NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 167
23. janúar 2017, kl. 16:00 til 16:50, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Svanhvít Yngvadóttir, aðalmaður
- Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, varaformaður
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 507 liður 12
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 167 frá 23.janúar 2017, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 216 liður 3
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 23.janúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Garð- og malarefni
Mál 1609089 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra og verkefnisstjóra umhverfismála um garðefni og búfjáráburð, dagsett 20. janúar 2017.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að hefja vinnslu á garð- og malarefnum í samræmi við minnisblað.
-
2. Leigulönd í Fjarðabyggð
Mál 1610078 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf hestamanna og búfjáreigenda á Reyðarfirði er varðar gjaldtöku fyrir afnot af leigulandi og reglur um leigulönd í Fjarðabyggð, dagsett 10. janúar 2017. Vísað frá bæjarráði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að boða til fundar með bréfriturum og öðrum hesta- og búfjáreigendum í Fjarðabyggð. Fundinn munu sitja fyrir hönd Fjarðabyggðar bæjarstjóri, umhverfisstjóri og formaður nefndarinnar. Bæjarstjóra falið að boða til fundarins eins fljótt og verða má.
-
3. 755 - Fjarðarbraut 25 - Umsókn um leyfi fyrir varmadælu
Mál 1701139 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Sveins Jónssonar, dagsett 20. janúar 2017, þar sem sótt er um leyfi til setja upp varmadælu ofan við hús hans að Fjarðarbraut 25 á Stöðvarfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.
-
4. 755 Fjarðarbraut 9 - varmadæla - byggingarleyfi
Mál 1701150 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Petru Sveinsdóttur, dagsett 23. janúar 2017, þar sem sótt er um leyfi til setja upp varmadælu ofan við hús hennar að Fjarðarbraut 9 á Stöðvarfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.
-
5. 735 Bakkastígur 15 - Byggingarleyfi, dyraskýli
Mál 1701142 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Steindórs H. Stefánssonar fh. Guðrúnar Ásdísar Einarsdóttur, dagsett 23. janúar 2017, þar sem sótt er um leyfi til að byggja dyraskýli við hús hennar að Bakkastíg 15 á Eskifirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.
-
6. Ljósá - ofanflóðaframkvæmdir
Mál 1602108 Allur ferill málsins
Lögð fram yfirlýsing Fjarðabyggðar vegna hjáleiðar við Strandgötu 70 á Eskifirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir yfirlýsinguna.
-
7. Skráning menningarminja - fornleifa, húsa og mannvirkja - skil á gögnum
Mál 1701110 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar bréf Minjastofnunar Íslands, dagsett 10. janúar 2017, þar sem kallað er eftir skilaskyldum gögnum vegna skráningar menningarminja sem orðið hafa til eftir 1. janúar 2013.