Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

Fjárhagsáætlun 2017 - viðauki 1

Mál 1612137 Fyrst á dagskrá 16. janúar 2017, síðast 19. janúar 2017. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Bæjarráð, fundur 505 liður 2

    Framlagður viðauki 1 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana á árinu 2017. Í viðaukanum hefur fjármálastjóri dregið saman áhrif, á rekstur Fjarðabyggðar á árínu 2017, af nýjum og/eða breyttum kjarasamningum, breytingum á lögum lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og breytingum á mótframlög launagreiðanda til LSR og Brú-LSS. Viðaukinn er gerður í samræmi við samþykktir bæjarráðs frá 19. desember 2016 og 2. janúar 2017. Viðauka 1 við fjárhagsáætlun 2017 vísað til bæjarstjórnar til samþykktar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 215 liður 9

    Bæjarstjóri fylgdi viðauka úr hlaði.

    Enginn tók til máls.

    Framlagður viðauki 1 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana á árinu 2017. Í viðaukanum eru dregin saman áhrif á rekstur Fjarðabyggðar á árínu 2017 af nýjum og/eða breyttum kjarasamningum, breytingum á lögum lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og breytingum á mótframlög launagreiðanda til lífeyrissjóðanna LSR og Brú-LSS.

    Viðaukinn er gerður í samræmi við samþykktir bæjarráðs frá 19. desember 2016 og 2. janúar 2017.

    Lesa alla bókunina (94 orð til viðbótar)

    Lagt er til að launaliðir fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar í málaflokkum sbr. sundurliðun tillögunnar lækki í heildina um kr. 14.245.516 fyrir árið 2017. Þar af nemur lækkunin 6.802.478 í A hluta en 7.443.038 í B hluta rekstrar Fjarðabyggðar og stofnana. Enn fremur er lagt til að þessi lækkaði rekstrarkostnaður verði lagður á eigið fé Aðalsjóðs og viðskiptareikninga B hluta stofnanna, Hafnarsjóðs, Hitaveitu og Fráveitu við Aðalsjóð. Handbært fé Aðalsjóðs mun hækka um 14.246.000 krónur til samræmis við ofangreint og verða 156.760.000 þús. króna í árslok 2017

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum viðauka 1 við fjárhagsáætlun 2017.

  3. Bæjarstjórn, fundur 215 liður 2.2

    Fundargerðin „Bæjarráð - 505“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is