Brúarvegrið við Vattarnesveg yfir Kikjubólsá, Fáskrúðsfirði
Mál 1612094 Fyrst á dagskrá 2. janúar 2017, síðast 19. janúar 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Fáskrúðsfjörður
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 164 liður 3
Lagt fram bréf hestamanna á félagssvæði Hestamannafélagsins Goða á Fáskrúðsfirði, dagsett 7. desember 2016, þar sem óskað er eftir leyfi fyrir léttri trébrú yfir Kirkjubólsá gegnt Goðatúni 9 eða á öðrum hentugum stað.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd getur ekki fallist á að hestaumferð verði um Nesveg og telur að breikkun brúar yfir Kirkjubólsá sé heppilegri kostur. Nefndin felur sviðstjóra að ræða hugmyndina frekar í samráði við hestamenn og Vegagerðina.
-
Bæjarstjórn, fundur 215 liður 3.3
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 164“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.