Beiðni um styrk til endurbóta á bryggju við Egilsbraut 26
Mál 1702119 Fyrst á dagskrá 21. febrúar 2017, síðast 2. mars 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Hafnarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Hafnarstjórn, fundur 174 liður 7
Erindi frá Hákoni Guðröðarsyni dags. 15. febrúar 2017 þar sem óskað er eftir styrk vegna endurbóta á bryggju framan við sjóhúsið að Egilsbraut 26 á Norðfirði.
Hafnarstjórn samþykkir að styrkja endurbætur á bryggju og bryggjupalli í samræmi við reglur hafnarstjórnar um endurgerð gamalla bryggja. Jafnframt samþykkir hafnarstjórn að hækka hámarksgreiðslu úr 500 þ.kr. í 750 þ.kr.
-
Bæjarstjórn, fundur 218 liður 4.7
Fundargerðin „Hafnarstjórn - 174“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.