Málefni Reykjavíkurflugvallar
Mál 1511126 Fyrst á dagskrá 2. janúar 2017, síðast 5. janúar 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Samgöngur
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Bæjarráð, fundur 503 liður 10
Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir harðlega þeirri stöðu sem málefni sjúkraflugs á Íslandi er komið í með lokun Reykjavíkurborgar á neyðarbraut flugvallarins í Reykjavík.
Þegar öryggi íbúa landsins er undir í málum eins og þessum, má aldrei gleyma að það er sameiginlega ábyrgð okkar allra að öryggi og heilsu íbúa landsins sé ekki stefnt í tvísýnu. Sveitarfélagið Fjarðabyggð hefur axlað ábyrgð sína í þessum málum með aðkomu sinni og aðila í heimabyggð með endurbyggingu neyðarbrautar við Umdæmissjúkrahús Austurlands í Neskaupstað. Því hvetur bæjarráð Fjarðabyggðar Borgarstjórn Reykjavíkur að endurskoða ákvörðun sína um lokun neyðarbrautarinnar strax og ríkisvaldið komi að þeirri vinnu þannig að málið verði leyst til framtíðar.
-
Bæjarstjórn, fundur 214 liður 2.10
Fundargerðin „Bæjarráð - 503“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.