Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

Varðar auknar sýnatökur af neysluvatni sem er geislað

Mál 1701237 Fyrst á dagskrá 9. febrúar 2017, síðast 16. febrúar 2017. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 168 liður 11

    Varðar auknar sýnatökur af neysluvatni sem er geislað

    Fjölgun reglubundinna sýna í geisluðu vatni

    Á fundi heilbrigðisnefndar sem haldinn var 7.12.2016 var samþykkt tillaga um að kynna rekstaraðilum neysluvatnsveitna sem nota geislatæki til að hreinsa neysluvatnið tillögu um að fjölga sýnatökum lítillega.

    Lesa alla bókunina (121 orð til viðbótar)

    Ástæða virðist vera til að vakta betur geislað vatn heldur en borholuvatn. Í flestum tilfellum er neysluvatn sem þarf að geisla tekið út brunnum eða yfirborðsvatn notað og í ljós hefur komið að geislatæki eru viðkvæm fyrir sveiflum í rafstraumi o.fl.

    Af hálfu HAUST hafa sýni af neysluvatnsveitum verið tekin skv. kröfum neysluvatnsreglugerðar nr. 536/2001 (sjá töflu sem fylgir). Um er að ræða lágmarksfjölda sýna, ekki síst þar sem veiturnar sjálfar eru ekki að taka sýni sem hluta af innra eftirliti veitnanna. Í tillögunni er gert ráð fyrir að fjölga sýnum um eitt þar sem taka ber tvö sýni árlega og um tvö þar sem taka ber fjögur sýni árlega.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd lýsir ánægju með fjölgun sýnatöku úr vatnsveitum.

  2. Bæjarráð, fundur 509 liður 19.11

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 168“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarstjórn, fundur 217 liður 3.11

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 168“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is