Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 504

5. janúar 2017, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 215 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar afgreiðslu saman.

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráð frá 9.janúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2016 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1602052 Allur ferill málsins

    Framlagt sem trúnaðarmál málaflokkayfirlit um rekstur málaflokka og framkvæmdir janúar - nóvember 2016, launakostnað og skatttekjur janúar - desember 2016.

  2. 2. Uppgröftur í Stöð

    Mál 1509028 Allur ferill málsins

    Framlag Fjarðabyggðar til fornleifarannsókna að Stöð í Stöðvarfirði nemur 1.000.000 kr. á árinu 2017.

    Sveitarfélagið ábyrgist jafnframt kostnað við forvörslu muna fyrir um 400.000 kr.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samkomulag um styrk til áhugafélags um fornleifarannsóknir að Stöð.

  3. 3. Endurskipulagning fjármála Hitaveitu Fjarðabyggðar

    Mál 1612125 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað og tillaga fjármálastjóra, um endurskipulagningu á fjármálum Hitaveitu Fjarðabyggðar. Fjármálastjóra falið að vinna áfram að endurskipulagningu fjármála veitunnar í tengslum við endurfjármögnun á árinu 2017.

  4. 4. Kaupréttarákvæði 2016 um Melgerði 13 Reyðarfirði

    Mál 1603023 Allur ferill málsins

    Fjallað um mögulega nýtingu á kauprétti á félagsaðstöðu eldri borgara í fasteigninni Melgerði 13 Reyðarfirði og mögulega lántöku vegna kaupanna. Áður á dagskrá bæjarráðs 15. mars og 14. október 2016.

    Vísað til frekari vinnslu fjármálastjóra og umræðu á næsta bæjarráðsfundi.

  5. 5. Endurfjármögnun skammtímaláns 2017

    Mál 1612126 Allur ferill málsins

    Fjallað um fjármögnun greiðslu á skammtímaláni í lok janúar með lántöku og aðrar ráðstafanir í lánsfjármögnun Fjarðabyggðar og stofnana.

    Vísað til frekari vinnslu fjármálastjóra og umræðu á næsta bæjarráðsfundi.

  6. 6. Merking á Hótel Egilsbúð

    Mál 1405074 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar ákvörðun Einkaleyfastofu um að fella úr gildi skráningu Trölla ehf. á "Guesthouse Egilsbúð" og "Hótel Egilsbúð"

  7. 7. "Fjallahjólapark" í Oddskarði

    Mál 1701015 Allur ferill málsins

    Frá sameiginlegum fundi bæjarstjórnar og ungmennaráðs.

    Umræðu um útivistarsvæðið í Oddskarði sem framtíðarstað fyrir fjallahjólapart, var vísað til íþrótta- og tómstundanefndar og bæjarráðs.

    Bæjarráð vísar umfjöllun til íþrótta- og tómstundanefndar og tekur málið fyrir að lokinni umfjöllun nefndarinnar.

  8. 8. Almenningssamgöngur - ungmennaráð

    Mál 1606037 Allur ferill málsins

    Frá sameiginlegum fundi bæjarstjórnar og ungmennaráðs.

    Umræðu um af hverju er ekki frítt í almenningssamngörnar fyrir 16 - 18 ára vísað til bæjarráðs og eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

    Vinna stendur yfir við stofnun einkahlutafélags um rekstur skipulagðra samgangna á Austurlandi.

    Bæjarráð vísar umfjöllun til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og tekur málið fyrir að nýju að lokinni umfjöllun nefndarinnar og samhliða vinnu við endurskoðun á skipulögðum samgöngum.

  9. 9. Hafnarstjórn - 171

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 171 frá 3. janúar 2017, lögð fram til kynningar.

  10. 10. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 164

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 164 frá 2.janúar 2017, lögð fram til kynningar.