Beiðni um styrk til að mæta álögðum fasteignaskatti 2017
Mál 1702158 Fyrst á dagskrá 27. febrúar 2017, síðast 6. apríl 2017. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Styrkir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Bæjarráð, fundur 511 liður 2
Framlagðar beiðnir um styrk til að mæta álögðum fasteignaskatti fyrir árið 2017 vegna ungmennafélaganna Leiknis og Austra, Golfklúbbs Norðfjarðar (golfskáli 1 og 2) og Hestamannafélagsins Blæs (Dalahöllin).
Bæjarráð samþykkir að veittur sé styrkur til samræmis við reglur Fjarðabyggðar um styrkveitingar til greiðslu fasteignaskatts sbr. 2. gr. Styrkveiting nemur í heildina 1.211.498 kr. Vísað til fjármálastjóra til afgreiðslu.
-
Bæjarstjórn, fundur 218 liður 2.2
Fundargerðin „Bæjarráð - 511“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 515 liður 5
Endurumfjöllun um styrki til að mæta álögðum fasteignaskatti fyrir árið 2017 vegna ungmennafélaganna Leiknis og Austra, Golfklúbbs Norðfjarðar (golfskáli 1 og 2) og Hestamannafélagsins Blæs (Dalahöllin). Lögð fram ný tillaga íþrótta- og tómastundafulltúar um leiðréttar styrkfjárhæðir til félaganna.
Bæjarráð samþykkir að veita styrki til félaganna með vísan til reglna Fjarðabyggðar um styrkveitingar til greiðslu fasteignagjalda.
-
Bæjarstjórn, fundur 220 liður 4.5
Fundargerðin „Bæjarráð - 515“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.