Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 172

24. janúar 2017, kl. 16:00 til 17:10, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Sævar Guðjónsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Steinþór Pétursson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 507 liður 13

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 172 frá 24.janúar 2017, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 216 liður 4

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 24.janúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Tilkynning um fyrirhugaða 4.000 tonna laxeldisstöð Laxar fiskeldis ehf. í sjókvíum í Fáskrúðfirði

    Mál 1201079 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur ákvörðun Skipulagsstofnunar sags. 28. desember 2016 um matsáætlun vegna fyrirhugaðs 4.000 tonna framleiðslu á laxi í Fáskrúðsfirði á vegum Laxa fiskeldis. Niðurstaðan er sú að Skipulagsstofnun felst á matsáætlunina með ákveðnum athugasemdum sem uppfylla þurfi við gerð frummatsskýrslu. Málið kynnt.

  2. 2. Efnistaka í Norðfjarðarflóa

    Mál 1612118 Allur ferill málsins

    Rætt um rannsóknarskýrslur sem gerðar eru fyrir Fjarðabyggð og heimildir til notkunar á þeim af þriðja aðila. Hafnarstjórn telur að ætli utan aðkomandi aðilar að nota rannsóknir gerðar fyrir sveitarfélgið og kostaðar af því sé rétt að til komi greiðsla fyrir afnotin. Hafnarstjórn hvetur bæjarráð til að móta stefnu þar að lútandi.

  3. 3. 750 Bygging hafnarkants við frystigeymslu á Fáskrúðsfirði

    Mál 1505078 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað framkvæmdastjóra hafna frá 11.janúar sl. vegna framkvæmda við hafnarkant á Fáskrúðsfirði. Eitt tilboð barst í verkið sem var yfir kostnaðaráætlun og samningar hafa lækkað tilboðsfjárhæð. Bæjarráð hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, umsamið tilboðsverð sem fengið er að undangengnum samningum og vísar endanlegri ákvörðun um töku tilboðs til hafnarstjórnar. Hafnarstjórn samþykkir að gengið verði til samninga við MVA hf um verkið.

  4. 4. Umsókn um skammtímaafnot af landi við Mjóeyrarhöfn

    Mál 1701180 Allur ferill málsins

    Farið yfir beiðni um afnot af svæði til skammstíma til samsetningar kvía. Farið var yfir drög að samkomulagi og er framkvæmdastjóra falið að ganga frá samkomulagi um svæði.

  5. 5. Mjóeyrarhöfn 2.áfangi - stækkun

    Mál 1210091 Allur ferill málsins

    Skoðun á gögnum vegna undirbúnings að gerð útboðsgagna fyrir uppdælingu efnis í farg og fyllingu við Mjóeyrarhöfn.

    Fyllingin miðast við gerð 160 metra kants og staðsetningu eins og í frumgögnum frá 2007. Þá er miðað við að dýpi við kant verði 14,5 metrar eins og er við núverandi kant á Mjóeyrarhöfn.