Félagsmálanefnd, fundur 93
21. mars 2017, kl. 00:00 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Inga Rún Sigfúsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, formaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
- Borghildur Hlíf Stefánsdóttir, aðalmaður
- Ásmundur Páll Hjaltason, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, varaformaður
Starfsmenn
- Inga Rún Beck Sigfúsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 514 liður 17
Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 93 frá 21.mars 2017, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 220 liður 13
Enginn tók til máls.
Fundargerð félagsmálanefndar frá 21.mars s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Málefni flóttafólks 2015
Mál 1406154 Allur ferill málsins
Yfirfélagsráðgjafi gerði grein fyrir móttöku flóttafólks til Fjarðabyggðar. Verkefnið hefur að hans mati gengið vel og margir lagt hönd á plóg við að gera móttökuna sem ánægjulegasta. Félagsmálanefnd lýsir ánægju sinni með framgang verkefnisins.
-
2. Vinna við forvarnir fyrir árið 2017
Mál 1611121 Allur ferill málsins
Fyrir liggur áætlun fjölskyldusviðs um forvarnarfundi á árinu 2017. í áætluninni er gert ráð fyrir fimm stærri fundum en tekið skal fram að fjölmörg önnur forvarnarverkefni eru í gangi í stofnunum sveitarfélagsins og hjá félögum sem njóta styrkja frá sveitarfélaginu. Félagsmálanefnd lýsir ánægju með áætlunina sem er í takt við fjölskyldustefnuna og nýgert samkomulag um þróunarverkefnið Heilsueflandi samfélag.