Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 164

2. janúar 2017, kl. 16:00 til 18:15, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Svanhvít Yngvadóttir, aðalmaður
  • Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, varaformaður

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 504 liður 10

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 164 frá 2.janúar 2017, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 215 liður 3

    Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 2.janúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Skoðun á möguleikum á aðstöðu í landi vegna laxeldis

    Mál 1612109 Allur ferill málsins

    Farið yfir málefni varðandi fyrirhugað laxeldi í Reyðarfirði og skoðun Laxa fiskeldis ehf á mögulegum staðsetningum fyrir starfsemi þeirra í landi.

  2. 2. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands árið 2016

    Mál 1602074 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð 132. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands.

  3. 3. Brúarvegrið við Vattarnesveg yfir Kikjubólsá, Fáskrúðsfirði

    Mál 1612094 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf hestamanna á félagssvæði Hestamannafélagsins Goða á Fáskrúðsfirði, dagsett 7. desember 2016, þar sem óskað er eftir leyfi fyrir léttri trébrú yfir Kirkjubólsá gegnt Goðatúni 9 eða á öðrum hentugum stað.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd getur ekki fallist á að hestaumferð verði um Nesveg og telur að breikkun brúar yfir Kirkjubólsá sé heppilegri kostur. Nefndin felur sviðstjóra að ræða hugmyndina frekar í samráði við hestamenn og Vegagerðina.

  4. 4. 740 Sæbakki 10 - viðbygging - byggingarleyfi

    Mál 1612086 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Elísabetar G. Birgisdóttur, dagsett 14. desember 2016, þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu við hús hennar að Sæbakka 10 á Norðfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að afla frekari gagna vegna umsóknarinnar.

  5. 5. 740 deiliskipulag fólkvangs Neskaupstaðar

    Mál 1606100 Allur ferill málsins

    Kynnt tillaga að deiliskipulagi Fólkvangs Neskaupstaðar.

    Tekið fyrir að nýju á nesta fundi í samræmi við umræður í nefndinni.

  6. 6. Endurskoðun á umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar 2016

    Mál 1604018 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsögn Lögreglustjóra Austurlands vegna breytinga á umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir ýmsa liði samþykktarinnar og tekur hana fyrir að nýju á næsta fundi.

  7. 7. Starfshópur um göngu- og hjólreiðastíga

    Mál 1510014 Allur ferill málsins

    Farið yfir þær tillögur sem fyrir liggja vegna göngu- og hjólreiðastíga. Umhverfisstjóra falið að vinna málið áfram á milli funda.

  8. 8. Efnistaka við Ljósá í Reyðarfirði - framkvæmdarleyfi Skipulagsstofnunar

    Mál 1701007 Allur ferill málsins

    Lögð fram framkvæmdaleyfisumsókn Fjarðabyggðarhafna þar sem sótt er um leyfi til allt að 120.000 m3 efnistöku á allt að 46.500 m2 svæði við Ljósa í Reyðarfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfið.