Fjárhagsáætlun 2016 - viðauki 6
Mál 1701095 Fyrst á dagskrá 16. janúar 2017, síðast 19. janúar 2017. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Bæjarráð, fundur 505 liður 3
Framlagður viðauki 6 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana á árinu 2016. Í viðaukanum hefur fjármálastjóri dregið saman áhrif af úthlutunum samkvæmt ákvörðunum bæjarráðs, úthlutun símenntunarstyrkja og námsstyrka og úr veikindalaunapotti. Viðaukinn hefur engin áhrif á rekstrarniðurstöðu eða fjárhag Fjarðabyggðar, einungis tilflutning á milli málaflokka og deilda. Viðauka 6 við fjárhagsáætlun 2016 vísað til bæjarstjórnar til samþykktar.
-
Bæjarstjórn, fundur 215 liður 10
Bæjarstjóri fylgdi viðauka úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Framlagður viðauki 6 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana á árinu 2016. Í viðaukanum eru dregin saman áhrif af úthlutunum samkvæmt ákvörðunum bæjarráðs, úthlutun símenntunarstyrkja, námsstyrkja og veikindalauna.
Viðaukinn hefur engin áhrif á rekstrarniðurstöðu eða fjárhag Fjarðabyggðar, einungis tilflutning á milli málaflokka og deilda. Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum viðauka 6 við fjárhagsáætlun 2016.
-
Bæjarstjórn, fundur 215 liður 2.3
Fundargerðin „Bæjarráð - 505“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.