Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 171

3. janúar 2017, kl. 16:00 til 17:45, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)

Fundinn sátu

  • Sævar Guðjónsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Steinþór Pétursson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 504 liður 9

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 171 frá 3. janúar 2017, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 215 liður 6

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 3. janúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fundargerðir CI á árinu 2016

    Mál 1601011 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Cruise Iceland dags. 29. nóvember 2016. Lögð fram til kynningar.

  2. 2. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2016

    Mál 1601010 Allur ferill málsins

    Fundargerð Hafnasambands Íslands nr. 390 dags. 7. desember 2016 lögð fram til kynningar.

  3. 3. Framlög til hafnaframkvæmda í fjárlögum 2017

    Mál 1612064 Allur ferill málsins

    Erindi frá Hafnasambandi Íslands dags. 12. desember 2016 þar sem kynntur er verulegur niðurskurður í frumvarpi til fjárlaga 2017 til hafnaframkvæmda, samanborið við ný samþykkta samgönguáætlun. Aðildarhafnir eru hvattar til að láta í sér heyra vegna málsins og nýta tækifæri sem gefast til að ræða þetta við þingmenn.

  4. 4. Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldi Samskip Skaftafell 2. desember 2016

    Mál 1612018 Allur ferill málsins

    Erindi frá Samskipum hf. dags. 2. desember 2016 þar sem óskað er eftir undanþágu frá hafnsöguskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Capt. Sitnik Valery skipstjóra á MS Samskip Skaftafell.

    Hafnarstjórn staðfestir undanþágu fyrir Sitnik Valery skipstjóra á MS Samskip Skaftafell.

  5. 5. Öryggismyndavélar

    Mál 1612141 Allur ferill málsins

    Gerð grein fyrir skoðun á kostnaði við uppsetningu öryggismyndavéla á smábátahafnir í Fjarðabyggð. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vinna í málinu.

  6. 6. Norðfjörður - Fylling og stálþil á þróunarsvæði

    Mál 1503131 Allur ferill málsins

    Erindi frá Fjarðaneti dags. 2. des. 2016 þar sem spurt er um stauraröð innan við nýja kantinn til að styðja við skip sem þar leggja. Hafnarstjórn tekur ekki afstöðu til málsins að svo stöddu en felur framkvæmdastjóra að heyra í framkvæmdastjóra Fjarðanets vegna málsins.

  7. 7. Skoðun á möguleikum á aðstöðu í landi vegna laxeldis

    Mál 1612109 Allur ferill málsins

    Farið yfir málefni varðandi fyrirhugað laxeldi í Reyðarfirði og skoðun Laxa fiskeldis ehf á mögulegum staðsetningu fyrir starfsemi þeirra í landi. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vinna málið áfram.

  8. 8. Mjóeyrarhöfn 2.áfangi - stækkun

    Mál 1210091 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur leyfi fyrir efnistöku vegna annars áfanga Mjóeyrarhafnar. Óskað er heimildar til að láta gera útboðsgögn vegna dælingar efnis í farg og fyllingu undir bryggjuna og að bjóða verkið út.

    Hafnarstjórn heimilar að hefja vinnu við útboðsgögn vegna dælingar og útboðs á henni. Framkvæmdastjóra einnig falið að sækja um framkvæmdaleyfi vegna framkvæmdar við 2. áfanga Mjóeyrarhafnar.

  9. 9. Efnistaka við Ljósá í Reyðarfirði

    Mál 1608111 Allur ferill málsins

    Hafnarsjóður Fjarðabyggðar hefur sent til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar beiðni um framkvæmdarleyfi skv. skipulagsslögum og á grunni stefnu í Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 til efnistöku úr sjó við Ljósá í Reyðarfirði.

    Hafnarstjóri kynnti fyrir hafnarstjórn beiðni um framkvæmdarleyfi til efnistöku við Ljósá. Hafnarstjórn staðfesti beiðnina.

  10. 10. 750 Bygging hafnarkants við frystigeymslu á Fáskrúðsfirði

    Mál 1505078 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu mála varðandi framkvæmdir við Strandarbryggju.

  11. 11. Rafmagnstenglar á höfnum Fjarðabyggðar

    Mál 1612140 Allur ferill málsins

    Umræða um rafmagnsmál á höfnum Fjarðabyggðar, en mikil umræða hefur verið undanfarin misseri um að auka þurfi notkun skipa og báta á landrafmagni þegar þau liggja í landi frekar en að keyra ljósavélar við bryggju. Framkvæmdastjóra falið að fara yfir þessi mál.