Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 513

20. mars 2017, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Valdimar O Hermannsson, varamaður

Starfsmenn

  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 220 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðsson, Jens Garðar Helgason, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Valdimar O Hermannsson, Eydís Ásbjörnsdóttir.

    Fundargerð bæjarráðs frá 20.mars s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fiskeldismál

    Mál 1703120 Allur ferill málsins

    Bæjarráð ræddi fiskeldismál.

  2. 2. Kjara- og launamál 2017

    Mál 1612110 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað um breytingar á launaáætlun 2017 vegna miðlunartillögu Ríkissáttasemjara í kjaradeilu Félags tónskólakennara og Samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Kostnaðarauki nemur 14.127.955 kr. á árinu 2017.

    Bæjarráð felur fjármálastjóra að útbúa viðauka vegna kostnaðarauka og leggja fyrir bæjarráð.

  3. 3. Áherslur HSA á árinu 2017 - brýn mál

    Mál 1703014 Allur ferill málsins

    Á fund bæjarráðs er mættur Guðjón Hauksson forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Farið yfir málefni heilbrigðisstofnunarinnar.

  4. 4. Landsþing Sambandsins 24.mars 2017

    Mál 1702155 Allur ferill málsins

    Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga verður haldið 24.mars.

    Lögð fram gögn vegna fundarins.

  5. 5. Frumvarp til laga um útlendinga

    Mál 1703116 Allur ferill málsins

    Framlagt frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga sem kveður á um tvenns konar breytingar á nýjum lögum um útlendinga, nr. 80/2016. Tilgangurinn er að skýra betur efni laganna, annars vegar varðandi frestun réttaráhrifa ákvarðana Útlendingastofnunar í hælismálum og hins vegar varðandi veitingu dvalarleyfa á grundvelli hjúskapar eða sambúðar. Frumvarpinu er hins vegar hvorki ætlað að breyta efni né tilgangi laganna.

    Vísað til félagsmálanefndar til umsagnar ef ástæða er til.

  6. 6. Kortlagning tækifæra á litlum vatnsaflsvirkjunum

    Mál 1703115 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur frá Sambandi sveitarfélag á Austurlandi vegna bréfs Orkustofnunar þar sem óskað er eftir tillögum að virkjunarkostum smávirkjana undir 10 Kw.

    Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  7. 7. Svæðisskipulag fyrir Austurland

    Mál 1602151 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð svæðisskipulagsnefndar nr. 4 frá 14. mars 2016.

  8. 8. Fundargerðir stjórnar SSA 2017

    Mál 1701059 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar SSA frá 6.mars 2017 lögð fram til kynningar.

  9. 9. Menningar- og safnanefnd - 30

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 14. mars sl. lögð fram til kynningar.

  10. 10. Hafnarstjórn - 175

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórn frá 14. mars lögð fram til kynningar.