Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 165

9. janúar 2017, kl. 16:00 til 16:50, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Svanhvít Yngvadóttir, aðalmaður
  • Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, varaformaður

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 505 liður 13

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 165 frá 9.janúar 2017, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 215 liður 4

    Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Lagfæring á veg frá Viðfirði út að Barðsnesi sunnan Norðfjarðar

    Mál 1610002 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsögn Náttúrustofu Austurlands, dagsett 5. janúar 2017,- og umsögn Umhverfisstofnunar, dagsett 4. janúar 2017, vegna lagfæringar á veg frá Viðfirði út að Barðsnesi.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfisstjóra að upplýsa umsækjanda um umsagnir.

  2. 2. Umsjónarsamningar - Helgustaðanáma og Hólmanes

    Mál 1612008 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að samningi um umsjón og rekstur friðlandsins í Hólmanesi ásamt minnisblaði umhverfisstjóra, dagsettu 6. janúar 2017.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfisstjóra í samráði við bæjarstjóra að vinna málið áfram.

  3. 3. Tilkynning um fyrirhugaða 4.000 tonna laxeldisstöð Laxar fiskeldis ehf. í sjókvíum í Fáskrúðfirði

    Mál 1201079 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar ákvörðun Skipulagsstofnunar um að fallist sé á matsáætlun framkvæmdaaðila, með athugasemdum, vegna framleiðslu á allt að 4000 tonnum af laxi í Fáskrúðsfirði, dagsett 28. desember 2016.

  4. 4. Uppbygging ljósleiðaraneta í Fjarðabyggð og ríkisaðstoðarreglur EES

    Mál 1411143 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar minnisblað merkt trúnaðarmál, um stöðu ljósleiðaravæðingar dreifbýlis í Fjarðabyggð og umsóknir um styrki til verkefnisins á árinu 2017. Bæjarráð hefur samþykkt að sótt verði um ríkisstyrk til Fjarskiptasjóðs vegna ljósleiðaravæðingar dreifbýlis í Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði að sunnanverðu upp í gegnum Daladal og innanverðan Reyðarfjörð sunnan Sléttuár. Jafnframt verði sótt um ríkisstyrk vegna dreifbýlis á Norðfirði. Áhugi íbúa í dreifbýli á þessum svæðum verði kannaður samhliða umsókn. Bæjarstjóra falið að kanna hjá Fjarskiptasjóði hvernig staða hringtengingar fjarskipta Norðfjarðar og Eskifjarðar standi með hliðsjón af Mjóafirði. Vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar til kynningar frá bæjarráði.

  5. 5. 740 Urðarbotnar, Nes- og Bakkagil - ofanflóðavarnir

    Mál 1606084 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað og umsókn Ara Benediktssonar hjá Mannvit hf. fh. Fjarðabyggðar, dagsett 2. janúar 2017, þar sem óskað er eftir leyfi til að gera 11 borholur til að fylgjast með grunnvatnsstöðu í byggð neðan fyrirhugaðra varnargarða undir Urðarbotnum og Nes- og Bakkagiljum á Norðfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við fyrirhugaðar staðsetningar borhola.

  6. 6. Húsnæði Sólvalla í Neskaupstað

    Mál 1612142 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar bréf níu einstaklinga, dagsett 20. desember 2016, þar sem óskað er eftir að hætt verði við sölu á fyrrum húsnæði leikskólans við Blómsturvelli í Neskaupstað og þess í stað teknar upp viðræður við hópinn um leigu á húsnæðinu til atvinnustarfsemi. Vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frá bæjarráði.

  7. 7. Drög að nýrri reglugerð um heimagistingu o.fl.

    Mál 1611016 Allur ferill málsins

    Í tengslum við lög nr. 67/2016, um breytingar á lögum nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, hefur Samband Íslenskra sveitarfélaga tekið saman upplýsingar um ferðamál og heimagistingu. Lagt fram til kynningar.

  8. 8. Almenningssamgöngur - ungmennaráð

    Mál 1606037 Allur ferill málsins

    Frá bæjarstjórnarfundi. Umræða um af hverju er ekki frítt í almenningssamgöngur fyrir 16 - 18 ára.

    Máli vísað til bæjarráðs og eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

    Bæjarráð tók málið fyrir á fundi sínum fyrr i dag og setti í ákveðinn farveg og mun nefndin bíða niðurstöðu þess.

  9. 9. Loftræsting í íþróttahúsum

    Mál 1701018 Allur ferill málsins

    Frá bæjarstjórnarfundi. Umræða um hvort það þurfi ekki að yfirfara loftræsismál í íþróttahúsum í Fjarðabyggð. Máli sé vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

    Framkvæmdasviði er falið að yfirfara stöðu loftræsimála íþróttahúsa í Fjarðabyggð.

  10. 10. Upphitun Fjarðabyggðarhallarinnar

    Mál 1701016 Allur ferill málsins

    Frá bæjarstjórnarfundi. Umræða um hvort það sé kominn tími til að hita upp Fjarðabyggðarhöllina.

    Máli vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og íþrótta- og tómstundanefndar.

    Framkvæmdasviði er falið að taka saman kostnað við einangrun og upphitun Fjarðabyggðarhallarinnar og þá möguleika sem til staðar eru í því og leggja fyrir nefndina.