Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 510

20. febrúar 2017, kl. 08:30 til 09:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (3)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 218 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 20.febrúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Beiðni um fjárframlag fyrir Ungt Austurland

    Mál 1702024 Allur ferill málsins

    Fram lögð beiðni um styrk til að halda byggðaráðstefnu Ungra Austfirðinga í apríl 2017. Óskað er eftir fjárframlagi að fjárhæð 705.000 kr. sem reiknað er sem hlutfall af íbúatölu sveitarfélaga á Austurlandi.

    Bæjarráð samþykkir að styrkja ráðstefnuna um 705.000 kr.

    Tekið af liðnum óráðstaf 21690.

  2. 2. Fundargerðir stjórnar SSA 2017

    Mál 1701059 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnarfundar frá 31.janúar 2017 lögð fram til kynningar.

  3. 3. Beiðni um styrk vegna málþinga um heilabilun

    Mál 1702094 Allur ferill málsins

    Fram lagt erindi Alzheimersamtakann en þau hyggjast kom á fót námi í heilabilunarráðgjöf á Íslandi. Til að hefja umræðu um námið hyggjast samtökin halda málþing um land allt vorið 2017 og óskað er eftir styrk til þeirra.

    Vísað til félagsmálanefndar.

  4. 4. Ósk um aðstöðu í fyrirhuguðu þjónustuhúsi Fjarðabyggðarhafna á Fáskrúðsfirði

    Mál 1702099 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni Björgunarsveitarinnar Geisla um aðstöðu í fyrirhuguðu þjónustuhúsi Fjarðabyggðarhafnar á Fáskrúðsfirði.

    Bæjarráð tekur vel í erindið og vísar til afgreiðslu í hafnarstjórn.

  5. 5. Kauptilboð í Hæðargerði 6

    Mál 1702091 Allur ferill málsins

    Lagt fram kauptilboð frá Jóni Kristni Henrikssen í fasteignina Hæðargerði 6 á Reyðarfirði, fastanúmer 217-7217 að fjárhæð 11.025.000 kr. Kauptilboðið er samþykkt með fyrirvara um samþykki bæjarráðs. Óskað er eftir að bæjarráð samþykki kauptilboðið.

    Bæjarráð samþykkir kauptilboð og felur bæjarstjóra að undirrita skjöl vegna sölu eignarinnar.

  6. 6. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 169

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til kynningar fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 16.febrúar 2017.