Styrkbeiðni frá Stígamótum vegna þjónustu við brotaþola hjá Fjarðabyggð
Mál 1702096 Fyrst á dagskrá 21. febrúar 2017, síðast 2. mars 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Félagsmálanefnd.
Í heiti málsins: Styrkir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Félagsmálanefnd, fundur 92 liður 3
Fyrir liggur styrkbeiðni frá Stígamótum vegna þjónustu við brotaþola hjá Fjarðabyggð. Samtökin hafa boðið brotaþolum upp á þjónustu hér eystra frá árinu 2012 og mikil eftirspurn hefur verið eftir þjónustunni. Félagsmálanefnd ákveður að styrkja Stígamót um 500.000 kr. árið 2017.
-
Bæjarstjórn, fundur 218 liður 6.3
Fundargerðin „Félagsmálanefnd - 92“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.