NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 166
16. janúar 2017, kl. 16:00 til 17:50, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Svanhvít Yngvadóttir, aðalmaður
- Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, varaformaður
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 215 liður 5
Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 16. janúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Lausaganga stórgripa
Mál 1403118 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að samþykkt um bann við lausagöngu strórgripa ásamt minnisblaði umhverfisstjóra, dagsett 9. janúar 2017. Sent til umfjöllunar frá landbúnaðarnefnd.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfisstjóra að senda drögin til umsagnar hjá hagsmunaaðilum.
-
2. Starfshópur um göngu- og hjólreiðastíga
Mál 1510014 Allur ferill málsins
Áframhaldandi vinna við skipulag á hjóla- og göngustíga.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfisstjóra að kostnaðarmeta 1. áfanga í göngu- og hjólreiðastígum milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar. Samhliða því verður kallað eftir áhættumati á 3. áfanga samkvæmt tillögu að breytingum, svo og tengingum stígs við álver og Mjóeyrarhöfn. Jafnframt verði unnin kostnaðaráætlun vegna stígagerðar sem þegar er gert ráð fyrir í staðfestu deiliskipulagi sundurliðað eftir byggðarkjörnum.
-
3. 735 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027. breyting - Stækkun hafnarsvæðis
Mál 1701099 Allur ferill málsins
Bæjarstjórn hefur samþykkt beiðni hafnarstjórnar um að breyta Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 vegna stækkunar hafnarinnar á Eskifirði. Tilboð hafa borist vegna skipulagsvinnu.
Hugmyndir um stækkun hafnarinnar lagðar fram til kynningar.
-
4. Deiliskipulag Leira 1, iðnaðar- og hafnarsvæði sunnan Strandgötu - breyting, stækkuna hafnarsvæðis
Mál 1701100 Allur ferill málsins
Bæjarstjórn hefur samþykkt beiðni hafnarstjórnar um að breyta deiliskipulagi Leiru 1, iðnaðar- og hafnarsvæði sunnan Strandgötu vegna stækkunar hafnarinnar á Eskifirði. Tilboð hafa borist vegna skipulagsvinnu. Hugmyndir um stækkun hafnarinnar lagðar fram til kynningar.
-
5. 740 deiliskipulag fólkvangs Neskaupstaðar
Mál 1606100 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti deiliskipulag Fólkvangs Neskaupstaðar í auglýsingu, skipulagsuppdráttur og greinargerð, dags. 1. desember 2016.
Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga.
Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.
-
6. 730 - Beiðni um framkvæmdaleyfi vegna annars áfanga Mjóeyrarhafnar
Mál 1701032 Allur ferill málsins
Lögð fram framkvæmdaleyfisumsókn Fjarðabyggðarhafna þar sem sótt er um leyfi til að hefja annan áfanga Mjóeyrarhafnar. Gert er ráð fyrir 160 m hafnarkanti og fyllingum. Efnistaka verður rétt austan við vöruhöfnina á Reyðarfirði og við Ljósá.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfið.
-
7. 750 Hafnargata 1, byggingarleyfi - hreinsivirki
Mál 1701034 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Elís B. Eiríkssonar hjá Eflu hf. fh. Loðnuvinnslunnar hf, dagsett 6. janúar 2017, þar sem sótt er um leyfi til að byggja 639,8 m2 og 2665,9 m3 hreinsivirki við fiskimjölsverksmiðju fyrirtækisins að Hafnargötu 1 á Fáskrúðsfirði. Teikningar eru unnar af Eflu hf. Hönnuðir eru Sigurjón Hauksson og Elís B. Eiríksson.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.
-
8. 740 Egilsbraut 1, byggingarleyfi - klæðning utanhúss
Mál 1701044 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Sigurðar J. Jónssonar fh. Fjarðabyggðar, dagsett 5. janúar 2017, þar sem sótt er um leyfi til að klæða félagsheimilið Egilsbúð, að Egilsbraut 1 á Norðfirði, að utan með sléttri álklæðningu.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.
-
9. 740 Skólavegur 12, byggingarleyfi - klæðning utanhús
Mál 1701043 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Sigurðar J. Jónssonar fh. Fjarðabyggðar, dagsett 5. janúar 2017, þar sem sótt er um leyfi til að klæða Nesskóla, að Skólavegi 12 á Norðfirði, að utan með sléttri álklæðningu ásamt byggingar á tæknirými við skólann.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.
-
10. Ljósá - ofanflóðaframkvæmdir
Mál 1602108 Allur ferill málsins
Lögð fram fyrirspurn frá bjóðenda vegna tilboðsgerðar í ofanflóðavarnir í Ljósá, Eskifirði.
Spurt er hvort leyft verði að færa rennsli í Ljósá yfir í farveg Hlíðarendaár á meðan á framkvæmd stendur, hvort til greina komi að færa hjáleið við Strandgötu niður fyrir götuna og hvort nota megi sprautusteypu í leiðigarða ofan Steinholtsvegar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd leggst ekki gegn tímabundinni færslu Ljósár að fenginni jákvæðri umsögn Skógræktarfélags Eskifjarðar og UST ásamt hönnuða varna í Hlíðarendaá. Nefndin leggst ekki gegn færslu hjáleiðar og samþykkir framlagt samkomulag um frágang í verklok. Nefndin leggst ekki gegn notkun sprautusteypu að fenginni jákvæðri umsögn hönnuðar.
-
11. Eftirlit með vatnsveitum Fjarðabyggðar 2016
Mál 1701049 Allur ferill málsins
Lagðar fram til kynningar skýrslur Heilbrigðiseftirlits Austurlands um eftirlit með vatnsveitum Fjarðabyggðar á síðastliðnu ári. Samkvæmt sýnatökum eru vatnsveitur Fjarðabyggðar að skila góðu neysluvatni.
-
12. Endurskoðun á umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar 2016
Mál 1604018 Allur ferill málsins
Lögð fram breytingatillaga að umferðasamþykkt Fjarðabyggðar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir ýmsa liði samþykktarinnar og felur forstöðumanni framkvæmdamiðstöðvar og skipulags- og byggingarfulltrúa að uppfæra gögnin í samræmi við umræðu og taka fyrir að nýju á næsta fundi.
-
13. Landbúnaðarnefnd - 17
Samþykkt
- 13.1 Lausaganga stórgripa1403118
- 13.2 Fyrirkomulag fjallskila og gangnaboð, 20161608074
- 13.3 Átak í að fjarlægja ónýtar girðingar á Austurlandi1605077
- 13.4 Leigulönd í Fjarðabyggð1610078