breyting, stækkun hafnarsvæðis á Eskifirði1701099
    15. 3.15 Deiliskipulag Leira 1, iðnaðar- og hafnarsvæði sunnan Strandgötu - breyting, stækkuna hafnarsvæðis1701100
    16. 3.16 740 Nesbakki 3, Byggingarleyfi - Svalalokun1701140
    17. 3.17 735 Strandgata 88 - byggingarleyfi - sjóhús1702027
    18. 3.18 735 Strandgata 122 - byggingarleyfi - utanhúss klæðning1702028
    19. 3.19 735 Strandgata 12 - stálgrindarhús - byggingarleyfi1701186
    20. 3.20 740 Marbakki 5, Byggingarleyfi - garðhús1702061
    21. 3.21 735 Bleiksárhlíð 56 - Endurnýjun á lóðarleigusamning1701067
    22. 3.22 740 Blómsturvellir 26-32 - Endurnýjun á lóðaleigusamning1701066
    23. 3.23 755 Hvalnes við Stöðvarfjörð - Beiðni um framkvæmdarleyfi v. grjótnáms1702035
    24. 3.24 Ný reglugerð um heimagistingu, gististaði og skemmtanahald - verkferlar ofl.1611016
    25. 3.25 Drög að reglugerð um eldvarnir og eldvarnareftirlit1701149
    26. 3.26 Búðavegur 35 - stefna1702018
    27. 3.27 Kauptilboð - Skólavegur 98-112 grunnur Fáskrúðsfirði.1508067
  4. 4. Hafnarstjórn - 173

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórar frá 1.febrúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 4.1 Skoðun á möguleikum á aðstöðu í landi vegna laxeldis1612109
  5. 5. Fræðslunefnd - 37

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku: Pálína Margeirsdóttir, Elvar Jónsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Valdimar O Hermannsson, Jón Björn Hákonarson, Eydís Ásbjörnsdóttir.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 8. febrúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 5.1 Heimsókn í skólastofnanir1611105
    2. 5.2 Kjarasamningur KÍ vegna FG - Vegvísir samstarfsnefndar SNS1701123
    3. 5.3 Frá foreldrafélögum leikskólana í Fjarðabyggð - hækkun mótmælt1702020
    4. 5.4 Málefni flóttafólks 20151406154
  6. 6. Menningar- og safnanefnd - 29

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku: Esther Ösp Gunnarsdóttir, Jón Björn Hákonarson, Dýrunn Pála Skaftadóttir, Páll Björgvin Guðmundsson.

    Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 8. febrúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 6.1 Menningarstefna Fjarðabyggðar
    2. 6.2 Framtíðarmöguleikar Sköpunarmiðstöðvarinnar
    3. 6.3 Eistnaflug 2017
    4. 6.4 Bætt tónlistaraðstaða fyrir ungmenni
    5. 6.5 Umsókn um styrk vegna húsaleigu í tengslum við leiksýningu í Egilsbúð
  7. 7. Viðauki við lánasamning Íslandsbanka nr. 106527.

    Mál 1701210 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgdi viðauka úr hlaði.

    Viðauka er vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar.

    Viðaukinn felur í sér breytingu á fjárhagsskilyrðum í viðauka við eldri lánasamning við Íslandsbanka, nr. 106527. Breytingin í viðaukanum við lánasamninginn felst í rýmkuðum fjárhagsskilyrðum þannig að út fellur krafa um að veltu fé frá rekstri sem hlutfall heildartekna A hluta skuli vera hærra en 9%. Niðurfelling skilyrðisins rýmkar stöðu Fjarðabyggðar. Allir lánasamningar við Íslandsbanka eru þá með sömu fjárhagslegu skilyrðin.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum viðauki við lánsamning nr. 106527 við Íslandsbanka.

  8. 8. 735 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027. - breyting, stækkun hafnarsvæðis á Eskifirði

    Mál 1701099 Allur ferill málsins

    Forseti fylgdi skipulags- og matslýsingu úr hlaði.

    Engin tók til máls.

    Lögð fram skipulags- og matslýsing vegna breytingar á þéttbýlisuppdrætti aðalskipulags fyrir Eskifjörð. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar skipulags- og matslýsingu til staðfestingar bæjarstjórnar.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum skipulags- og matslýsingu fyrir þéttbýli aðalskipulags fyrir Eskifjörð.

  9. 9. Deiliskipulag Leira 1, iðnaðar- og hafnarsvæði sunnan Strandgötu - breyting, stækkuna hafnarsvæðis

    Mál 1701100 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi skipulags- og matslýsingu úr hlaði.

    Enginn tók til máls.

    Lögð fram skipulags- og matslýsing vegna breytingar á deiliskipulagi Leiru 1, iðnaðar og hafnarsvæðis sunnan Strandgötu á Eskifirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar skipulags- og matslýsingu til staðfestingar bæjarstjórnar.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum skipulags og matslýsingu vegna deiliskipulags Leiru 1.

  10. 10. 735 Strandgata 12 - stálgrindarhús - byggingarleyfi

    Mál 1701186 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði.

    Fyrir liggur umsókn Egersund hf., frá 17. janúar 2017, þar sem sótt er um leyfi til að reisa dúkklætt stálgrindarhús á lóð fyrirtækisins að Strandgötu 12 á Eskifirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir áformaða 6 metra vegghæð byggingar en vísar til bæjararstjórnar staðfestingu þeirra ákvörðunar sbr. 4. gr. almennra skipulags- og byggingarskilmála þar sem hún er 4,5, metrar.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum heimild fyrir aukinni vegghæð í 6 metra.

  11. 11. Menningarstefna

    Mál 1306017 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgdi menningarstefnu Fjarðabyggðar og samstarfssamningi milli Fjarðabyggðar og Tónlistarmiðstöðvar Austurlands úr hlaði.

    Menningar- og safnanefnd og bæjarráð hafa samþykkt Menningarstefnu Fjarðabyggðar og samstarfssamning milli Tónlistarmiðstöðvar Austurlands og Fjarðabyggðar ásamt starfslýsingu starfsmanns Menningarstofu. Stefnu og samstarfssamningi er vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

    Til máls tóku: Valdimar O Hermannsson,Jón Björn Hákonarson.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa samstarfssamningi og menningarstefnu Fjarðabyggðar til síðari umræðu í bæjarstjórn.