Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

Fjárhagsáætlun 2017 - viðauki 3

Mál 1703168 Fyrst á dagskrá 27. mars 2017, síðast 6. apríl 2017. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Bæjarráð, fundur 514 liður 2

    Framlagður viðauki nr. 3 við fjárhagsáætlun 2017 um áhrif nýs kjarasamnings á laun stjórnenda og kennara tónlistarskóla.

    Bæjarráð samþykkir viðauka fyrir sitt leyti og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 220 liður 15

    Bæjarstjóri fylgdi viðauka 3 við fjárhagsáætlun 2017 úr hlaði.

    Til máls tóku: Jens Garðar Helgason, Einar Már Sigurðarson.

    Framlagður viðauki nr. 3 við fjárhagsáætlun 2017 um áhrif nýs kjarasamnings á laun stjórnenda og kennara tónlistarskóla.

    Lagt er til að launaliðir fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar í málaflokki 04 Fræðslumál vegna tónskóla hækki um kr. 14.127.955 fyrir árið 2017. Enn fremur er lagt til að aukinn launakostnaðar verði fjarmagnaður af eigin fé Aðalsjóðs. Handbært fé Aðalsjóðs mun lækka um 14.128 þúsund kr. til samræmis við ofangreint og verða 134.138 þúsund kr. í árslok 2017.

    Bæjastjórn samþykkir viðauka nr. 3 með 9 atkvæðum.

  3. Bæjarstjórn, fundur 220 liður 3.2

    Fundargerðin „Bæjarráð - 514“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is