Lánasamningur um 203 m.kr. við Lánasjóð sveitarfélaga nr. 1701_04
Mál 1701211 Fyrst á dagskrá 30. janúar 2017, síðast 2. febrúar 2017. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Bæjarráð, fundur 507 liður 3
Lánasamningur vegna 227 milljóna kr. láns.
Lögð fram lánaskjöl vegna lántöku að upphæð 227 milljónir við Lánasjóð sveitarfélaga i samræmi við samþykktir bæjaráðs í málum 1612126 og 1612125. Lánið er til endurfjármögnunar á skuldum Hitaveitu Fjarðabyggðar, lánið er verðtryggt og ber fasta 2,5% vexti. Bæjarráð samþykkir lántöku fyrir sitt leyti og vísar málinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.
-
Bæjarstjórn, fundur 216 liður 11
Bæjarstjóri fylgdi lánasamningi úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Lesa alla bókunina (180 orð til viðbótar)
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum fyrirliggjandi lánasamning við Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstólsfjárhæð allt að kr. 227.355.784, með útgreiðslufjárhæð allt að kr. 203.000.000, með lokagjalddaga þann 5. nóvember 2055, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og bæjarfulltrúar hafa kynnt sér. Lánið er bundið vísitölu neysluverð og ber fasta vexti. Bæjarstjórn samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstólsfjárhæðinni, uppgreiðslugjaldi, auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til endurfjármögnunar á afborgunum eldri lána hjá Hitaveitu Fjarðabyggðar sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Páli Björgvini Guðmundssyni, bæjarstjóra Fjarðabyggðar kt. 150870-4379, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Fjarðabyggðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.
-
Bæjarstjórn, fundur 216 liður 2.3
Fundargerðin „Bæjarráð - 507“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Lánasamningur vegna 227 milljóna kr. láns.