Bæjarráð, fundur 514
27. mars 2017, kl. 08:30 til 12:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 220 liður 3
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 27.mars s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana 2016 - TRÚNAÐARMÁL
Mál 1703164 Allur ferill málsins
Endurskoðandi Fjarðabyggðar gerði grein fyrir vinnu við ársreikning Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2016. Ársreikningur verður lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn 6. apríl nk.
-
2. Fjárhagsáætlun 2017 - viðauki 3
Mál 1703168 Allur ferill málsins
Framlagður viðauki nr. 3 við fjárhagsáætlun 2017 um áhrif nýs kjarasamnings á laun stjórnenda og kennara tónlistarskóla.
Bæjarráð samþykkir viðauka fyrir sitt leyti og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
-
3. Stefnumótun í fiskeldismálum
Mál 1703120 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu fiskeldimála í Fjarðabyggð.
-
4. Undirbúningsvinna vegna komu skemmtiferðaskipa
Mál 1005131 Allur ferill málsins
Vísað frá hafnarstjórn til bæjarráðs umræðu um komu skemmtiferðaskipa til Fjarðabyggðar.
-
5. 755 Bankastræti 2 og 4 - Beiðni um að Fjarðabyggð leysi til sín lóð
Mál 1210191 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, innlausn og vísar endanlegri ákvörðun um innlausn lóðanna til bæjarráðs.
Lögð fram drög að afsölum vegna lóðanna við Bankastræti 2 og 4 á Stöðvarfirði en eigendur lóðanna hafa lýst yfir áhuga á að Fjarðabyggð leysi lóðirnar til sín þar sem þær verða ekki nýttar frekar.
Bæjarráð samþykkir að innleysa lóðirnar og felur bæjarstjóra undirritun skjala tengdum innlausninni.
-
6. 204.mál til umsagnar frumvarp til laga um Umhverfisstofnun (heildarlög),
Mál 1703137 Allur ferill málsins
Frumvarpið fjallar um hlutverk Umhverfisstofnunar og margvíslegt hlutverk hennar. Mikilvægt er að hlutverk Umhverfisstofnunar verði samþætt og tiltekið með skýrari hætti í löggjöf um stofnunina. Umsagnarfrestur er til 31.mars nk. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
-
7. Kynning á tillögu að kerfisáætlun 2016-2025 og umhverfisskýrslu
Mál 1611077 Allur ferill málsins
Orkustofnun óskar umsagna við tillögu að kerfisáætlun 2016 til 2025. Umsagnir óskast sendar fyrir 19.apríl nk.
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
-
8. Slóðir og smalavegir
Mál 1703171 Allur ferill málsins
Framlögð áskorun Félags leiðsögumanna um að sveitarfélög nýti það fjármagn sem fáanlegt er úr styrkvegasjóði til endurbóta á vegaslóðum vegna hreindýraveiða. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
-
9. Ársfundur Starfsendurhæfingar Austurlands - 31.mars 2017
Mál 1703148 Allur ferill málsins
Framlagt boð um ársfund Starfsendurhæfingar Austurlands sem haldinn verður 31. mars nk. kl. 14:30 að Miðvangi 1-3 Egilsstöðum ásamt fundargerðum stjórnar.
Bæjarráð felur Eydísi Ásbjörnsdóttur að fara með umboðið Fjarðabyggðar ársfundinum. Bæjarráð tilnefnir jafnframt Eydísi Ásbjörnsdóttur sem aðalmann og Huldu Sigrúnu Guðmundsdóttur sem varamann í stjórn.
-
10. Aðalfundur Sparisjóðs Austurlands - 4.apríl 2017
Mál 1703150 Allur ferill málsins
Aðalfundur Sparisjóðs Austurlands verður haldinn þriðjudaginn 4.apríl kl. 16:00 í Safnahúsinu í Neskaupstað.
Bæjarráð felur Páli Björgvini Guðmundssyni að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.
-
11. Ráðstefna Ungs Austurlands 8.-9. apríl
Mál 1703152 Allur ferill málsins
Framlag boð á ráðstefnuna UngAust2017 sem haldin verður á Borgarfirði Eystri helgina 8. - 9.apríl nk. Þema ráðstefnunnar er byggðamál í víðu samhengi.
Bæjarráð fagnar framtaki Ungs Austurlands að halda ráðstefnuna. Bæjarráð hvetur kjörna fulltrúa Fjarðabyggðar til að taka þátt í ráðstefnunni.
-
12. Gjaldskrá fráveitu Fjarðabyggðar 2017
Mál 1610049 Allur ferill málsins
Breyting á gjaldskrá fráveitu lögð fram til samþykktar í bæjarráði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti tillögu fjármálastjóra um breytingu á gjaldskrá vegna lagabreytinga og vísar til staðfestingar bæjarráðs. Áður á dagskrá bæjarráðs 13.mars sl.
Bæjarráð samþykkir framlagðar breytingar á gjaldskránni.
-
13. Gjaldskrá vatnsveitu Fjarðabyggðar 2017
Mál 1610031 Allur ferill málsins
Breyting á gjaldskrá vatnsveitu lögð fram til samþykktar í bæjarráði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti tillögu fjármálastjóra um breytingu á gjaldskrá vegna lagabreytinga og vísar til staðfestingar bæjarráðs. Áður á dagskrá bæjarráðs 13.mars sl.
Bæjarráð samþykkir framlagðar breytingar á gjaldskránni.
-
14. Vatns- og holræsagjöld á ótengdar fasteignir - breyting á samþykkt um fráveitu á árinu 2017
Mál 1702223 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga um breytingu á samþykkt um fráveitu Fjarðabyggðar vegna lagabreytinga. Breytingar hafa verið samþykktar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd og er vísað til samþykktar í bæjarráði.
Bæjarráð samþykkir breytingar á samþykkt um fráveitu Fjarðabyggðar og vísar staðfestingu hennar til bæjarstjórnar.
-
15. Nefndaskipan Fjarðalista 2014 - 2018
Mál 1406125 Allur ferill málsins
Fjarðalistinn skipar nýja varamenn í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og íþrótta- og tómstundanefnd.
Kamma Dögg Gísladóttir tekur sæti sem varamaður í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og Guðmundur Arnar Guðmundsson tekur sæti sem varamaður í íþrótta- og tómstundanefnd.
-
16. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 171
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 171 frá 20.mars 2017, lögð fram til kynningar.
-
17. Félagsmálanefnd - 93
Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 93 frá 21.mars 2017, lögð fram til kynningar.