735 Strandgata 88 - byggingarleyfi - sjóhús
Mál 1702027 Fyrst á dagskrá 9. febrúar 2017, síðast 16. febrúar 2017. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 168 liður 17
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Berglindar Steinu Ingvarsdóttur, dagsett 30. janúar 2017, þar sem sótt er um leyfi til að gera upp og færa hús hennar að Strandgötu 88 á Eskifirði sunnar og vestar á lóðinni ásamt því að gera íbúð á 2. hæð samkvæmt teikningum frá AVH, arkitektúr, verkfræði, hönnun.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.
-
Bæjarráð, fundur 509 liður 19.17
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 168“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 217 liður 3.17
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 168“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.