Bæjarráð, fundur 509
13. febrúar 2017, kl. 08:30 til 11:35, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 217 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Dagskrárlið 7 í fundargerð um staðfestingu samnings við Orkufjarskipti vísað til bæjarráðs til frekari skoðunar og úrvinnslu.
Fundargerð bæjarráðs frá 13. febrúar s.l. utan dagskrárliðar 7 staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Rekstur málaflokka 2016 - TRÚNAÐARMÁL
Mál 1602052 Allur ferill málsins
Framlagt sem trúnaðarmál málaflokkayfirlit um rekstur málaflokka, launakostnað og framkvæmdir janúar - desember árið 2016, Einnig yfirlit yfir deildir í málaflokkum í A hluta fyrir árið 2016.
Ársreikningur 2016 verður lagður fram 6. apríl n.k.
-
2. Skýrsla um endurskoðun fjármálakafla sveitarstjórnarlaga
Mál 1702088 Allur ferill málsins
Lögð fram skýrsla vinnuhóps í innanríkisráðuneytinu, um endurskoðun fjármálakafla sveitarstjórnarlaga. Fundur um fjármálastefnu, fjármálaáætlun og endurskoðun á fjármálakafla sveitarstjórnarlaga verður haldinn mánudaginn 20. febrúar á Grand hótel í Reykjavík kl. 13:00.
Bæjarstjóri, fjármálastjóri ásamt fulltrúa bæjarráðs munu sækja fundinn.
-
3. Menningarstefna
Mál 1306017 Allur ferill málsins
Frá fundi menningar- og safnanefndar 8. febrúar. Nefndin vísar samstarfssamning milli Tónlistarmiðstöðvar Austurlands og Fjarðabyggðar ásamt starfslýsingu starfsmanns Menningarstofu og menningarstefnu Fjarðabyggðar til bæjarráðs og bæjarstjórnar til endanlegrar samþykktar.
Bæjarráð samþykkir samstarfssamning milli Tónlistarmiðstöðvar Austurlands og Fjarðabyggðar, starfslýsingu starfsmanns Menningarstofu Fjarðabyggðar og Menningarstefnu Fjarðabyggðar.
Bæjarráð samþykkir að vísa samstarfssamningi og menningarstefnu Fjarðabyggðar til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
4. Endurskoðun samninga við Fjölís
Mál 1702057 Allur ferill málsins
Samningur sveitarfélaga við Fjölís lagður fram til kynningar en hann fjallar um aðgang að höfundavörðu efni. Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga mælir með því við sveitarfélög að þau gangi til samninga við Fjölís sbr. meðfylgjandi drög. Kostnaður vegna samnings er 590 kr. á hvern starfsmann sveitarfélagsins en starfsmenn KÍ eru undanskyldir.
Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leiti og felur bæjarstjóra undirritun hans. Vísað til fræðslunefndar til kynningar.
-
5. Frá foreldrafélögum leikskólana í Fjarðabyggð - hækkun mótmælt
Mál 1702020 Allur ferill málsins
Fræðslunefnd vísar til bæjarráðs bréfi stjórnar foreldrafélaganna í Fjarðabyggð ásamt umsögn um málið. Í umsögninni er fjallað um þróun gjaldskrár fyrir leikskólavistun. Gjaldskrá leikskóla í Fjarðabyggð er vel samanburðarhæf við gjaldskrár annarra sveitarfélaga og sérstaklega þegar tekið er tillit til þess að boðið er upp á leikskólaþjónustu fyrir börn frá 12 mánaða aldri. Í nýrri könnun frá ASÍ frá 26. janúar þar sem bornar eru saman gjaldskrár 15 stærstu sveitarfélaga landsins liggur Fjarðabyggð um miðbik hennar. Þá eru systkinaafslættir með þeim bestu á landinu 50% af öðru barni og 100% af þriðja barni auk þess sem veittur er afsláttur milli skólastiga, leikskóla og frístundaheimila. Frá haustinu 2016 hefur sveitarfélagið getað boðið öllum börnum leikskólavist við 12 mánaða aldur.
Bæjarráð tekur undir umsögn fræðslunefndar og felur bæjarstjóra að svara bréfriturum á grundvelli umsagnar.
-
6. Drög að reglugerð um útlendingamál til umsagnar
Mál 1702056 Allur ferill málsins
Framlögð drög að reglugerð um útlendingamál.
Frestur til að veita umsögn um reglugerð um útlendingamál er til 19.febrúar nk.
Vísað til félgasmálanefndar
-
7. Uppbygging ljósleiðaraneta í Fjarðabyggð og ríkisaðstoðarreglur EES
Mál 1411143 Allur ferill málsins
Framlögð drög að samningi við Orkufjarskipti vegna lagningu ljósleiðar um Suðurfirði á árinu 2017 ásamt minnisblaði um framkvæmdina. Gögn eru lögð fram sem trúnaðarmál.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans. Jafnframt er samþykkt að bjóða út verkið og afla leyfisveitinga landeigenda. Fjármálastjóra er falið að leggja fram tillögu fyrir bæjarráð um fyrirkomulag reksturs og fjárfestinga í gegnum b-hlutafyrirtæki sveitarfélagins. Þá hafi framkvæmda-, umhverfis- og veitusvið eftirlit með framkvæmdinni. Viðauki vegna framkvæmdarinnar verður lagður fyrir þegar samningar um jarðvegsframkvæmdir liggja fyrir. Vísað til kynningar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.
-
8. Ósk um greiðslu aksturspeninga til og frá vinnu
Mál 1607068 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Indriða Margeirssonar er varðar akstur að og frá slökkvistöð, sem hluti af skipulögðum samgöngum. Eins og fram kemur í bréfi Indriða hefur úrlausn þessa verkefnis tafist nokkuð, m.a. vegna þess að kostnaður við áætlunarleiðina er hærri en áætlað var og ekki hefur fundist endanleg lausn á hvernig best er að leysa málið. Búið er að setja tímamörk á verkefnið en 27.febrúar mun liggja endanlega fyrir með hvaða hætti málið verður leyst. Bæjarstjóri upplýsti að þeim starfsmönnum slökkviliðs sem málið varðar, hefur verið veittur styrkur vegna ferðakostnaðar frá því í mars 2016 og er þessi styrkur enn við lýði.
-
9. Beiðni um rekstrarstyrk - Tryggvasafn
Mál 1702073 Allur ferill málsins
Framlag bréf stjórnar Tryggvasafns þar sem óskað er eftir rekstrarstyrk til safnsins. Bæjarráð samþykkir að veita umbeðinn styrk að fjárhæð 1.359.467 kr. til Tryggvasafns á árinu 2016. Þá samþykkir bæjarráð jafnframt að veittur sé styrkur til Safns Jósafats Hinrikssonar að sömu upphæð fyrir árið 2016.
Kostnaður rúmast innan fjárheimilda menningarmála á árinu 2016. Bæjarstjóra er jafnframt falið að vinna frekar að málum safnaráðs í samráði við formann safnaráðs.
-
10. Drög að reglugerð um eldvarnir og eldvarnareftirlit
Mál 1701149 Allur ferill málsins
Frá fyrri fundi bæjarráðs. Framlögð til kynningar umsögn slökkviliðsstjóra um nýja reglugerð um eldvarnir og eldvarnareftirlit. Vísað til kynningar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.
-
11. Búðavegur 35 - stefna
Mál 1702018 Allur ferill málsins
Lögð fram stefna Grétars Helga Geirssonar, Bergs Einarssonar og Grímseyjarbræðra ehf. vegna meints fjártjóns þeirra í tengslum við Búðaveg 35 á Fáskrúðsfirði. Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til bæjarráðs til afgreiðslu. Bæjarráð felur bæjarstjóra að taka til varna fyrir hönd sveitarfélagsins.
-
12. Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga
Mál 1702087 Allur ferill málsins
Kjörnefnd, sem skipuð var af stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga, óskar eftir tilnefningum í stjórn sjóðsins fyrir kl. 12:00 mánudaginn 27.febrúar nk. Lagt fram til kynningar.
-
13. Fiskeldi í Fjarðabyggð
Mál 1612017 Allur ferill málsins
Lagt fram kort af fyrirhuguðum svæðum sjókvíeldis í fjörðunum. Fyrir liggur að vinna þarf að undirbúningi að frekari stefnumótun í málefnum fiskeldis í fjörðum Fjarðabyggðar. Til undirbúnings þeirri vinnu hefur meðfylgjandi yfirlitsmynd verið unnin. Stefnt er á að málið verði til umræðu á íbúafundum í hverfum bæjarins í vor. Bæjarráð ásamt eigna- skipulags- og umhverfisnefnd mun vinna áfram að stefnumótun í málaflokknum. Vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar til umræðu.
-
14. Ljósá - ofanflóðaframkvæmdir
Mál 1602108 Allur ferill málsins
Lögð fram niðurstaða um útboð ofanflóðaframkvæmda við Ljósá frá Framkvæmdasýslu ríkisins. Eitt tilboð barst að upphæð 212.742.842 kr. frá Héraðsverki og MVA. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt tillögu Framkvæmdasýslunnar um að tilboði verði tekið og vísar staðfestingu til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að tilboði í verkið verði tekið.
-
15. 128.mál til umsagnar frumvarp til laga um farþegaflutninga og farmflutninga
Mál 1702082 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar frumvarp til laga um farðþegaflutninga og farmflutninga. Umsagnarfrestur um stjórnarfrumvarp til laga um farþegaflutninga og farmflutninga er til 24.febrúar nk.
Vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar.
-
16. Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2017
Mál 1702075 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 3.febrúar 2017, lögð fram til kynningar.
-
17. Menningar- og safnanefnd - 29
Fundargerð menningar- og safnanefndar, nr. 29 frá 9.febrúar 2017, lögð fram til kynningar.
- 17.1 Menningarstefna Fjarðabyggðar
- 17.2 Framtíðarmöguleikar Sköpunarmiðstöðvarinnar
- 17.3 Eistnaflug 2017
- 17.4 Bætt tónlistaraðstaða fyrir ungmenni
- 17.5 Umsókn um styrk vegna húsaleigu í tengslum við leiksýningu í Egilsbúð
-
18. Fræðslunefnd - 37
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 37 frá 9.febrúar 2017, lögð fram til kynningar.
- 18.1 Heimsókn í skólastofnanir1611105
- 18.2 Kjarasamningur KÍ vegna FG - Vegvísir samstarfsnefndar SNS1701123
- 18.3 Frá foreldrafélögum leikskólana í Fjarðabyggð - hækkun mótmælt1702020
- 18.4 Málefni flóttafólks 20151406154
-
19. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 168
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 168 frá 9.febrúar 2017, lögð fram til kynningar.
- 19.1 Leigulönd í Fjarðabyggð1610078
- 19.2 Landbrot - gömlu ruslahaugarnir í Hólmanesi1701233
- 19.3 Landsáætlun og Framkvæmdasjóður ferðamannastaða1606126
- 19.4 Tjaldsvæði Fjarðabyggð 20171612066
- 19.5 Ljósá - ofanflóðaframkvæmdir1602108
- 19.6 Ljósleiðaralagning í dreifbýli - Vatnsveita Fannardalur1702054
- 19.7 Ljósleiðaralagning í dreifbýli - Vatnsveita Eskifjarðardalur1702053
- 19.8 Ljósleiðaralagning í dreifbýli - Kirkjumelur1702052
- 19.9 Samningur Veraldarvinir í Fjarðabyggð1604014
- 19.10 Gjaldskrá 2017 samþykkt - Strætisvagnar Austurlands1702038
- 19.11 Varðar auknar sýnatökur af neysluvatni sem er geislað1701237
- 19.12 Skipulagslýsing Breiðdalshrepps1701199
- 19.13 755 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027 breyting, þéttbýlisuppdráttur fyrir Stöðvarfjörð, reitur I11611050
- 19.14 735 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027. - breyting, stækkun hafnarsvæðis á Eskifirði1701099
- 19.15 Deiliskipulag Leira 1, iðnaðar- og hafnarsvæði sunnan Strandgötu - breyting, stækkuna hafnarsvæðis1701100
- 19.16 740 Nesbakki 3, Byggingarleyfi - Svalalokun1701140
- 19.17 735 Strandgata 88 - byggingarleyfi - sjóhús1702027
- 19.18 735 Strandgata 122 - byggingarleyfi - utanhúss klæðning1702028
- 19.19 735 Strandgata 12 - stálgrindarhús - byggingarleyfi1701186
- 19.20 740 Marbakki 5, Byggingarleyfi - garðhús1702061
- 19.21 735 Bleiksárhlíð 56 - Endurnýjun á lóðarleigusamning1701067
- 19.22 740 Blómsturvellir 26-32 - Endurnýjun á lóðaleigusamning1701066
- 19.23 755 Hvalnes við Stöðvarfjörð - Beiðni um framkvæmdarleyfi v. grjótnáms1702035
- 19.24 Ný reglugerð um heimagistingu, gististaði og skemmtanahald - verkferlar ofl.1611016
- 19.25 Drög að reglugerð um eldvarnir og eldvarnareftirlit1701149
- 19.26 Búðavegur 35 - stefna1702018
- 19.27 Kauptilboð - Skólavegur 98-112 grunnur Fáskrúðsfirði.1508067