Landbúnaðarnefnd, fundur 17
12. janúar 2017, kl. 13:00 til 15:00, í Molanum. Fundargerð ritaði Anna Berg Samúelsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sigurður Baldursson, formaður
- Halldór Árni Jóhannsson, aðalmaður
- Ármann Elísson, aðalmaður
- Þórhalla Ágústsdóttir, aðalmaður
- Marsibil Erlendsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Anna Berg Samúelsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 166 liður 13
Samþykkt
Dagskrá
-
1. Lausaganga stórgripa
Mál 1403118 Allur ferill málsins
Landbúnaðarnefnd er einhuga um að unnið verði áfram með samþykkt um bann við lausagöngu stórgripa í Fjarðabyggð. Nefndin felur umhverfisstjóra að laga orðalag í drögunum og senda samþykktina til frekari umfjöllunar hjá eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
Nefndin telur mikilvægt að kynningarferli samþykktarinnar verði hið minnsta sex mánuðir og kynnningarefnið verði kynnt fyrir nefndinni áður en það er sent út.
-
2. Fyrirkomulag fjallskila og gangnaboð, 2016
Mál 1608074 Allur ferill málsins
Landbúnaðarnefndin fór yfir fyrirkomulag gangna og heimtur. Talið upp það sem vitað var að hefði sést til kinda og lögð til áætlun um hvernig ætti að nálgast skepnurnar.
Fjallskilastjóri Fjarðabyggðar sér til þess að það fé sem vitað er um verði heimt af fjalli.
-
3. Átak í að fjarlægja ónýtar girðingar á Austurlandi
Mál 1605077 Allur ferill málsins
Landbúnaðarnefnd vill stuðla að því að halda áfram með verkefnið og felur umhverfisstjóra að vinna að frekari útfærslum fyrir það.
-
4. Leigulönd í Fjarðabyggð
Mál 1610078 Allur ferill málsins
Umhverfisstjóri kynnti fyrir landbúnaðarnefnd hvar reglur um leigulönd væri að finna ásamt gjaldskrá og umsóknareyðublöðum. Landbúnaðarnefnd er sátt við fyrirkomulagið.