Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

Frá foreldrafélögum leikskólana í Fjarðabyggð - hækkun mótmælt

Mál 1702020 Fyrst á dagskrá 6. febrúar 2017, síðast 16. febrúar 2017. 7 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.

Í heiti málsins: Skólar og fræðsla

Í hnotskurn

Málið fjallar um bréf frá stjórnum foreldrafélaga leikskólanna í Fjarðabyggð þar sem mótmælt er breytingum á gjaldskrá leikskólanna og niðurfellingu gjaldfrjálsrar fjögurra tíma vistunar elsta árgangs1. Bæjarráð tók undir umsögn fræðslunefndar og fól bæjarstjóra að svara bréfriturum, og bæjarstjórn staðfesti afgreiðsluna 16. febrúar 201736.

Staðan

Bæjarstjóra var falið að svara foreldrafélögunum á grundvelli umsagnar fræðslunefndar og bæjarstjórn staðfesti þá afgreiðslu36.

Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Bæjarráð, fundur 508 liður 3

    Bréf foreldrafélaga leikskólanna í Fjarðabyggð

    Bréf foreldrafélaganna var lagt fram og vísað til fræðslunefndar, með þeim fyrirvara að bæjarráð tæki málið aftur fyrir.

    Endursögn gervigreindar

    Framlagt bréf frá stjórnum foreldrafélaga leikskólanna í Fjarðabyggð þar sem mótmælt er breytingum á gjaldskrá leikskólanna og þeirri ákvörðun að fella niður gjaldfrjálsa fjögurra tíma vistun elsta árgangs skólanna.

    Vísað til fræðslunefndar en málið verður aftur tekið fyrir í bæjarráði.

  2. Fræðslunefnd, fundur 37 liður 3

    Fræðslunefnd þakkaði fyrir bréfið og sendi bæjarráði umsögn þar sem fram kemur að gjaldskrá leikskóla í Fjarðabyggð sé um miðbik í samanburði ASÍ á 15 stærstu sveitarfélögum landsins og að systkinaafsláttur sé 50% af öðru barni og 100% af þriðja barni.

    Endursögn gervigreindar

    Framlagt er bréf stjórnar foreldrafélaganna í Fjarðabyggð sem sent var til allra bæjarfulltrúa, bæjarstjóra og fræðslunefndar. Í bréfinu er mótmælt hækkunum á gjaldskrá leikskólanna og niðurfellingu á fjórum gjaldfrjálsum tímum á dag hjá elsta árgangi. Fræðslunefnd þakkar fyrir bréfið og sendir umsögn um bréfið til bæjarráðs Fjarðabyggðar. Í umsögninni kemur m.a. fram að vissulega séu bæði gjaldskrárhækkanir og niðurfelling á fyrrgreindum afslætti íþyngjandi fyrir fjölskyldur en eftir sem áður er gjaldskrá leikskóla í Fjarðabyggð vel samanburðarhæf við gjaldskrár annarra sveitarfélaga og sérstaklega þegar tekið er tillit til þess að boðið er upp á leikskólaþjónustu fyrir börn frá 12 mánaða aldri. Í nýrri könnun frá ASÍ frá 26. janúar þar sem bornar eru saman gjaldskrár 15 stærstu sveitarfélaga landsins liggur sveitarfélagið um miðbik. Þá má geta þess að systkinaafslættir eru með þeim bestu á landinu 50% af öðru barni og 100% af þriðja barni og einnig er veittur afsláttur milli skólastiga, leikskóla og frístundaheimila. Að lokum kemur fram að frá haustinu 2016 hafi sveitarfélagið getað boðið öllum börnum leikskólavist við 12 mánaða aldur með tilkomu nýja leikskólans á Norðfirði og í ár verða hannaðar viðbyggingar við leikskólana á Eskifirði og Reyðarfirði. Vísað til bæjarráðs til frekari umræðu.

  3. Bæjarráð, fundur 509 liður 5

    Bæjarráð tók undir umsögn fræðslunefndar og fól bæjarstjóra að svara bréfriturum á grundvelli hennar.

    Endursögn gervigreindar

    Fræðslunefnd vísar til bæjarráðs bréfi stjórnar foreldrafélaganna í Fjarðabyggð ásamt umsögn um málið. Í umsögninni er fjallað um þróun gjaldskrár fyrir leikskólavistun. Gjaldskrá leikskóla í Fjarðabyggð er vel samanburðarhæf við gjaldskrár annarra sveitarfélaga og sérstaklega þegar tekið er tillit til þess að boðið er upp á leikskólaþjónustu fyrir börn frá 12 mánaða aldri. Í nýrri könnun frá ASÍ frá 26. janúar þar sem bornar eru saman gjaldskrár 15 stærstu sveitarfélaga landsins liggur Fjarðabyggð um miðbik hennar. Þá eru systkinaafslættir með þeim bestu á landinu 50% af öðru barni og 100% af þriðja barni auk þess sem veittur er afsláttur milli skólastiga, leikskóla og frístundaheimila. Frá haustinu 2016 hefur sveitarfélagið getað boðið öllum börnum leikskólavist við 12 mánaða aldur.

    Lesa alla bókunina (14 orð til viðbótar)

    Bæjarráð tekur undir umsögn fræðslunefndar og felur bæjarstjóra að svara bréfriturum á grundvelli umsagnar.

  4. Bæjarráð, fundur 509 liður 18.3

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 37“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  5. Bæjarstjórn, fundur 217 liður 1.3

    Fundargerðin „Bæjarráð - 508“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Bréf foreldrafélaga leikskólanna í Fjarðabyggð

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  6. Bæjarstjórn, fundur 217 liður 2.5

    Fundargerðin „Bæjarráð - 509“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  7. Bæjarstjórn, fundur 217 liður 5.3

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 37“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is